SunnudagsMogginn - 07.08.2011, Síða 4
4 7. ágúst 2011
Múslimsk trú skiptist í margar kvíslir en
aðallega er skiptingin milli súnní- og sjíta-
múslima. Landfræðilega skiptast þessar
kvíslir einmitt í Írak. Múslimaríkin sem
eru vestan við Írak innihalda nánast ein-
göngu súnnímúslima en í ríkjunum austan
við Írak eru sjítar. Í Írak sjálfu eru sjítar í
meirihluta en minnihluti súnnímúslima
hefur engu að síður haft öll völd í landinu
frá stofnun ríkisins og þar til eftir innrás
Bandaríkjamanna árið 2003. Risinn aust-
an við Írak, Íran, er hins vegar nokkurs
konar höfuðland sjítamúslima. Margar
helgustu moskur sjíta eru einmitt í Írak.
Enda hefur Íran reynt með undirróðri að
ná áhrifum í Írak frá því elstu menn
muna. 1979 var mikilvægt ár í sögu
beggja landanna en þá kom klerkurinn
Ruhollah Khomeini aftur til Írans frá Par-
ís, sem leiðtogi íslömsku byltingarinnar.
Sama ár tók Saddam Hussein við völdum
í Írak af læriföður sínum, Ahmed Hassan
al-Bakr, og varð forseti landins. Ári
seinna, eða 1980, gerði Írak innrás í Íran
og þá hófst átta ára stríð þessara þjóða
sem kostaði líf yfir milljónar manna hjá
báðum þjóðum. Tveimur árum eftir lok
stríðsins, árið 1990, opnuðu þjóðirnar
sendiráð á nýjan leik hvor hjá annarri. Ír-
an fordæmdi engu að síður innrás Íraks í
Kúveit það ár og var, eins og mestallur
múslimaheimurinn, fylgjandi því að Írak
yrði hrakið á brott frá þessu litla olíu-
furstadæmi. Árið 2002 lýsti George Bush
Írak, Íran og Norður-Kóreu sem öxulveldi
hins illa og ári seinna réðust Bandaríkin
inn í Írak. Í framhaldinu upphófst flóð ír-
anskra njósnara og undirróðursmanna inn
í landið. Í fyrstu kosningum í Írak árið
2005 náðu sjítar í fyrsta skipti völdum í
landinu. Forsætisráðherra Íraks, Ibrahim
al-Jaafari, fór í fyrsta skipti í sögunni í op-
inbera heimsókn til Írans árið 2006. Árið
2008 fór forseti Írans í fyrsta skipti í þrjá
áratugi í opinbera heimsókn til Íraks.
Nánast allir helstu valdamenn sjíta, sem
nú ráða mestu í Írak, eru á einhvern hátt
tengdir Íran.
Samskiptasaga Írans og Íraks
Ibrahim al-Jaafari, fyrr-
verandi forsætisráð-
herra Íraks, varð fyrsti
forsætisráðherra
landsins til að fara í
opinbera heimsókn til
Írans, árið 2006.
D
avid Petraeus, yfirmaður CIA í
Bandaríkjunum, segir oft sögu frá
þeim tíma þegar hann var yf-
irhershöfðingi leiðangursins í
Írak. Sveitir hans höfðu um nokkurt skeið
aðstoðað íraska herinn í hörðum bardögum
við uppreisnarsveitir sjíta og á fundi um það
vandamál bárust Petraeus símaskilaboð. Í of-
análag kom það frá valdamiklum manni í
ríkisstjórn Íraks, þótt það væri frá írönskum
herforinga, Qassem Suleimani, yfirmanni
svokallaðra al-Quds-sveita sem eru sér-
sveitir sem telja um 15.000 manns og hafa
það verksvið að sinna hagsmunum Írans á
erlendri grundu. Al-Quds-sveitirnar heyra
ekki undir forseta landsins, Ahmadinejad,
heldur beint undir erkiklerkinn, ajatollann
Ali Khameini. Skilaboðin hljóðuðu svona:
„Petraeus hershöfðingi, þú ættir að vita að í
fyrsta lagi: Qassem Suleimani stjórnar stefnu
Írans í Írak, Líbanon, Gaza og Afganistan.
Núverandi sendiherra Írans í Írak er með-
limur al-Quds, rétt eins og verðandi sendi-
herra.“
David Petraeus veit, eins og aðrir í Írak, að
Suleimani er valdamesti maðurinn þar, þótt
hann sé Írani og búi í Íran. Þrátt fyrir að
meirihluti Íraka sé sjítar hafa súnnítar haldið
völdum í landinu frá stofnun ríkisins. Sjít-
arnir hafa í áratugi leitað ásjár hjá Írönum,
sem eru sjítar eins og þeir. Eftir innrás
Bandaríkjanna komust sjítar í fyrsta skipti til
valda með fyrstu lýðræðislegu kosningunum
í landinu. Suleimani er talinn hafa sterk
tengsl við alla hópa sjítanna.
„Hann er án nokkurs vafa valdamesti
maður Íraks,“ segir fyrrverandi öryggis-
málaráðherra landsins, Mowaffak al-Rubaie.
„Það er ekkert gert í þessu landi án hans.“
Engu að síður hafa fáir þorað að tala um
mátt hans og megin þar til núna, þótt hann
hafi haldið um stjórnartaumana frá því
fyrsta ríkisstjórn sjíta tók við völdum.
Frá því íslamska byltingin rændi völdum í
Íran hefur Suleimani klifrað hægt og örugg-
lega upp valdastigann í landi sínu. Árið
2002, rétt fyrir innrás Bandaríkjamanna í
Írak, var hann orðinn yfirmaður al-Quds,
sem eru mestu elítusveitir byltingarhers Íran
og heyra, eins og áður sagði, beint undir
erkiklerkinn.
Suleimani hefur einu sinni komið í heim-
sókn til Íraks, árið 2006, og fór á milli
valdamanna landsins án lífvarða og kom sér
síðan aftur heim án þess að Bandaríkjamenn
fréttu af því fyrr en eftir á. Það gerði Banda-
ríkjamenn eðlilega æfa enda er talið að um
fjórðungur fallinna bandarískra hermanna
hafi fallið í bardögum við sjíta sem er stjórn-
að frá Íran, ergo Suleimani. Bandaríkjamenn
hafa lagt áherslu á að trufla og jafnvel rjúfa
tengslin á milli Suleimani og valdamanna í
Írak með litlum sem engum árangri. SAS-
sveitir Breta náðu háttsettum foringja Hez-
bollah á sitt vald í landinu (Hezbollah er
undir óbeinni stjórn Suleimani) og svo er
talið að bandarískar sveitir hafi náð tveimur
nokkuð háttsettum foringjum al-Quds á sitt
vald fyrir skömmu, en annars hefur lítið
gengið að trufla stjórn Suleimani í Írak.
„Hann er Keyser Söze,“ segir bandarískur
embættismaður og vísar þar til hins dul-
arfulla glæpamanns bíómyndarinnar The
Usual Suspects, sem aldrei sást og hvergi
náðist til, en stjórnaði af botnlausri grimmd
og miskunnarleysi. Suleimani hefur verið
lýst af andstæðingum sínum sem mjög hæfi-
leikaríkum kúgara og harðstjóra.
Múslímskir nágrannar Íraks í vestri, þar
sem súnnítar ráða ríkjum, telja að stefna Ír-
ans í landinu sé að halda Írak veikburða og
háðu sér. Ríkin fyrir vestan Írak þar sem
súnnítar ráða hafa flest verið í andstöðu við
Íran utan Sýrlands og jafnvel Líbanons. Íran
styrkti minnihluta sjíta í Líbanon og hern-
aðararm þeirra Hizbollah gríðarlega í borg-
arastyrjöldinni sem þar geisaði. Einnig hefur
Íran fjárfest mikið í súnnítaforystunni í Sýr-
landi og skiptir það Íran miklu máli að Bas-
har al-Assad haldi völdum þar, enda eina
súnnítaríkið sem er þeim vinveitt. Það er
óopinbert leyndarmál að Sádi-Arabar eiga
erfitt með að fyrirgefa Bandaríkjunum inn-
rásina í Írak og stefnu þeirra í landinu fram
til þessa, enda höfðu Sádi-Arabar og lönd
múslima í vestri þónokkur áhrif í Írak fram
til ársins 2003 en nánast engin í dag. Íran
hefur eignast nýtt áhrifasvæði.
Íranski
hershöfð-
inginn
Valdamesti
maðurinn í Írak
er yfirmaður ír-
anskra sérsveita
Erkiklerkurinn Ali Khamenei er æðsti valdamaður Írans, undir hann heyra al-Qud-sveitir Suleimani.
Vikuspegill
Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is
Fáar myndir eru til af Suleimani sem fer leynt.
Það er gjarnan sagt
um innrás Banda-
ríkjamanna í Írak að í
því stríði standi tveir
sigurvegarar uppi;
Halliburton og Íran.
Halliburton er einka-
fyrirtæki sem hefur
grætt gríðarlegar upp-
hæðir á stríðsrekstr-
inum og Íran, sem
þrátt fyrir dýran
njósnarekstur í Írak
hafði engin völd í
landinu fram að inn-
rásinni, er í dag talið
hafa alla þræði í
hendi sér.
Íran ræður
í Írak