Monitor - 03.03.2011, Page 4
4 Monitor FIMMTUDAGUR 3. MARS 2011
Oft virðist sem fallega og fræga fólkið sé að
öllu leyti fullkomið þegar að útlitinu kemur.
Við getum þó huggað okkur við að samofnar
tær, útstæð eyru og mislangir fætur eru líka
til í Hollywood.
Líkamlegir
gallar
stjarnanna
MEGAN FOX
Skrítnir þumlar
Hin sjóðheita Megan Fox er með svo-
kallað brachydactyly sem þýðist úr
grísku sem stuttir fingur en ástandið
lýsir sér hjá henni í skrítnum þumal-
fingrum. Þeir eru stubbalegir en
þetta lýti hefur engin áhrif á notkun
fingranna svo Megan lifir eðlilegu lífi
þrátt fyrir erfðagallann. Mögulega
ekki svo eðlilegu lífi þar sem hún er
Hollywood-stjarna.
ASHTON KUTCHER
Samofnar tær
Samofnar tær leikarans Ashtons
Kutcher hafa oft fengið að vera í
sviðsljósinu en hann er ekki feiminn
við að sýna þær. Tvær tær hans eru
fastar saman næstum alla leið upp
að nöglum. Leikarinn Dan Aykroyd er
einnig með samofnar tær.
RIVERS CUOMO
Mislangir fætur
Forsprakki hljómsveitarinnar Weezer
fæddist með annan fótinn fimm
sentimetrum styttri en hinn. Cuomo
lét laga mismuninn á fullorðinsárun-
um með aðgerð þar sem brjóta þurfti
annan fótlegginn. Eftir aðgerðina
þurfti hann að ganga með spelkur í
margar vikur og láta teygja á öðrum
fótleggnum nokkrum sinnum á dag. VINCE VAUGHN
Stuttur þumall
Þegar Vince Vaughn var 17 ára missti
hann fremsta hluta þumalfingurs
hægri handar í bílslysi. Hann hefur
gert mikið grín að því að þumalputt-
inn líti nú út fyrir að vera eins og
limur með nögl á og er ekki hræddur
við að sýna líkindin.
BILLY CORGAN
Vínrauðir blettir
Smashing Pumpkins-söngvarinn
var fæddur með Klippel-Trenauney-
heilkenni sem lýsir sér í stórum
vínrauðum blettum í vinstri lófa hans.
Heilkennið hefur áhrif á blóðflæði
líkamans en það virðist ekki hafa
hindrað Corgan í að syngja og spila
á gítar.
JOAQUIN PHOENIX
Laglegt ör
Algengur misskilningur er að örið í
andliti Joaquins Phoenix sé vegna
þess að hann hafi verið holgóma
og látið laga það en í raun fæddist
hann svona. Reyndar er talið að hann
hafi verið næstum því holgóma sem
fóstur og því hafi örið komið meðan á
meðgöngunni stóð.
JENNIFER GARNER
Stór lítil tá
Það kemur kannski á óvart að
eitthvað sé að hinni íðilfögru Jennifer
Garner en hún er með fremur krútt-
legan galla. Garner er með svokallað
brachymetatarsia sem lýsir sér hjá
henni í því að litla táin fer yfir hinar
tærnar.
GERARD BUTLER
Útstætt eyra
Skoska kyntáknið Gerald Butler
komst að því þegar hann krúnurakaði
sig fyrir hlutverk í kvikmynd að annað
eyra hans stendur töluvert meira
út en hitt. Þegar Butler var barn
þurfti hann að fara í aðgerð á hægra
eyranu og varð heyrnarlaus á því
eftir hana sem hafði einnig þau áhrif
að hægra eyrað stendur út. Butler
grínast mikið með að sminkur þurfi
ítrekað að líma annað eyra hans við
höfuðið fyrir tökur.
LILY ALLEN
Þrjár geirvörtur
Söngkonan breska er með þriðju
geirvörtuna á vinstra brjósti sínu
og hefur hún ekki verið feimin að
sýna hana. Geirvartan er eins og
stór frekna og hún skammast sín
ekkert fyrir hana enda eru fleiri
stjörnur með þriðju geirvörtuna, til
dæmis Mark Wahlberg og Carrie
Underwood.