Skólablaðið - 01.12.1985, Side 60
QUID NOVI?
Eins og allir vita, lögðu Birgir Ár-
mannsson, forseti Framtíðarinnar, og
Ólafur Stephensen nemi fram tillögu
þess efnis, að þriðjubekkingar fengju
jafnan kosningarrétt sem aðrir nemend-
ur. Þessi réttlætistillaga þeirra félaga
náði því miður ekki fram að ganga, en
eigi að síður unnu þeir umtalsverðan sig-
ur, þar sem meiri hluti studdi tillöguna.
En hvers vegna lögðu þeir þessa tillögu
fram? Birgir lagði hana fram m.a. vegna
pólitískrar sannfæringar og hjarta-
gæsku, en hið sama verður ekki sagt um
Ólaf, þó að hann sé ákaflega hjartagóð-
ur maður, eins og allir vita.
En skyldi eitthvað annað búa undir?
Lítill fugl hvíslaði annarri útskýringu að
okkur, og látum við hana flakka, þótt
flókin sé.
Segjum, að tillaga þeirra félaga hefði
náð fram að ganga. Þá væru busar með
fullan kosningarétt á vori komanda, en
það er einmitt þá, sem næsti inspector
verður kjörinn. Ólafur lítur það embætti
hýru auga, og hyggst hann reyna við það
með ötulli aðstoð Birgis, sem auðvitað
vill fá inspector handgenginn sér og sín-
um (öhömm) næsta vetur. Birgir myndi
þá tryggja Ólafi atkvæði 3. og 4. bekkj-
ar, en Birgir hefur mjög gott samband
(public relations) við fólk í þessum
bekkjum. Verra er með atkvæði 5. bekkj-
ar, en þar er Ólafur ekki mjög vinsæll og
alls ekki víst, að hann verði meðal
tveggja hæstu í forkosningunum. En
hann hefur nokkra mánuði til að bæta úr
því. Svo gæti hann gengið í 3. bekk í
kosningabaráttunni í vor og bent á það,
að hann hefði nú verið annar þeirra, sem
lögðu tillöguna margfrægu fram, og æ
sjái gjöf til gjalda.
Ólíklegt er, að Birgir bjóði sig fram til
nokkurs embættis í vor, nema vera skyldi
í ritnefnd. En heita má, að „hin stóru“
embætti, sem fjórðubekkingar bjóða sig
fram til í vor, séu óhult, vegna þess að nú
Birgir Ármannsson heilsar aðdáendum.
gegnir hann svo miklu virðingar-
embætti, að varla væri við hæfi, að hann
færi í leiðinda-pappírsvinnu, eins og
störf quaestors og scribu eru að mörgu
leyti. Þar næsta vor íhugar Birgir hins
vegar að hreppa inspectorstitilinn, og er
það gott, því að ekki hefur neinn annar
fjórðubekkingur sýnt enn, að hann sé
fær um að valda því embætti (fyrir utan
einstaklinga í stjórn Framtíðarinnar og
ritnefnd). Aðrir, sem hafa verið nefndir
í inspectorinn I vor, eru: Kristján Þór
Árnason, Jón Gunnar quaestor, Ólafur
scriba, Arndís Þorgeirsdóttir og Sigurð-
ur Arnarsson. Sigurður er nú gjaldkeri
Herranætur og hefur áunnið sér virð-
ingu fyrir röggsemi á þeim bæ. Hann
hefur á að skipa fjölmennum stuðnings-
hópi, (hulduher) sem ku vera farinn að
skipuleggja kosningabaráttu að amer-
ískum sið, — kosningablað, prentuð
plaköt, og fleira. Sigurður sjálfur verst
allra frétta, enn sem komið er,en neitaði
því ekki, að margir hefðu skorað á sig að
„demba sér út í kosningabaráttuna“, eins
og hann komst að orði . . .
Olafur Stephensen les tillöguna yfir.
60