Monitor - 20.01.2011, Qupperneq 14
Kvikmynd Get horft
endalaust á Old Boy.
Tvímælalaust með
betri myndum síðasta
áratugs. Inniheldur eitt
ótrúlegasta bardagaatriði sem ég hef
séð. Oh Dae-Su gefst ekki upp. Ótrúleg
saga.
Þáttur It‘s Always
Sunny In Philadelphia
koma mér alltaf í gott
skap. Að fylgjast með
þeim skemma fyrir
sjálfum sér fær mig alltaf til að hlæja.
Dayman FTW.
Bók Þegar mér finnst
ég vera fastur les ég On
The Road. Þessi bók var
valdur þess að ég ákvað
að ferðast um Evrópu
fyrir nokkrum árum.
Plata Moderat með hljómsveitinni
Moderat sem mér var bent á
nýlega. Platan hefur eiginlega ekki
farið úr spilaranum síðan.
Vefsíða Þegar mig
vantar innblástur er
Ffffound.com málið.
Annars hef ég líka verið
að lulla yfir Slembing-
ur.org undanfarið. Svo stendur
Gogoyoko.com alltaf
fyrir sínu.
Staður Gamla Vínhúsið
eða Hansen eins og
innfæddir Hafnfirðingar
kalla hann. Cheers
Hafnarfjarðar. Maður
hefur nú eytt
ófáum fimmtu-
dögunum þar
sem enda oft í
skrautlegum
gönguferðum
heim.
14 Monitor FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2011
Síðast en ekki síst
» Magnús Gröndal, söngvari We Made God, fílar:
LOKAPRÓFIÐ
fílófaxið
OPNUN
Listasafn Reykjavíkur
17:00 Þrjár sýningar verða opnaðarí safninu en sú stærsta er
sýningin Án áfangastaðar þar sem fjöldi
listamanna sýnir verk sem varpa ljósi á
ferðaþrána og upplifun ferðalangsins. Einnig
verða opnaðar sýningarnar Hops Hopsi og
Erró sýning.
KVIKMYNDA-
TÓNLISTARVEISLA
Háskólabíó
19:30 Sinfóníuhljómsveit Íslandsleikur tónlist úr kvikmynd-
um á borð við James Bond, Godfather, Psycho
og Planet Of The Apes. Auk þess verður
flutt verkið Popcorn Superhet Receiver eftir
Johnny Grenwood úr Radiohead sem var
notað í kvikmyndinni There Will Be Blood.
Miðaverð er 3.900 krónur.
RANDOM LUNACY
Bíó Paradís
20:00 Heimildarmyndin RandomLunacy verður sýnd en um
er að ræða ótrúlega áhugaverða mynd um
Neutrino-fjölskylduna. Í tuttugu ár tóku þau
upp óvenjulegt líf sitt þar sem þau ferðuðust
um heiminn í hjólhýsi sínu og reyndu að lifa
utan samfélagsins.
ÚTGÁFUTÓNLEIKAR
FERLEGHEITA
Tjarnarbíó
21:00 Hljómsveitin Ferlegheitgaf nýlega út sína fyrstu
breiðskífu, You Can Be As Bad As You Can Be
Good, og fagnar útkomunni með tónleikum
þar sem platan verður leikin í heild sinni.
Miðaverð er 1.500 krónur.
TÓNLEIKAR
Ground Zero, Ingólfstorgi
21:00 Hljómsveitin 1860 spilarfrumsamda folk-popp tónlist
í kosningamiðstöð Röskvu. Frítt inn.
fimmtud20jan
| 20. janúar 2011 |
skólinn
BLÚSTÓNLEIKAR
Café Rósenberg
21:00 Elvar Örn Friðriksson ásamthljómsveit heldur blústón-
leika. Aðallega verða spiluð þekkt blúslög
eftir þekkta blúsara heimsins en einnig
verða á boðstólnum nokkur frumsamin.
Aðgangseyrir er 1500 krónur.
ÚTGÁFUTÓNLEIKAR
ÓSKABARNS ÞJÓÐARINNAR
Risið
23:00 Rapparinn Ramses gafnýverið út plötuna Óskabarn
þjóðarinnar. Núna er komið að því að
fagna þeim merka áfanga. Ramses lofar
stórskemmtilegum tónleikum en honum til
aðstoðar verður föngulegur hópur tónlistar-
manna. Aðgangseyrir er 500 krónur en mæti
sex stelpur saman í hóp fá þær
frítt inn.
föstudag21jan
VALKYRJAN
Hitt húsið
12:00 Hátíðin Valkyrjan verðurhaldin í þriðja sinn í Hinu
húsinu og er opin öllum stelpum á aldrinum
16-25 ára. Markmið Valkyrjunnar er að varpa
ljósi á og fagna fjölbreytileika kvenna og
vinna gegn staðalímyndum. Skráning fer
fram á vefsíðu Hins hússins og er frítt inn.
FATAMARKAÐUR
Tryggvagata 4-6
14:00 Súpersnitzel glimmer-freyði-frábæri fatamarkaður
Vökustelpna og vinkvenna þeirra verður
haldinn í kosningamiðstöð Vöku í húsinu þar
sem hárgreiðslustofan Rauðhetta&Úlfurinn
var einu sinni. Boðið verður upp á kaffi og
kökur ásamt ljúfum gítartónum.
laugarda22jan
„Trúnó hefur tekið upp á því að sýna leiki íslenska liðsins beint í
bleikum diskóljósum staðarins og bjóða upp á bláan bjór á meðan
á sýningum stendur,“ segir Birna Hrönn Björnsdóttir, einn rekandi
diskóbarsins Trúnó, en mikil stemning hefur verið þar upp á síðkastið
á meðan á leikjum í HM stendur. „Aðdáendum býðst einnig að kaupa
rauðan bjór á meðan liðið spilar í varabúningum,“ segir Birna og
bjórinn mun því alltaf vera í takti við tilefnið. Birna fæst hins vegar
ekki til að gefa upp nákvæmlega hvernig þessum kynngimagnaða lit
er náð fram. „Það eru galdrar,“ segir hún.
Litaði bjórinn er til sölu alltaf á meðan á leikjum stendur en á milli
klukkan 16 og 20 eru svo svokallaðir hamingjusamir klukkutímar og
ýmis góð tilboð í boði.
Blár og rauður HM-bjór