Monitor - 20.01.2011, Qupperneq 7
7FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2011 Monitor
Vampírustjarnan Anna Paquin og Transfor-
mers-pían Megan Fox klæðast hér nánast eins
Herve Leroux kjól, nema hvað að kjóllinn henn-
ar Megan er ermalaus. Kjóllinn er virkilega
fallegur og báðar eru þær glæsilegar í honum
og klárlega kynþokkinn uppmálaður. Þær verða
því að deila sigrinum enda ekki annað hægt en
að gefa þeim báðum fyrstu verðlaun.
Twilight-stjarnan Ashley Greene og MILF-
ið Gretchen Rossi eru báðar í gullituðum
Gryphon kjól. Dressið hennar Ashley er ekki
alveg að gera sig, en hún er greinilega að
reyna að gera þennan fína kjól að einhverju
hversdagsdressi sem misheppnast algjörlega
hjá henni. Gretchen ber því sigur úr bítum hér
enda undurfögur í kjólnum.
Vá! Leikkonurnar Diane Kruger og Shantel
VanSanten eru báðar í gullfallegum kjól frá
Chanel. Eini munurinn er að axlirnar á kjólnum
hjá Shantel eru svartar og hún valdi sér styttri
útgáfuna. Stíllinn hugsaði sig vel um. Diane er
mjög fáguð og falleg í sínum kjól en Shantel
er pæjulegri og í mjög áhugaverðum skóm.
Shantel fær vinninginn.
Hönnun Victoriu Beckham hefur verið að gera
það gott undanfarið og hérna keppa Drew
Barrymore og Kelly Ripa í kjól eftir hana. Kjóll-
inn er úr þannig efni að hann gerir Drew svolítið
stubbalega. Kelly hefur hins vegar annaðhvort
látið stytta kjólinn eða það að hún sé mun
stærri en Drew. Kjóllinn fer líkamsbyggingu
Kelly mun betur.
Stjörnustríð
Viltu sleppa því að fá samviskubit yfir sjónvarpsglápi?
Heilbrigt
sjónvarpsgláp
EKKI ER VÍST AÐ HÆGT SÉ
AÐ HORFA Á SKJÁINN Í
ÞESSARI STÖÐU
Stíllinn grennslaðist fyrir um hvað hægt sé að
gera á meðan tímanum er eytt í það að horfa
á sjónvarpið. Mörgum finnst svo gott að grípa
eitthvað í skápnum, hvort sem það er snakk,
nammi eða eitthvað annað til að japla á. Eflaust
myndi þessi nartþörf breytast ef maður héldi sér
uppteknum með öðru móti. Þessar sjö sniðugu
æfingar er hægt að gera á meðan Desperate
Housewives eða Gossip Girl er í imbanum.
1Sippaðu stanslaust í tvær mínútur oghvíldu þig í tvær á meðan uppáhaldsþátt-urinn þinn er í gangi. Endurtaktu þetta
fjórum sinnum. (111 kaloríur)
2Liggðu á gólfinu á hliðinni og lyftulöppinni upp og niður í fimmmínútur. (50 kaloríur)
3Gerðu æfingu þar sem höndunum er snúiðí hringi í eina mínútu og endurtaktu þaðtvisvar sinnum. (20 kaloríur)
4Hlauptu upp og niður stigana heima hjáþér, á stigaganginum eða fyrir utan heimiliþitt á meðan auglýsingar eru. (42 kaloríur)
5Stattu fyrir framan sófann þinn ogbeygðu þig niður eins og þú sértað fara að setjast en snertir ekki
sófann. Haltu þér í þessari setustöðu
í eina mínútu og endurtaktu þetta
fjórum sinnum. (80 kaloríur)
6Liggðu á gólfinu fyrir framansjónvarpið í plankastöðunnitvisvar sinnum í eina mínútu.
(35 kaloríur)
7Náðu í tvær dósir (súpudós, bakaðar baunir,gular baunir eða annað) og notaðu þærsem lóð. Teygðu hendurnar aftur fyrir haus,
svo að olgnbogarnir séu hjá eyrunum, og lyftu
dósunum upp og niður í eina mínutu. Endurtaktu
þetta þrisvar. (17 kaloríur)
TILVALIÐ ER AÐ TAKA PLANK-
ANN Í AUGLÝSINGAHLÉIFÓTSVEIFLUR YFIR
SJÓNVARPINU ERU MÁLIÐ
ge
iri
@
m
on
ito
r.i
s
Mílanó er full
af frökkum
Þessa vikuna er tískuborgin
Mílanó yfirfull af tískuunnend-
um, fatahönnuðum og herra-
módelum á tískuviku herra. Það
er sérstakur andi yfir Mílanó á
þessum tíma og finnur maður
hreinlega tískuilminn leika um
nasirnar.
Vikan er til þess ætluð að sýna
okkur hvað fatahönnuðir ætla að
matreiða fyrir okkur á komandi
vetri og alveg fram á vetur 2012.
Það er alltaf hægt að pikka út
ákveðna hluti og notfæra sér þá,
sérstaklega hérna á Íslandi þar
sem er vetur átta
mánuði á ári, guð
hjálpi okkur.
Það er greinilegt
að frakkarnir
standa sína plikt
þannig að ekki
henda ullarfrakk-
anum.
Burberry
Prorsum, var
með skemmtilega útgáfu af
frakkanum og henti í eitt stykki
rauðköflóttan sem er frekar
áberandi og er algjörlega fyrir þá
sem hafa hreðjar.
Gucci með
Fridu Giannini í
fararbroddi tók
frakkann aðeins
lengra með síð-
um skinnfrakka.
Gucci hefur
verið þekkt fyrir
mikinn glamúr
og sýning þeirra
fyrir næsta vetur var engin und-
antekning. Mick Jagger myndi
líklega drepa fyrir
að klæðast þessu
skrímsli.
Herratískan er
að mýkjast og
orðið „Androg-
yny“ heyrist
mikið núna en
það er samheiti
yfir konu og
karl. Þeir sem
hugrakkastir eru ættu að
pæla aðeins í þessu. Karlmenn
eiga ekki að vera hræddir við
að versla sér high fashion hluti
og ganga einstaka sinnum með
töskur og fylgihluti.
Ú
R
PÖ
N
KH
EI
M
U
M