Monitor - 10.03.2011, Blaðsíða 3
Monitor og Canon hrinda af stað vídeókeppni áMbl.is í dag sem allir athyglissjúkir, feimnir,
áhugasamir, listrænir, hæfileikaríkir, fyndnir eða bara
kappsamir ættu að athuga betur.
Hægt er að senda inn í keppnina allskonar myndireins og til dæmis leiknar stuttmyndir, heimildar-
myndir, tónlistarmyndbönd, leiknar heimildarmyndir
eða brettamyndbönd.
Keppnin stendur til 22. apríl og mega keppendursenda inn eins mörg myndbönd og þeir vilja. Verðlaun í keppninni eru ekki af verri endanum:
1. sæti - Canon LEGRIA HF R106 HD upptökuvél
sem tekur upp á minniskort.
2. sæti - Canon LEGRIA FS36 upptökuvél með 8 GB
sem tekur einnig upp á minniskort.
3. sæti - Canon FS306 upptökuvél sem tekur upp á
minniskort.
Farðu núna á Mbl.is og taktu þátt í keppninni! Ásíðunni er hnappur þar sem hægt er að skrá sig og
skoða þau myndbönd sem eru þegar komin inn.
Summer
Echoes er
nýjasta plata
Sindra Más
Sigfússonar
sem kallar
sig Sin Fang.
Platan er
frábær og klárlega
ein af plötum ársins. „Búinn að vera
með þessa plötu í eyrunum í viku og
ég er enn að heyra eitthvað nýtt, líkt
og ég sé að garfa í djúpum, litríkum
dótakassa,“ segir Arnar Eggert í
fimm stjörnu dómi í Mogganum á
miðvikudaginn. Það
er góð og réttmæt
lýsing.
900 Grillhús
er frábær
veitingastaður
í Vestmannaeyj-
um. Eyjaskeggjar
þekkja hann auðvitað
eins og handarbakið á sér, en fólk
af meginlandinu ætti að leggja nafn
staðarins á minnið áður en það
heldur til Eyja. Pítsurnar eru geðveik-
ar, humarlokan enn betri og einnig er
hægt að fá stórgóðar steikur.
Mottumars
er snilld og Monitor hvetur alla til að
taka þátt með einhverjum hætti. Ef
þú ert ekki að safna
mottu þarftu svo
sannarlega
að styrkja
einhvern
sem er að
því. Helst
áttu að gera
bæði.
Monitor
mælir með
3
Ritstjóri: Björn Bragi Arnarsson (bjornbragi@monitor.is) Umbrot og hönnun: George Kristófer Young (george@mbl.is)
Blaðamenn: Gunnþórunn Jónsdóttir (gunnthorunn@monitor.is), Sigyn Jónsdóttir (sigyn@monitor.is)
Auglýsingar: Jón Ragnar Jónsson (jonragnar@monitor.is) Forsíða: Árni Sæberg Myndvinnsla: Hallmar F. Þorvaldsson
Útgefandi: Árvakur Prentun: Landsprent Sími: 569-1136 Netfang: monitor@monitor.is
FIMMTUDAGUR 10. MARS 2011 Monitor
Feitast í blaðinu
Alexandra Sif er
fitnesspía sem er að
gera það gott. Hún
er í spjalli og
gefur góð ráð. 4
Birgitta Birgisdóttir
í viðtali. Sæta
stelpan í Makalaus
er hin íslenska
Penelope Cruz.
Háskólatískan.
Stíllinn spjallar við
nokkrar töff týpur í
Háskólanum
í Reykjavík.
8
Sóli Hólm í Loka-
prófinu. Hann fílar
best að herma eftir
Bjarna Felix-
syni. 14
Friðrik Dór lenti í
Blönduóslöggunni
um síðustu helgi
á leið til
Akureyrar. 13
6
FYRIR GÓÐMENNSKUNA
fyrst&fremst
Er það tilviljun að Jón Jónsson lék undir á meðan
myndin af Ragnheiði og félögum var tekin í Versló?
Okkur er ekki sama! er yfirskrift styrktartónleika
sem haldnir verða á miðvikudaginn í næstu viku í
Hafnarhúsinu. Það er félagið SamFram sem stendur að
tónleikunum, en félagið mynda fulltrúar úr framhalds-
skólunum MR, Versló, Kvennó, MS og MH. „Hugmyndin
kviknaði þegar ég var að læra fyrir sögupróf í síðustu
jólaprófatörn,“ segir Ragnheiður Björk Halldórsdóttir
ritari Skólafélagsins í MR. „Eins og gengur og gerist
þegar maður er að læra undir próf fór hausinn að
„brainstorma“ og þessi hugmynd kviknaði. Það tóku allir
svo fjandi vel í þetta að við ákváðum að slá til.“
Málefni sem snertir alla
Allir ágóðinn sem safnast af tónleikunum rennur
óskertur til Mæðrastyrksnefndar. „Við vildum styrkja
málefni sem stendur okkur nærri. Mikill fjöldi fólks
hefur þurft að leita til Mæðrastyrksnefndar og þú veist
aldrei hverjir þurfa á aðstoð að halda. Þetta er málefni
sem snertir alla,“ segir Ragnheiður. Fjöldi flottra tónlist-
armanna treður upp á tónleikunum og má þar nefna
bræðurna Friðrik Dór og Jón Jónsson, hljómsveitirnar
Agent Fresco og Who Knew og þá munu Stebbi og Eyvi
mæta og taka Drauminn um Nínu.
„Við reyndum að hafa dagskrána fjölbreytta þar
sem skólarnir eru ólíkir. Við erum með spírurnar í
MH, skinkurnar í MS og sveitalubbana í MR,“ segir
Ragnheiður og hlær. Hún segir að hinn gamalgróni rígur
milli menntaskólanna sé enn til staðar en þegar svona
málefni sé annars vegar leggi allir vopnin niður og vinni
saman. „Það hata flestir MR vegna þess að við erum
hrokafull. Ég get alveg viðurkennt það,“ segir Ragnheið-
ur létt og bætir við: „En nú vinnum við öll saman.“
Vonandi árlegur viðburður
Þúsund miðar verða seldir á tónleikana og hefur 200
miðum verið úthlutað á hvern skóla. Góa og Ölgerðin
ætla að gefa sælgæti og gos sem verður selt á tónleik-
unum og rennur ágóðinn allur í söfnunina. „Ég á ekki
von á öðru en að það verði frábær stemning og að
söfnunin gangi vel. Ég vona bara að þetta verði árlegur
viðburður, hvort sem það verður safnað fyrir Mæðra-
styrksnefnd eða eitthvað annað málefni að ári liðnu.“
Hópur framhaldsskólanema
stendur fyrir glæsilegum
tónleikum til styrktar
Mæðrastyrksnefnd.
Í SPILARANN
Í MAGANN
Efst í huga Monitor
Keppnin er hafin! Allt er leyfilegt!
Halldór
Halldórsson
Saltkjöt er
uppáhaldsmat-
urinn minn. Í
alvöru.
8. mars kl. 13:00
Blaz Roca
ekkert að því
að tapa fyrir
Magga Mix og
til hamingju Lalli
Lazer & Nilli Bangar Chicks
með að hafa sópað restinni af
Íslensku tónlistarverðlaunun-
um upp >:D
8. mars kl. 21:41
Vikan á...
Vala Grand
ojjjj ég er svo
farin að raka
mína rottumottu
Fuck this shitt
ég get nú somhow styð þetta
mottu dæmi án þess að vera
með rottumottu !! Right!!....
það er ekki hægt að fara i
sund með þetta ....Going to
shave ASAP
7. mars kl. 15:32
Simmi Vill
Nei, ég er ekki
í búning. Ég
er bara svona
klæddur í dag.
Nei, ég er ekki kominn til að
suða útúr þér nammi. Heyrist
þér ég vera að syngja? Ég
er bara kominn hingað til að
skuldbreyta lánunum mínum.
Hehehe, ég elska öskudaga.
9. mars kl. 00:30
MYNDBAND AF BÖRNUNUM
FYLGIR EKKI VÉLINNI
LEIÐIN GÆTI LEGIÐ TIL
HOLLYWOOD EFTIR VÍDEÓKEPPNINA
HRINGDU OG
STYRKTU
Þeir sem komast ekki á tónleikana en
vilja styrkja gott málefni geta hringt
í söfnunarnúmer hjá Valda&Frey sem
verða opin næstu daga og þannig
gefið fé í söfnunina.
• 907-1050 - 500 krónur
• 907-1010 - 1.000 krónur
MELKORKA ÞÖLL, RAGNHEIÐUR BJÖRK, SIGRÚN OG BIRTA ERU
BETRI HELMINGURINN AF SAMFRAM SEM STENDUR AÐ TÓNLEIKUNUM
Okkur
er ekki
sama! TÓNLISTARMENNSEM KOMA FRAM
• Friðrik Dór
• Agent Fresco
• Who Knew
• Jón Jónsson
• Orphic Oxtra
• Original Melody
• Gnúsi Yones
• Stebbi & Eyfi
AGENT FRESCO
VERÐA Á STAÐNUM