Monitor - 10.02.2011, Blaðsíða 4
Úrslitin í Söngva-
keppni Sjónvarps-
ins fara fram um
helgina. Monitor
fékk þrjá Eurovision-
spaka aðila til að tjá
sig um lögin.
Skandall ef
Eldgos vinnur
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir, blaðamaður,
er forfallinn Eurovision-aðdáandi og hefur
tvisvar sinnum farið út að horfa á keppnina,
fyrst til Aþenu 2006 og svo aftur til Osló í
fyrra. Hún segir að þjóðin geti verið mjög
sátt við sitt ef Jóhanna Guðrún eða vinir
Sjonna Brink fara til Düsseldorf en hún telur
þó að lag Jógvans sé nútímalegast og myndi
líklega vegna best. Hún segir hins vegar að
það yrði skandall ef Eldgos myndi sigra.
„Þetta lag er alltof
passívt fyrir Eurovision.“
„Það vinnur á en myndi ekki
henta á sviðinu í Düsseldorf.“
„Mér finnst hún náttúrulega frábær flytjandi
og lagið verður líka skemmtilegra eftir því
sem maður heyrir það oftar. Það minnir mig
samt svolítið á Nætur með Siggu Beinteins.
Hún væri náttúrulega frábær en hún þarf
sterkara lag til að fara aftur út finnst mér.“
„Mér finnst þetta lag bara hræðilegt. Það yrði
bara hræðilegur skandall ef við myndum
senda það.“
„Það er lagið sem mér finnst
að eigi að fara út. Hann er bara svo ótrúlega
sjarmerandi. Mér finnst lagið kannski ekki
alveg fullkomið en ég held að það sé hægt að
gera það mjög gott.“
„Magni ætti vel heima í Eurovision og ég
held hann myndi pottþétt vekja mikla
athygli. En ekki með þetta lag.“
„Þetta er rosalega
sætt lag og ég yrði ekkert
ósátt þótt það færi út. Þetta eru sætir
strákar og það væri gaman að sjá þá á sviðinu
og þeir myndu örugglega skemmta sér bráð-
vel í Düsseldorf. Ég yrði ekki hissa ef það yrði
fyrir valinu, en ég veit ekki hvort því myndi
vegna vel í keppninni.“
Skemmtilegasta
lagið ekki endilega
besta lagið
Arnar Eggert Thoroddsen, blaðamaður, er
einn mesti tónlistarspekúlant Íslands og
hefur skoðanir á flestu er við kemur tónlist.
Honum finnst lagið Eldgos skemmtilegasta
lagið en hann vill samt ekki meina að það sé
besta lagið. Bestu lögin séu Ef ég hefði vængi
í flutningi Halla Reynis og Ég lofa í flutningi
Jógvans. Hann segir jafnframt að hinn
vinalegi og alúðlegi Jógvan sé aðili sem væri
skemmtilegt að setjast með yfir bjór.
„Mjög gott lag. Trúbadúrataugar
Halla njóta sín vel í laginu, viðlagið er flott
og grípandi, flutningurinn látlaus og einfald-
ur. Spurningin er bara þessi, er þetta nógu
Evróvisjónlegt til að komast áfram?“
„Erna er frábær söngkona og bjargar því sem
bjargað verður hér. Lagið er nefnilega alls
ekki nógu sterkt, of sérkennalaus ballaða.
Það vantar fleiri toppa og meiri dramatík.“
„Svipað dæmi hérna. Stórkostleg söngkona
en fremur litlaus lagasmíð. En hver veit,
Jóhanna tók Is it True í hæstu hæðir hér
um árið, en það lag virtist hálf snautlegt í
undankeppninni.“
„Þetta lag er auðvitað algjör snilld. Sturluð
snilld. Fer viljandi marga hringi en svei
mér þá, maður er farinn að humma lagið af
krafti! Það er svo mikill Rammstein í þessari
þjóð.“
„Ég er ánægður með
Jógvan. Hann er svona gaur sem maður
væri til í að drekka bjór með, ef ég gerði
slíkt, vinalegur og alúðlegur og það smitast
út í flutninginn. Lagið er ekta Evrólag, stórt
og mikilúðlegt, með hækkunum og öllu
draslinu. Og fantavel flutt af Jógvan.“
„Magni er eins og stúlkurnar sem ég hef rætt
um, söngvari í heimsklassa en þetta lag er
ósköp flatt og leiðinlegt. Mjög formúlukennt
og eiginlega hálf þunglamalegt. Magni gerir
sitt besta þó.“
„Glaðlynt lag
og skemmtilegt og það virkar,
alveg eins og Rennibrautin hans Sjonna
í fyrra. Það er „ligeglad“ danskur keimur
yfir því, nett „Vaudeville“ líka og það er
ofsagrípandi. Strákarnir fluttu þetta líka
mjög skemmtilega.“
Vildi sjá meiri
elektróníska tónlist
Haffi Haff fangaði fyrst almennilega athygli
Íslendinga þegar hann tók þátt í Söngva-
keppni Sjónvarpsins með laginu Wiggle
Wiggle Song árið 2008. Hann segir að þótt
lögin sem keppi núna séu falleg og lista-
mennirnir góðir þá skilji hann ekki hvers
vegna Íslendingar sendi ekki eitthvað nýtt,
eins og til dæmis elektróníska tónlist. „Við
gætum sigrað heiminn ef við gerðum það,“
segir hann. Persónulega er hann hrifnastur
af lögunum Aftur heim og Ég lofa en hann
grunar samt að Jóhanna Guðrún ætti líklega
bestu möguleikana á að ná langt í Düsseldorf.
„Þetta er fullkomlega íslenskt lag og frábært
fyrir það. Það væri frábært á Þjóðhátíð en ég
er ekki viss um að það myndi standa nógu
mikið upp úr í Eurovision. Maður veit samt
aldrei.“
„Ég elska hana og hún er stórkostlegur
söngvari og frábær manneskja. Og lagið er
líka mjög fallegt. Ég hef samt örlitlar áhyggjur
af því að það sé aðeins of rólegt. Hún flytur
það samt rosalega vel.“
„Lagið er mjög
fallegt og Jóhanna er auðvitað
frábær listamaður. Ég kann mjög vel að meta
hana. Ég er samt ekki viss hvers vegna hún
vildi snúa aftur svona snemma. Hún stóð
sig svo frábærlega síðast að hún þarf ekki
að vinna þessa keppni. En kannski mun það
hjálpa að fólk man eftir henni.“
„Það er virkilega áhugavert! Það er svona
yfir-dramatískt og ég verð að viðurkenna að
ég hef svolítið gaman af því. En viljum við
virkilega vera að rifja upp þetta eldgos sem
setti samgöngur heillar heimsálfu í rúst? Ég
er alls ekki viss um það.“
„Minnir mig á Killers
og Coldplay og það er mjög
áhrifaríkt. Ég held að hann langi virkilega
mikið til að taka þátt í þessari keppni og er
tilbúinn að leggja sig allan fram til þess. Þetta
er mjög gott lag fyrir hann. Það er kraftmikið
en líka ljúft í upphafi, svo honum tekst að
tengja við áhorfendur. Þetta er algerlega einn
af aðalkeppendunum.“
„Ég fíla Magna mjög mikið og það hvernig
hann breyttist svona mikið þarna fyrir nokkr-
um árum. En miðað við hvað lagið er dram-
atískt þá finnst mér vanta meira „show“. Ég
vildi helst sjá hann alveg brjálaðan í hlýrabol
og sannfæra okkur að hann „trúi á betra líf“.
Hann þarf að fara alla leið með svona lag, þá
nær hann til áhorfenda.“
Hver fer til Þýskalands?
Ef ég hefði vængi Halli Reynis
Ástin mín eina Erna Hrönn Ólafsdóttir
Nótt Jóhanna Guðrún
Eldgos Matti Matt og Erla Björg Káradóttir
Ég lofa Jógvan Hansen
Ég trúi á betra líf Magni
Aftur Heim Vinir Sjonna Brink
Lag
1
Lag
2
Lag
3
Lag
4
Lag
5
Lag
6
Lag
7
Uppá
hald
!
Uppá
hald
!
Uppá
hald
!
Líklegast til
árangurs úti
!
Líklegast til
árangurs úti
!Líklegasti
sigur
vegar
inn
!
Líklegastisigurvegarinn
! Líklegasti
sigur
vegar
inn
!
Líkle
gast t
il
árang
urs ú
ti
!
Uppá
hald
!
Uppá
hald
!
4 Monitor FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2011
„Þarna eru komnir
frábærir listamenn sem við elskum öll
og við söknum auðvitað eins. Það er erfitt að
vita hvort fólk kjósi lagið í samúðarskyni eða
fyrir lagið sjálft. Hver sem útkoman verður þá
finnst mér þetta frábært lag. Ég fæ gæsahúð
þegar ég heyri það og það snertir mig mikið.“