Monitor - 27.01.2011, Page 6
6 Monitor FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2011
Ekki farinn að þjálfa dótturina
Haukur Ingi Guðnason knattspyrnumaður tók tvisvar þátt í Gettu betur
á meðan hann var í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Hann telur litla hættu
á því að maður læri yfir sig í undirbúningnum.
Er mikilvægt að vera keppnismaður til að taka þátt í Gettu betur? „Já, ætli það ekki. Ég
keppti fyrir Fjölbrautaskóla Suðurnesja og það hafði ekki verið mikið lagt í keppnina fram að
því. Við ætluðum okkur að sigra og það skipti máli. Þá lagði maður meira á sig, las meira og
jók líkurnar á því að maður gæti unnið.“
Lærir maður fleira en bara staðreyndir á því að taka þátt í Gettu betur? „Maður les auðvit-
að mjög mikið, bæði skáldsögur og svo lærir maður utan af ýmsa hluti eins og höfuðborgir og
svo framvegis. En maður lærir líka aga og lærir að stjórna stressi og spennu. Það er ekki nóg
að vita svörin, þú þarft að geta komið því frá þér í útvarpi og sjónvarpi. Mörg lið hafa einmitt
farið illa út úr því að vera of spennt, sérstaklega þegar komið er í sjónvarpið.“
Getur maður ekki lært yfir sig? „Það held ég nú ekki. Eina hættan er kannski að maður láti
heimalærdóminn sitja á hakanum.“
Nú eignaðist þú dóttur á síðasta ári, er hún farin að sýna fram á einhverja hæfileika á
þessu sviði? „Nei, hún er ekki búin að svara neinni hraðaspurningu rétt ennþá. En hún er nú
bara tæplega sjö mánaða.“
Sigurvegarar frá upphafi
1986 Fjölbrautaskóli Suðurlands
1987 Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
1988 Menntaskólinn í Reykjavík
1989 Menntaskólinn í Kópavogi
1990 Menntaskólinn við Sund
1991 Menntaskólinn á Akureyri
1992 Menntaskólinn á Akureyri
1993 Menntaskólinn í Reykjavík
1994 Menntaskólinn í Reykjavík
1995 Menntaskólinn í Reykjavík
1996 Menntaskólinn í Reykjavík
1997 Menntaskólinn í Reykjavík
1998 Menntaskólinn í Reykjavík
1999 Menntaskólinn í Reykjavík
2000 Menntaskólinn í Reykjavík
2001 Menntaskólinn í Reykjavík
2002 Menntaskólinn í Reykjavík
2003 Menntaskólinn í Reykjavík
2004 Verzlunarskóli Íslands
2005 Borgarholtsskóli
2006 Menntaskólinn á Akureyri
2007 Menntaskólinn í Reykjavík
2008 Menntaskólinn í Reykjavík
Menntaskólinn í Reykjavík
Menntaskólinn í Reykjavík
Spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur, hefst í næstu viku og sitja
keppendur eflaust sveittir yfir bókunum þessa dagana. Ýmsir kunnir aðilar
hafa alið manninn í Gettu betur. Monitor hafði upp á nokkrum þeirra.
ÞAU GÁTU BETUR
Anna Pála Sverrisdóttir keppti fyrir hönd MH í Gettu betur á
sínum tíma. Í dag er hún lögfræðingur og starfar hjá Lána-
sjóði íslenskra námsmanna en hún hefur einnig látið að sér
kveða í stjórnmálum og setið á Alþingi sem varaþingmaður.
Hún segist ekki muna allt sem hún les en þó þykir einstaka
fjölskyldumeðlimum stafa ógn af henni þegar kemur að
spurningaspilum. Hún vill sjá fleiri stelpur í Gettu betur.
Hefur þessi reynsla hjálpað þér í því sem þú hefur tekið þér
fyrir hendur? „Já, á margan hátt. Þessi reynsla eflir meðal ann-
ars sjálfstraustið. Það þarf nokkuð mikið til og maður leggur
mikið á sig í þessum undirbúningi og er undir mikilli pressu.“
Manstu allt sem þú lest? „Nei, alls ekki. Þetta er spurning
um að vera í þjálfun, í rauninni svipað og með líkamann. En ég
er líklegri til að muna það sem ég les ef ég hef einhverja sögu
á bakvið staðreyndina, til dæmis persónulega sögu einhvers
frægs nafns sem ég þarf að muna. Það er því sniðugt að ræða
aðeins um það sem maður er að reyna að læra utan af.“
Hefur þessi bakgrunnur einhvern tímann flækst fyrir þér?
„Já, ég lenti í því í jólaboði að vera eiginlega bannað að vera
með í spurningaspili og var látin vera dómari í staðinn svo ég
myndi ekki vinna. Það gerðist reyndar líka einu sinni, þegar ég
var varaþingmaður, að ég og Þráinn Bertelsson rústuðum öðr-
um þingmönnum þrisvar í röð í spurningaleiknum Kollgátu.“
Ertu með einhver góð ráð til keppenda? „Já, ekki síst til
stelpna sem að eru í liðum eða langar til að komast í þau í
framtíðinni: Aldrei biðjast afsökunar á ykkur. Þjálfið ykkur og
gangið út frá að þið munið verða jafn góðar og þið getið verið.
Það eru fullt af stelpum sem hafa staðið sig frábærlega í Gettu
betur, þær þurfa bara að vera fleiri!“
Rústaði spurninga-
keppni á Alþingi
ANNA PÁLA HEFUR
LENT Í ÞVÍ AÐ VERA
BANNAÐ AÐ TAKA ÞÁTT
Í SPURNINGASPILUM
Kemur sér vel
þegar maður vill
virka klár
Hafsteinn Gunnar Hauksson fréttamaður á Stöð
2 tók þátt í Gettu betur þegar hann var í Verslun-
arskóla Íslands. Hann segist vera viðræðuhæfur
um ótrúlegustu hluti eftir þá reynslu og að það
komi sér oft vel í fjölmiðlastarfinu.
Ertu ennþá í æfingu? Heldurðu að þú myndir
standa þig vel ef þú þyrftir að keppa aftur á
morgun? „Nei, ég er það ekki. Ég var aldrei neitt
sérstaklega sterkur keppandi og ég held ég hafi
ekki orðið neitt sterkari með árunum. Það er ýmis
konar þekking sem maður býr að en ég held ég
myndi ekki gera neinar rósir ef ég þyrfti að keppa
á móti þessum krökkum í dag.“
Er engin hætta á því að maður
hreinlega klári plássið í heilanum
þegar maður er að æfa fyrir svona
keppni? „Nei, ég hef nú meiri trú á
heilanum en svo að hann sé einhver
tölva með ákveðinn fjölda
gígabæta. Svo ég held maður
geti hlaðið ansi miklu í hann
áður en maður fer að gleyma
einhverju sem skiptir máli.“
Hefurðu bjargað þér úr
klípu með einhverju sem
þú lærðir fyrir Gettu betur?
„Það er aðallega þegar maður
vill virka klár. Þetta hefur oft
bjargað mér þegar maður er að
ræða við einhvern um bækur
eða kvikmyndir sem maður hefur
kannski ekki séð en hefur hugsanlega lesið um.
Þá getur maður virkað mjög fróður þótt það sé
engin innistæða fyrir því.“
Ertu með einhver góð ráð fyrir þá sem eru
að taka þátt? „Bara að skemmta sér vel.
Þetta er náttúrlega keppni og það er mikil
vinna sem liggur á bakvið þetta þannig
það er hætt við að maður gleymi því hvað
þetta er skemmtilegt. Þannig ekki hafa
of miklar áhyggjur og skemmtið ykkur
bara!“
HAUKUR SEGIR MÖRG LIÐ
HAFA FARIÐ ILLA ÚT ÚR
ÞVÍ AÐ VERA OF SPENNT
HAFSTEINN VIRKAR FRÓÐUR,
EN ER INNISTÆÐA FYRIR ÞVÍ?
Mynd/Árni Sæberg