Monitor - 03.03.2011, Page 8
8 Monitor FIMMTUDAGUR 3. MARS 2011
Sigríður Dagbjört Ásgeirsdóttir er nýkjörin Ungfrú
Reykjavík. Hún er skipulagðari en hnitakerfið og
hefur alltaf nóg fyrir stafni. Í vetur hefur Sigga, eins
og hún er kölluð, gegnt starfi formanns Nemenda-
mótsnefndar Versló sem setur upp söngleikinn fyrir
skólann. Í vor útskrifast hún úr menntaskóla ásamt
því að taka þátt í Ungfrú Ísland. Hún hefur fundið
fyrir aukinni athygli frá karlkyninu eftir krýninguna
enda sætasta stelpan í Reykjavík um þessar mundir.
Hvernig kom það til að þú ákvaðst að taka þátt í
Ungfrú Reykjavík? Æskuvinkona mín sem tók sjálf
þátt fyrir tveimur eða þremur árum skráði mig án
þess að ég vissi af. Svo þegar bréfin sem boðuðu í
prufur voru send út hringdi hún í mig og hélt ræðu til
að sannfæra mig um að taka þátt. Hún sagði að þetta
væri alveg málið fyrir mig og hvatti mig til að fara að
minnsta kosti í prufurnar.
Hvernig fóru prufurnar fram? Fyrst fengum við
svakalega langan spurningalista sem við þurftum að
svara og svo var tekið stutt viðtal við okkur. Stuttu
seinna fengum við að vita hvort við kæmumst áfram
í næstu umferð. Umsjónarmenn keppninnar náðu
reyndar ekki í mig svo ég hélt eiginlega að ég hefði
ekki komist áfram. Einhverra hluta vegna hringdi ég
til að athuga hvort það væri búið að tilkynna hverjir
kæmust áfram. Þá sögðu þau mér að ég hafi komist
í gegn og ætti að mæta daginn eftir í áframhaldandi
prufur. Ef ég hefði ekki hringt hefði ég líklega ekkert
tekið þátt í keppninni.
Hvað gerðir þú til að undirbúa þig fyrir keppnina?
Um miðjan janúar fékk ég að vita að ég væri komin
inn í keppnina og þá var allt á fullu í undirbúningi
Nemendamótsins svo ég hafði ekki mikinn tíma til að
hugsa um þetta. Ég breytti mataræðinu og var alltaf
með ávexti með mér til að borða yfir daginn. Auðvitað
leyfði ég mér að borða venjulegan mat í kvöldmat en
sleppti því að fara og fá mér að borða í Kringlunni í
hádeginu og svoleiðis. Ég borða líka aðeins of mikið
af hvítu hveiti vanalega svo ég minnkaði það.
Fannst þér samkeppnin hörð innan hópsins?
Eiginlega ekki. Mér fannst við allar svo jafnar og hver
sem er hefði getað unnið. Þó þetta heiti fegurðarsam-
keppni snýst hún ekki bara um fegurð heldur líka
ýmislegt annað. Ég var smeyk fyrirfram um að það
yrðu einhverjar að reyna að eyðileggja fyrir hinum en
svo var bara aldrei neitt svoleiðis í gangi.
Eftir allar fegurðarsamkeppnir tala keppendurnir
um hvað þær hafi eignast æðislegar vinkonur. Ger-
ist þetta í alvöru eða hataðir þú kannski stelpurnar
sem kepptu á móti þér? Þegar við vorum byrjaðar
í keppninni fór ég einmitt og skoðaði myndbönd
á netinu þar sem stelpur úr fyrri keppnum voru
að segja hvað þetta væri skemmtilegt og hvað þær
höfðu eignast margar vinkonur. Ég hélt þetta væri
bara bull og vitleysa en svo er það alveg satt. Heiðar
snyrtir sagði við okkur að hann hafi sjaldan séð jafn
samrýndan hóp í svona keppni og bað okkur um að
halda vinskapnum áfram.
Hvað stendur upp úr frá undirbúningstímabilinu?
Við vorum mikið að æfa sýninguna sjálfa á Broadway,
bæði til að æfa okkur að ganga og dansa. Mér fannst
það langskemmtilegast því þar þurftum við líka oft
að bíða og gátum spjallað og kynnst vel. Oftast þurfti
að sussa á okkur því við töluðum svo mikið. Það var
skemmtilegast að kynnast þessum stelpum.
Var mikil pressa á keppendum varðandi holdafar
þeirra? Nei, engin svoleiðis pressa. Við fórum á fund
með Dísu í World Class og hún sagði okkur að við
fengjum kort í ræktina og ráðlagði okkur að hugsa
fyrst og fremst um okkur sjálfar. Hvað við vildum
bæta og hvernig við vildum líta út á sviðinu. Sumar
vilja kannski hætta að borða ís og sumar vilja fara
tvisvar í viku í ræktina. Þær sem þurftu að taka sig á
gerðu það ef þær vildu og þetta var allt undir manni
sjálfri komið sem er frábært.
Þurftir þú að grenna þig mikið? Fyrst hugsaði ég
að ég þyrfti að grenna mig. Svo lærði ég í undirbún-
ingnum að maður þarf að vera sáttur við sjálfan sig
og ekki vera að miða sig við allar hinar. Manni finnst
alltaf allir aðrir flottari en maður sjálfur.
Hvað var erfiðast við keppnina? Ég kveið mest fyrir
að koma fram á bikiníi en um leið og ég var búin að
því í prufunum fannst mér það alveg í lagi.
Hvað finnst þér um þá gagnrýni sem fegurðar-
samkeppnir hafa fengið í gegnum árin? Að þetta
brjóti niður sjálfsmynd stúlkna og hvetji jafnvel
til átröskunar. Ég get auðvitað ekki talað fyrir þær
sem hafa tekið þátt í fyrri keppnum og kannski var
þetta svoleiðis einu sinni en ekki í dag. Ég man eftir
skuggalega grönnum stúlkum í Ungfrú Reykjavík
einhvern tímann en núna eru þetta bara venjulegar
stelpur sem eru alveg með mjaðmir, rass og brjóst. Ég
fékk meira sjálfstraust út úr keppninni og hvatningin
var einungis í átt að heilbrigðari lífsstíl. Mér finnst
fyrirsætubransinn frekar hvetja til átröskunar. Ég
fékk sjálf að heyra þegar ég var fimmtán ára að ég
væri með of stórar mjaðmir fyrir tískubransann. Það
er ekki gáfulegt að segja svoleiðis við fimmtán ára
stelpu en sem betur fer er ég sterkur persónuleiki og
tók það ekkert inn á mig. Ef ég hefði verið með lítið
sjálfstraust hefði svona athugasemd getað leitt til
allskonar rugls.
Hvað gerir þú til að halda þér í formi? Kíki í ræktina
og fer að hlaupa. Ég lærði í keppninni að það er
líka sniðugt að lyfta. Ég hélt alltaf að það gerði alla
massaða en lyftingar eru líka góð brennsla og mér
fannst það skila góðum árangri.
Átt þú þér eitthvert fegurðarleyndarmál? Ég nota
rosalega mikið rakakrem og gæti aldrei lifað án þess.
Það er kannski eitthvert fegurðarleyndarmál. Ég fann
reyndar mjög mikinn mun þegar ég hætti að drekka
gos fyrir keppnina, bæði í húðinni og öllum líkaman-
um.
Eru allar fegurðardrottningar hógværar eða vissir þú
allan tímann að þú myndir vinna? Mig grunaði þetta
alls ekki og þetta kom mér mikið á óvart eins og sést
kannski á myndbandinu þegar úrslitin voru tilkynnt.
Ég bjóst ekki við þessu og man meira að segja að ég
sagði við stelpurnar áður en við gengum á sviðið
fyrir krýninguna: „Ok, stelpur, sú sem vinnur verður
að fara að gráta, annars verð ég brjáluð!“ Svo komu
engin tár hjá mér og stelpurnar skömmuðu mig. Ég
hugsa nú samt að það hafi einhvern tímann verið
stelpur sem hafa unnið og búist við því allan tímann.
Hvað finnst þér þú hafa fengið út úr því að taka
þátt í Ungfrú Reykjavík? Eins og vinkona mín sem
skráði mig benti mér á er þetta rosaleg góð reynsla,
sérstaklega hvað varðar framkomu. Maður lærir að
tala fyrir framan fólk, koma fram og sjálfsöryggið
batnar. Ekki það að ég hafi verið með lágt sjálfstraust
fyrir en núna er það öðruvísi. Svo lærum við auðvitað
að standa ekki með opið klofið í sundfötum og
ýmislegt kvenlegt.
Hvenær hefst undirbúningur fyrir Ungfrú Ísland?
Ég get náttúrlega byrjað að undirbúa mig núna þó ég
taki mér líklega smá-hvíld og einbeiti mér alveg að
skólanum. Annars held ég að sjálft undirbúnings-
ferlið hefjist strax í apríl svo það verður nóg að
gera hjá mér að læra fyrir vorprófin og tvinna
það við undirbúninginn.
Hvernig er að stýra nefndinni sem setur upp
söngleikinn í Versló? Er þetta ekki heljar-
innar batterí? Þetta er mjög skemmtilegt en
svolítið langt ferli. Það eru níu mánuðir síðan
við byrjuðum að undirbúa sýninguna svo það
liggur mikil vinna að baki henni. Ég var heppin
með að hafa góða nefnd með mér og þau voru
rosalega dugleg að létta mér lífið þegar ég var
að undirbúa mig fyrir keppnina.
Hvernig fer þetta saman við námið
og fegurðarsamkeppni? Ég skipulegg
mig vel og það hefur virkað hingað til.
Þetta er búið að ganga mjög vel en
auðvitað myndi ég standa mig betur
í skólanum væri ég ekki formaður
nemendamótsnefndarinnar og að
keppa í Ungfrú Reykjavík. Hvort tveggja
er svo góð reynsla og ég met það mikils
þó einkunnirnar séu ekki bara níur og
tíur.
Hvað langar þig að gera eftir
útskriftina? Ég hugsa að ég fari í
lögfræði í Háskóla Íslands í haust.
Svo veit maður aldrei hvað gerist en
þetta er planið eins og það lítur út núna.
Lögfræðin er svo praktísk og í raun og veru get ég
unnið við svo margt með gráðuna. Ég ætla ekkert að
vera einhver sakamálalögfræðingur en gæti til dæmis
hugsað mér að reka mitt eigið fyrirtæki.
Kæmi til greina að fara út í fyrirsætustörf? Hefur þú
einhverja reynslu af slíku? Það væri mjög skemmti-
legt því ég hef mjög gaman af því en það kemur bara í
ljós hvort ég fari eitthvað út í það. Ég byrjaði fimmtán
ára hjá Eskimo og var oft notuð sem módel í prófum
hjá förðunarnemum og var utan á einhverju blaði
einu sinni. Það er svo sem ekkert búið að vera brjálað
að gera í þessu.
Átt þú kærasta? Nei, hann á ég ekki.
Bíða strákarnir ekki í röðum eftir Ungfrú Reykjavík?
Ég get nú alveg viðurkennt að ég er búin að fá nokkur
poke og vinabeiðnir á Facebook eftir sigurinn. Maður
veit nú ekki hvort það séu almennilegir strákar samt.
Heimildir Monitor herma að þú elskir tómatsósu.
Er eitthvað til í því? Þetta er frekar vandræðalegt en
„Fólk sem ég þekki ekki neitt heilsaði mér og faðmaði mig í bænum um helg-
ina,“ segir Sigríður Dagbjört, nýkjörin Ungfrú Reykjavík, sem er sjúk í tómatsósu
Texti: Sigyn Jónsdóttir sigyn@monitor.is
Myndir: Golli golli@mbl.is
Ég sagði við stelpurnar
áður en við gengum á
sviðið fyrir krýninguna: „Ok
stelpur sú sem vinnur verður
að fara að gráta, annars verð
ég brjáluð!“
Allir vilja þekkja
Ungfrú Reykjavík
HRAÐASPURNINGAR
Uppáhaldsmatur? Pítsa, kjöt í karrý
með hrígrjónum og svínakjöt.
Uppáhaldskvikmynd? The Pink
Panther, upprunalegu myndirnar með
Peter Sellers.
Uppáhaldssjónvarpsþáttur? The
Vampire Diaries og Grey‘s Anatomy.
Uppáhaldstónlistarmaður? Rihanna,
Drake og Usher.
Uppáhaldsnammi? Sterkir brjóstsykrar
og lakkrís.
Fallegasta kona í heimi? Jennifer
Aniston.
Heitasti karlmaður í heimi? Johnny
Depp.
Fyrirmynd í lífinu? Foreldrar mínir og
systkini.