Skólablaðið

Årgang

Skólablaðið - 01.12.1985, Side 59

Skólablaðið - 01.12.1985, Side 59
QUID NOVI? Heyrst hefur, að Óli scriba, stundum kallaður Óli sjarmör eða Óli diskó, hafi farið úr axlarlið um daginn. Var slysinu haldið leyndu og þess vandlega gætt, að enginn kæmist að því. Sambönd rit- nefndar í undirheimum Reykjavíkur komu loks að gagni, því að í samræðum við „Prince of the underground", Mr. Anti social reproduction, kom í ljós, að Óli kaldi hafði verið að framkvæma nýja tegund af breiki á Lækjartorgi eina nótt- ina. Var ásamt Óla á staðnum klapplið hans, dillandi fitukeppir og bólugeml- ingar. Málsatvik voru eitthvað á þessa leið: Óli kom hlaupandi niður Laugaveg- inn á 50 km hraða. Við pylsuvagninn fékk hann stórmennskubrjálæði og ætl- aði að fljúga yfir götuna, en lenti á bíl, sem var að fara í sakleysi sínu um mið- bæinn. Sökum reikuls hugarfars ofan- greinds heimildarmanns ber að hafa í huga, að ekki þarf allt að stemma í frá- sögninni, en við látum söguna flakka. Eins og kunnugt er, kom hópur danskra skólanema hingað til lands og sótti nokkra tíma hér í skóla. Meðal gesta var danski prinsinn Jóakim. Nú herma fréttir frá Danmörku, að hann hafi verið rekinn úr skóla í viku. Er sagt, að hann hafi — ásamt félögum sínum — truflað leiksýningu yngri nema með frammíköllum, og einnig köstuðu þeir karamellum á sviðið. Já, það er okkur í ritnefnd ánægja að vita til þess, að Jóakim hefur getað lært eitthvað hér í skóla. Það á ekki að bera nokkra virð- ingu fyrir yngri nemum, eins og hálfur kosningaréttur þeirra sýnir. ÓIi „Sjúskó“. Heyrst hefur, að Grandi h/f hyggist auðvelda nemendum M.R. að útvega sér vinnu við flökun seinna misseri 1985—86, og muni þess vegna liggja frammi innritunarlistar uppi á skrifstofu daginn, sem einkunnir verða afhentar, og tvo þá næstu á eftir. Fallistar! Ekki er öl von úti! Jón Gunnar með sinn alkunna „sexy“ svip. STELPUR. Jón Gunnarsson Jónsson (ekki inspector), kvennagull og quaestor Skólafélagsins, er á lausu. Hefur frést af honum lausum og liðugum á danshúsum borgarinnar. Fer ýmsum sögum af kvennamálum Jons. Ekki orð um það meir. Fylgjumst bara öll spennt með. 59

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.