Monitor - 20.01.2011, Page 12
Tegund:
Ævintýraleikur
PEGI merking: 7+
Útgefandi: Sony
Dómar: Gamespot
9 / IGN.com 9 /
Eurogamer.net 10
Little Big
Planet 2
kvikmyndir
Frumsýningar
helgarinnar
Á föstudaginn hefst frönsk kvikmyndahátíð í Háskólabíói og Borgarbíói
Akureyri. 10 myndir verða sýndar á hátíðinni sem stendur til 3. febrúar.
SÁ GRÆNI
Britt Reid (Rogen) erfir fjölmiðlaveldi föður síns þegar
sá síðarnefndi deyr við undarlegar aðstæður. Óvæntur
vinskapur myndast milli Britt og Kato (Chou) sem
reynist vera einn iðnasti og uppfinningasamasti
starfsmaður föður hans. Í fyrsta skipti í lífinu sjá þeir
tækifæri til að gera eitthvað sem skiptir máli, að berjast
gegn glæpum. Til að nálgast glæpamennina smella þeir
sér í hið fullkomna dulargervi, þeir þykjast sjálfir vera
glæpamenn.
Leikstjóri: Michel Gondry.
Aðalhlutverk: Seth Rogen, Jay Chou,
Christoph Waltz og Cameron Diaz.
Lengd: 118 mínútur.
Dómar: IMDB: 6,8 / Metacritic: 3,9 /
Rotten Tomatoes: 45%
Aldurstakmark: 12 ára.
Kvikmyndahús: Smárabíó, Laugarásbíó, Borgarbíó
Akureyri og Sambíóin Egilshöll.
Morning Glory
Leikstjóri: Roger Michell
Aðalhlutverk: Rachel McAdams,
Harrison Ford, Diane Keaton og Jeff
Goldblum.
Lengd: 102 mínútur.
Dómar: IMDB: 6,9 / Metacritic: 5,7 /
Rotten Tomatoes: 57%
Aldurstakmark: Leyfð öllum.
Kvikmyndahús: Smárabíó, Laugarásbíó,
Borgarbíó Akureyri og Sambíóin Egilshöll.
Flinkur sjónvarpsframleiðandi (McAdams) stendur
frammi fyrir þeirri áskorun að blása lífi í þreyttan
morgunþátt. Það reynist hægara sagt en gert þar sem
stjórnendurnir tveir, málglöð fréttakona (Keaton) og
þaulreyndur fréttamaður (Ford) eru í stríði hvort við
annað.
Margir eiga sér þann draum
blautastan að geta búið til sína
eigin tölvuleiki. Í vikunni kom út
leikur sem lætur þennan draum
rætast á einfaldan og skemmti-
legan máta. Við erum að tala um
leikinn LittleBigPlanet 2 á PlayStat-
ion 3, en hann er bæði vandaður
ævintýraleikur sem allt að fjórir
geta spilað í einu og einnig forrit
þar sem leikmenn geta hannað
sín eigin borð og tölvuleiki og deilt
þeim með öðrum í gegnum netið.
Nær endalaus leikur
LittleBigPlanet 2 inniheldur
frumlegan og fyndinn söguþráð
þar sem leikmenn stýra hinum
geðgóða Sackboy sem leiðir
leikmenn í gegnum fleiri en 20
borð sem staðsett eru í 6 mismun-
andi heimum. Borð leiksins eru
fjölbreytt og sýna leikmönnum
alla þá möguleika sem síðar er
hægt að nota við hönnun borða
og leikja. Flest borðin ganga út á
að hoppa og skoppa um, sveifla
sér á milli staða og afgreiða hin
ýmsu illmenni. Þegar leikmenn eru
svo búnir með söguþráðinn þarf
enginn að örvænta því á netinu
eru meira en 3 milljónir borða sem
leikmenn hafa búið til, en með
einföldum aðgerðum er hægt að
hlaða þeim niður og spila. Það má
því segja að leikurinn sé endalaus.
Fyndinn og fjörugur
Hönnunarhlutinn hefur verið
tekinn algjörlega í gegn og skartar
tækjum og tólum sem eru mun
auðveldari í meðförum en áður
og er tiltölulega einfalt að búa til
ný borð og
leikjagerðir.
Allt sem þarf
er smá þolin-
mæði og gott
ímyndunar-
afl. Þannig að
þeir sem hafa gaman af fyndnum
og fjörugum ævintýraleikjum og
vilja eiga möguleika á að búa til
eigin borð og deila þeim með öðr-
um leikmönnum um allan heim
ættu að tékka á LittleBigPlanet 2,
en Sackboy eða Sekkurinn snýr hér
aftur sterkari en nokkru sinni fyrr.
Ólafur Þór Jóelsson
Sekkurinn snýr aftur
TÖ LV U L E I K U R
Tangled
(Ævintýralegur flótti)
Leikstjóri: Nathan Greno og Byron
Howard.
Leikraddir: Mandy Moore, Zachary Levy
og fleiri.
Lengd: 100 mínútur.
Dómar: IMDB: 8,1 / Metacritic: 7,1 /
Rotten Tomatoes: 88%
Aldurstakmark: Leyfð öllum.
Kvikmyndahús: Sambíóin.
Rapunzel prinsessu er rænt úr höllinni sinni af hinni
göldróttu Gothel og læst í leynilegum turni. Einn daginn
kemur þorparinn Flynn Rider að turninum og heillast af
Rapunzel og þau gera samning. Nú á hún fyrir höndum
sér mest spennandi ferðalag lífs síns.
12 Monitor FIM. 20. JANÚAR 2011
Orkudrykkir eru ekki ætlaðir
börnum yngri en 15 ára.
Green Hornet