Monitor - 03.03.2011, Page 14
Kvikmynd Kevin Spacey sýnir
snilldartilþrif í myndinni The Usual
Suspect þar sem hann leikur vesaling
í glæpaheiminum. Í myndinni er
klárlega besta „plot” sem ég hef séð og
goðsögnin Keyser Söze er búin til (bókstaflega).
Sjónvarpsþáttur Ég mæli eindregið
með Psych þar sem Shawn Spencer
og Burton Guster fara á kostum
sem einkaspæjarar með dulræna
hæfileika. Klárlega skemmtilegasta
tvíeykið á sjónvarpsskjánum í dag.
Bestu íslensku þættirnir eru Mannasiðir Gillz
enda gríðarlega vel leikstýrðir.
Bók Íslensk knattspyrna
2000 var sterkur árgang-
ur í þessum magnaða
bókaflokki. Þar er hægt
að lesa skemmtileg viðtöl
við Ríkharð Daðason
og Þormóð Egilsson og
ýmsan áhugaverðan
fróðleik, til dæmis
hverjir voru Íslands-
meistarar í 5. flokki
karla þetta árið.
14 Monitor FIMMTUDAGUR 3. MARS 2011
Síðast en ekki síst
» Mummi, tónlistar- og knattspyrnumaður, fílar:
fílófaxið
RAFMAGNSLAUST Á
NORÐURPÓLNUM
Norðurpóllinn
21:00 Hljómsveitirnar Agent Frescoog Orphic Oxtra eru fyrstar
til að stíga á stokk í nýrri tónleikaröð þar
sem tvær ólíkar hljómsveitir koma saman
órafmagnað. Sveitirnar spila eigin lög og
vinna saman að nýju verki sem er frumflutt á
tónleikunum. Miðaverð er 1.500 krónur.
TÓNLEIKARÖÐ
GOGOYOKO.COM
Hressó
21:00 Gogoyoko hleypir af staðtónleikaröð sinni með
tónleikum hljómsveitarinnar Bloodgroup.
Haldnir verða tónleikar á vegum vefsíðunnar
og Hressó fyrsta fimmtudag hvers mánaðar.
Frítt er inn á tónleikana.
SWORDS OF CHAOS OG
FLEIRI
Bakkus
21:30 Mega-tónleikar á Bakkus þarsem fram koma sveitirnar
Swords Of Chaos, Me, The Slumbering
Napoleon og BOB. Aðstandendur lofa rokki.
Frítt er inn á tónleikana.
GANG RELATED
Dillon
22:00 Hljómsveitirnar Gang Relat-ed, No To Self og Markús And
The Diversions sprengja þakið af Dillon.
BRYNJAR MAR
Sódóma
22:00 Brynjar Mar og hljómsveitverða með tónleika til að
kynna nokkur lög af væntanlegri plötu. DJ
Ómar sér um tónlist fyrir og eftir tónleikana.
Frítt inn.
fimmtud3mars
skólinn
MIÐASALA Á
RVK MUSIC MESS
www.reykjavikmusicmess.com
10:00 Sérstakt kynningartilboðverður dagana 4.-11. mars á
miðum á tónlistarhátíðina Reykjavik Music
Mess sem verður haldin 16. og 17. apríl.
Miðarnir fást á heimasíðu hátíðarinnar og
kynningarverð er 6.990 krónur.
ALEX METRIC (DJ SET)
Nasa
00:00 Plötusnúðurinn AlexMetric tryllti lýðinn á síðustu
Airwaves-hátíð og er núna að vinna að
sinni fyrstu breiðskífu. Upphitun verður í
höndum Bloodgroup og öllu verður tjaldað til.
Miðaverð í forsölu eru 1.500 krónur.
föstudag4mars
CARNIVAL
Bakkus
21:00 Í tilefni Carnivalsins í Riode Janeiro verður haldin
brasilísk tónlistarhátíð og partí á Bakkus í
Reykjavík. Lifandi tónlist og brjálað carnival-
stuð. Fram koma Tropicaliasveit Kristínar
og Samúel Jón Samúelsson ásamt stórsveit.
Frítt inn.
LJÓSLEIÐARINN
Faktorý
23:00 Hljómsveitirnar Berndsen,Jungle Fiction og Ultra
mega technobandið Stefán leiða saman
hesta sína og bjóða upp á elektrósprengju.
Þema kvöldsins eru hlýrabolir, glowsticks og
eyrnabönd. Frítt inn.
laugarda5mars
FAKTORÝ
Kanilkvöld
Laugardaginn 5. mars
22:00
„Kanilkvöld eru dansidjammkvöld,“ útskýrir Sigurður Arent, einn af
umsjónarmönnum fyrsta kanilkvöldsins sem verður haldið á Faktorý
laugardaginn 5. mars. „Við sem stöndum að þessu höfum flestir búið
erlendis og söknuðum þessara algjöru einbeittu danskvölda,“ segir
Sigurður spenntur fyrir kanilkvöldinu. „Við ætlum að einbeita okkur
að gleðinni og spila góða tónlist,“ lofar hann en segir þó ekki endilega
einhverja eina tónlistarstefnu verða á dagskránni. „Þetta verður
massíft prógramm og umhverfið flott,“ segir Sigurður sem vonar að
viðtökurnar verði góðar því planið er að halda fleiri kanilkvöld. „Næst
verður kanilkvöld haldið 1. apríl og vonandi fáum við góðar viðtökur,“
segir hann og bendir á að vinsældir kanilkvölda gætu leitt til meira
umfangs þeirra. „Þegar þetta verður komið almennilega á koppinn
ætlum við að reyna að fá einhver stór nöfn til að koma og spila,“ segir
Sigurður og býður öllum að koma og dansa með sér á laugardaginn.
„Fólk með einbeittan dansvilja er sérstaklega velkomið en þetta er
fyrir alla.“ Frítt er inn á kanilkvöldið.
Fólk með einbeittan
dansvilja velkomið
Plata For Emma, Forever Ago með
Bon Iver er róleg og flott plata, mjög
kósý yfir vetrarmánuðina. Eftir að
honum var sagt upp af kærustunni,
lokaði hann sig inni í fjallakofa í þrjá
mánuði og tók upp plötuna með
þessum líka frábæra árangri.Toppnáungi
þarna á ferð!
Vefsíða Sammarinn.com er
skemmtilega síða þar sem farið
er yfir málin í fótboltaheiminum.
Þetta er ekki þessi týpíska
fótboltasíða heldur er farið yfir söguna og
skoplegar hliðar fótboltans.
Staður Mexíkóski
veitingastaðurinn
Culiacan er gríð-
arlega vanmetinn
staður. Ef þú bið-
ur um quesadilla
með tvöföldum
skammti af kjúkl-
ingi verður þú ekki
fyrir vonbrigðum.
Fer að minnsta kosti
tvisvar í viku þangað.