Monitor - 03.03.2011, Blaðsíða 3
Íviðtali við Monitor sagði Ford-stúlkan Kolbrún Ýrfrá ótrúlegu atviki sem átti sér stað þegar hún var
fjórtán ára að sýna á Iceland Fashion Week. Hönnuður á
sýningunni bað hana
vinsamlegast að fara
heim þar sem hún
væri of feit til að sýna
fötin. Slíkar athuga-
semdir og skilaboð
til ungra kvenna eru
hræðileg og virðist
sem nú séu kröfurnar
orðnar ómögulegar
konum.
Forsíðu þessa blaðsprýðir gullfalleg
19 ára stúlka sem
var kjörin Ungfrú
Reykjavík um helgina.
Sigríður Dagbjört hefur
svipaða reynslu af
tískubransanum og
Kolbrún Ýr og lenti
í því að vera sögð með of stórar mjaðmir til að gerast
fyrirsæta þegar hún var fimmtán ára. „Sem betur fer tók
ég það ekkert inn á mig,“ segir Sigríður Dagbjört í viðtalinu
og bendir á alvarleika
slíkrar athugasemdar í
garð unglingsstúlku.
Eitt eftirsóttastamódel í heimi er
karlmaðurinn Andrej
Pejic sem sýnir þó
konuföt á hátísku-
vikum víðsvegar um
heim. Pejic er fríður 19
ára drengur með sítt
ljóst hár sem fær hvern
tískuhönnuð til að
bráðna. Ljóshærð vera
með há kinnbein og
strákslegan vöxt virðist
vera hin fullkomna
kvenímynd á tískupall-
inum. Er ekki eitthvað
bogið við það?
Ban-Thai er
lítill og kósí
staður efst
á Laugaveg-
inum, rétt
fyrir ofan
Devitos. Þar
er boðið upp á
hrikalega góðan
tælenskan mat sem er eldaður alveg
frá grunni. Hvort sem þú ert mikið
fyrir asískan mat eða ekki, þá er
óhætt að mæla með Banthai fyrir
flesta.
Justin Bieber:
Never Say Never
er skemmtileg
mynd. Án
gríns! Um leið
og Bieberinn
er dáðasti
maður heims er
hann líklega sá
hataðasti en það er
virkilega athyglisvert að
skyggnast inn í lífið hans og sjá alla
geðveikina í kringum hann.
Gufan í Vestur-
bæjarlauginni er himnaríki á jörð
og þaðan stíga allir út endurfæddir.
Frábært að fara þangað til að slaka á
og hlaða batteríin
og gott ef þetta
er ekki besta
þynnku-
meðal í
heimi líka.
Daníel Ágúst
elskar að
fara í gufu. Það
hljóta að vera
toppmeðmæli.
Monitor
mælir með
3
Ritstjóri: Björn Bragi Arnarsson (bjornbragi@monitor.is) Umbrot og hönnun: George Kristófer Young (george@mbl.is)
Blaðamenn: Gunnþórunn Jónsdóttir (gunnthorunn@monitor.is), Sigyn Jónsdóttir (sigyn@monitor.is)
Auglýsingar: Jón Ragnar Jónsson (jonragnar@monitor.is) Forsíða: Golli Myndvinnsla: Hallmar F. Þorvaldsson
Útgefandi: Árvakur Prentun: Landsprent Sími: 569-1136 Netfang: monitor@monitor.is
FIMMTUDAGUR 3. MARS 2011 Monitor
Feitast í blaðinu
Útlitsgallar fræga
fólksins. Allt frá
skrýtnum tásum á
Ashton Kut-
cher. 4
Góða ferð er nýút-
komin útivistarbók
sem gerir verstu
innipúka að
fjallagörpum.
Háskólatískan.
Stíllinn kíkti í HÍ og
yfirheyrði nokkrar
flottar týpur.
7
Elma Lísa í Loka-
prófinu. Vissir þú
að hún er margfald-
ur meistari í
freestyle? 14
Sigríður Dagbjört
í viðtali. Hún er
Ungfrú Reykjavík
og elskar
tómatsósu. 11
6
FYRIR HEILSUNA
fyrst&fremst
Julian Assange hlustar á Vicky. Það segja heimildarmenn Monitor að minnsta kosti.
Hljómsveitin Vicky stofnaði nýverið
skemmtilegt myndbandsblogg á
YouTube sem ber nafnið Vicky
Leaks. Glöggir lesendur sjá eflaust
kímnina við nafnið hljómar örlítið
kunnuglega. „Markmiðið upphaf-
lega var að fá svipaða athygli og
Wiki Leaks,“ segir Eygló Scheving,
söngkona sveitarinnar um bloggið.
„Það er núna búið að fá 208 áhorf
sem kemst alveg nálægt íbúafjölda
á Flateyri svo þetta er allt á réttri
leið.“
Plata á leiðinni
Í fyrsta blogginu segja hljómsveit-
armeðlimir frá næstu vikum hjá
Vicky en í mánuðinum hyggjast
þau taka upp aðra breiðskífu sína.
„Við erum núna að byrja að taka
upp demó upptökur af plötunni til
að vinna með,“ segja þau og liggur
leiðin svo í Tankinn á Flateyri að
taka upp nýju lögin. „Við fáum
hjálp frá Bandaríska vini okkar
Jason Allen sem rekur The Blasting
Room Studio í Colorado svo nýja
platan mun líklega sparka í rassinn
á gömlu lögunum,“ fullyrðir Eygló
spennt fyrir nýju plötunni.
Björgunarsveitin í uppáhaldi
Eygló segir hljómsveitina ætla að
koma við hjá Björgunarsveitinni
Dagrenningu á Hólmavík á leiðinni
til Flateyrar. „Við þurfum að þakka
þeim lífsbjörgina,“ útskýrir hún en
síðast þegar Vicky hélt til Flateyrar
komust þau í hann krappann uppi
á heiði. „Við festum bílinn uppi á
Steingrímsfjarðarheiði um miðja
nótt þegar við vorum að taka upp
fyrstu plötuna og þeir komu og
sóttu okkur,“ segir Eygló sem vill
launa þeim greiðann. „Það er við
hæfi að gefa þeim allavega nokkur
eintök af plötunni.“
Gigga og hljóðblanda í
London
Þegar upptökum er lokið stefnir
Vicky til London til að hljóðblanda
plötuna og spila á nokkrum tónleik-
um svo það er aldeilis ferðahugur í
sveitinni. „Síðan þurf-
um við bara að skella
plötunni í fjölföldun
og gefa hana út,“ segir
Eygló sem er að mati
hljómsveitarmeðlima
með mestu full-
komnunarárátt-
una af þeim.
Það er mikið um að vera hjá hljómsveitinni
Vicky þessa dagana. Upptökur á nýrri plötu
hefjast innan skamms og hljómsveitin stofnaði
nýverið myndbandsbloggið Vicky Leaks.
Í MALLANN
Í BÍÓ
Efst í huga Monitor
Karl í konufötum flottasta fyrirsætan?
Jón Jónsson
er illa haldinn af
Bieber fever...
27. febrúar kl. 22:46
Logi Geirsson
Ég er búinn að
reyna að skrifa
10 statusa en
ekki sáttur með
neinn, fyrr en þessi datt útúr
mér !
2. mars kl. 9:29
Vikan á...
Retro Stefson
Fan nr. 5000
will get a private
concert in his
living room, so
YOU BETTER RECOMMEND
THIS PAGE TO YOUR
FRIENDS! // 5Þúsundasti
aðdáandinn okkar mun fá
prívat tónleika heima í stofu!
27. febrúar kl. 19:56
Dr. Gunni
Iss piss,
mottumars, en
kannski maður
skelli sér þá í
tékk á meðan taðskegglingar
rambast með hýjungana.
2. mars kl. 11:08
SPURT OG SVARAÐ
Hvernig mynduð þið lýsa tónlistinni
ykkar í fimm orðum? Skemmtileg,
dramatísk, einlæg, öðruvísi og
frumleg.
Draumagiggið? Tónleikar með
Smashing Pumpkins, Queen,
Pantera og Kiss í Nevada-
eyðimörkinni. Eftir tónleikana
myndu Hell‘s Angels sjá um að
róta meðan við drekkum upp
allan Jack Daniels auglýsinga-
styrkinn í flugferð í Iron Maiden
flugvélinni.
Hvaða gosdrykk líkist Vicky mest?
Sínalco. Það er svo langt síðan við
gáfum út plötu að fólk kannast enn við
nafnið en man ekki hvernig við erum á
bragðið. Bráðum verður breyting hér
á og Vicky verður Coca-Cola í lok
árs 2011.
Er Orri lagður í einelti sem eini
strákurinn? Já, en ekki af því
að hann er eini strákurinn. Hann
er bara svo skrítinn greyið. Svo
er hann ekki með Facebook svo
það er auðvelt fyrir okkur að setja
eitthvað á netið sem hann kemst
aldrei að.
Vilja fá
jafnmikla
athygli og
WikiLeaks
FYNDNAR
STAÐREYNDIR
• Vicky deilir æfingahús-
næði með 50 manna
karlakór.
• Hljómsveitin hét
upphaflega Vicky
Pollard í höfuðið
á persónunni í
þáttunum Little
Britain.
• Stelpurnar í Vicky
ætluðu upphaflega
að stofna stelpu-
hljómsveitina Minx.
• Lotta bassaleikari er
sögð bakka betur í stæði
en The Stig.
• Orri trommuleikari kom
fram í 60 mínútum í
fyrra og talaði um „total
blackness outside“ með
Eyjafjallajökul í
bakgrunni.
OFURSKVÍSAN RIHANNA VIRÐIST
HOLDMIKIL VIÐ HLIÐINA Á ANDREJ
Egill Einarsson
Hvar keyra
menn sig í gang
à Akureyri í
dag? Er þetta
orðinn steindauður bær eða...
26. febrúar kl. 19:38