Skólablaðið - 01.12.1985, Side 62
QUID NOVI?
Kvöldið, sem ég villtist inn á ritnefnd-
arkompu. Er ég kom inn var Kjartan ný-
búinn að rota Þórð með vínflösku, og
Óli var að kveikja í Ara. Steini skoðaði,
í sinni stóísku ró, teikningar af gálga.
Þegar Kjartan varð mín var, sagði hann
mér kurteislega að vara mig á refagildr-
unni, sem lá falin á gólfinu undir mottu.
Því næst hrinti Ari mér niður stigann, en
hann var að flýta sér út til að slökkva í
sér. Þegar ég var kominn upp aftur, sá ég
á eftir Kjartani út um gluggann, því að
Þórður var nýraknaður úr rotinu. Sá ég
þá, að best KLOMP ... .- .
Ritnefndin á meðan allt lék í lyndi.
Heyrst hefur, að innan Herranætur
standi yfir samningar milli félagsins og
Sigurðar Pálssonar skálds. Munu svipt-
ingar hafa verið miklar og orð ekki spör-
uð. Sigurður Arnarson gjaldkeri mun
hafa tekið nokkrar laufléttar sveiflur,
meðan á samningagerðinni stóð, og kom
kaupi Sigurðar niður úr hófi.
Heyrst hefur, að ýmsar uppákomur
hafi verið framdar á bekkjarkvöldum
allra bekkjarárganga. M.a. var þátt-
takandi í keppninni „sterkasti maður ís-
lands“, Jósef Halldórsson, með líkams-
ræktarsýningu á kvöldi fjórða bekkjar
um daginn. Urðu margir undrandi (aðrir
g(r)laðir, einn og einn hneykslaður),
þegar skyndilega birtist svæsin, en jafn-
framt listræn klámspóla á vídeóskermin-
um. Jósef var gæinn með hauspokann
og fór hlutverkið vel úr hendi (3 stjörn-
ur), þó sér í lagi er hann brá svipunni á
loft, en þá var sýning myndarinnar
stöðvuð. Bíður ritnefnd og væntanlega
þorri fjórðubekkinga áköf eftir fram-
haldinu. Meira svona, Jósi.
62
Jósef Halldórssyni hefur tekist að
gera margt um dagana, en siðferðis-
kennd ritnefndar segir stopp.