Skólablaðið - 01.12.1985, Blaðsíða 49
★ STJÖRNUSPÁIN ★
LANGTÍMASPÁ MEÐ AÐSTOÐ IÖIATJ
Vogin, 24. sept.—23. okt.:
Hafðu í huga, að ekkert getur orðið
nákvæmlega eins og þú ætlast til og ekki
eru allir ánægðir með athafnir þínar.
Farðu að hafa með þér nesti í skólann.
Sjöttabekkjarráð hefur tekið við kakó-
sölunni. Þú færð fylgd heim af jólaball-
inu.
Sporðdrekinn, 24. okt.—23. nóv.:
Þér gengur vel að koma skoðunum
þínum á framfæri, og tillögur þínar fá
góðan hljómgrunn. Þú skalt fara að fjár-
festa á okurlánamarkaðnum, tómarúm
hefur myndast. Þú færð símtal, sem mun
breyta lífi þínu til hins betra, en gleymdu
samt ekki gömlum vinum.
Bogmaðurinn, 24. nóv.—21. des.:
Ýmsir duldir hæfileikar koma í ljós á
ólíklegustu og mikilvægustu stundum.
Reyndu samt að stilla þig, því að þetta er
tímabundið. Þú og vinir þínir geta farið
að semja við Guðna um að fá að halda
áfram eftir jól.
Steingeitin, 22. des.—20. jan.:
Aumingja þú. Undarlegt eirðarleysi og
doði einkennir lífið þessa dagana. Eng-
inn þolir þig! Farðu í andlitslyftingu. Þú
hittir gamlan vin, og þið rifjið upp „old
days in the Navy“. Hann biður þig að
lána sér.
Vatnsberinn, 21. jan.—19. febr.:
Þú kemur að besta vini þínum í rúm-
inu með kærustu þinni (kærasta þínum).
Tveimur mannslífum síðar snýrðu þér að
hinu kyninu. Farðu varlega í umferðinni.
Fiskarnir, 20. febr.—20. marz:
Tilbreytingar og nýjungar eru það,
sem þú þarft. Leggðu allt kapp á að
þóknast kennurum þínum, en það verð-
ur erfitt, því að þú ert í raun fráhrindandi
og hrokafullur. Vinkona þín (vinur þinn)
virðist hafa misst áhugann á þér, en haltu
samt áfram að reyna!
49