Monitor - 17.03.2011, Blaðsíða 4
4 Monitor FIMMTUDAGUR 17. MARS 2011
Spurning
um Boner
Bleik górilla
í fararbroddi
BJARKI FREYR
MAGNÚSSON
Fæðingardagur: 15.8.’93
Sérþekkingarsvið: Landafræði.
Hver er uppáhaldsspurningin
þín sem liðið hefur fengið í
keppninni?
Spurning sem við fengum ein-
hverntímann í hraðaspurningum:
„Hver er formaður LÍÚ?“
Hver er mamman/pabbinn í
liðinu?
Laufey er náttúrlega mamman
og stjórnar þessu öllu.
Hvað þarf til að ná árangri í
Gettu betur?
Þetta klassíska; stanslausar
æfingar og góður svefn.
LAUFEY HARALDSDÓTTIR
Fæðingardagur: 4.4.’92
Sérþekkingarsvið: Það myndu
vera dægurmál. Bleiki flokkurinn
í Trivial.
Nú þurfa Gettu betur-keppendur
að sofa mikið. Hefur þig dreymt
Gettu betur?
Það hefur einu sinni komið
fyrir. Ég fékk martröð um að ég
væri að verða sein á keppni.
Finnurðu fyrir pressu verandi
tveimur sigrum frá því að verða
fyrsta stelpan til að vinna Gettu
betur?
Já, smá. Það væri mjög gaman
að vera fyrsta stelpan til að vinna
þetta. Það er alveg komið að því.
SÆÞÓR PÉTUR
KJARTANSSON
Fæðingardagur: 20.4.’93
Sérþekkingarsvið: Landafræði og líffræði.
Ef þú fengir að ráða hvaða söng
stuðningsmenn myndu syngja þegar
þú kynnir nafn þitt í keppni, hvert væri
það?
Ekkert sérstakt fyrir mig en það ætti
að syngja Batman-lagið þegar Hans
Marteinn kynnir sig.
Að keppa í Gettu betur er…
erfitt.
Hvað þarf til að ná langt í Gettu betur?
Ætli það sé ekki bara sambland af vinnu
og hæfileikum, eins og með flest annað.
HANS MARTEINN
HELGASON
Fæðingardagur: 18.10’93
Sérþekkingarsvið: Ekkert.
Hver væri draumaspyrillinn
þinn í Gettu betur?
Logi Bergmann Eiðsson.
Hvernig er keppnisdeginum
háttað?
Höldum okkur rólegum, lærum
eitthvað og lesum.
Stefnirðu á sæti í Útsvarsliði
Garðabæjar á næsta ári?
Nei.
ARNAR GUNNARSSON
Fæðingardagur: 25.4.’91
Sérþekkingarsvið: Dægur-
menning.
Hver er uppáhaldsspurningin
þín sem liðið hefur fengið í
keppninni?
Í síðustu keppni var spurt um
forseta efri deildar þingsins
í Bandaríkjunum sem heitir
John Boner. Þjálfarinn var
búinn að fara yfir það með
okkur fyrir keppnina og svo var
einmitt spurt um hann í bjöllu
og okkur fannst það frekar
fyndið.
Hver er pabbinn í liðinu?
Ég þarf náttúrlega að sjá um
að strákarnir borði á réttum
tíma og svona sem elsti maður
liðsins.
BJARNI LÚÐVÍKSSON
Fæðingardagur: 21.9.’93
Sérþekkingarsvið: Ísland.
Ef þú mættir ráða hvaða lag
klapplið Kvennó syngi um þig,
hvert væri óskalagið?
Veit það ekki, síðast sungu þau
lagið „Baby“ með Justin Bieber
með nafninu mínu. Það var allt
í lagi.
Draumaspyrill í Gettu betur?
Edda Hermannsdóttir.
Að keppa í Gettu betur er…
Pass!
Lið Kvennaskólans í ár hefur komið sterkt til
leiks og vann sér sæti í undanúrslitum með
sigri á MA, 27-24. Aðspurður segist Bjarni
Lúðvíkssons, miðjumaður liðsins, halda að um
sé að ræða fyrsta skipti sem skólinn kemst
í undanúrslit keppninnar. Hann bætir við að
stemningin fyrir keppninni vaxi með degi og
sigri hverjum innan skólans. Lukkudýr skólans
hefur vakið athygli að undanförnu en það er
bleik górilla með boxhanska. Spennandi verður
að sjá hvort það sjáist ekki glitta í górilluna
bleiku í sjónvarpsútsendingu á laugardaginn
næstkomandi!
Lið FG komst með sigri á Borgarholtsskóla, 20-17, um síð-
ustu helgi í undanúrslit Gettu betur í fyrsta sinn í sögu
skólans. Aldursforseti liðsins, Arnar Gunnarsson, segir
það gaman að skrifa sig inn í sögu skólans hvað Gettu
betur varðar og vonar að þeir setji fordæmi fyrir komandi
ár. Hann segist ekki finna fyrir pressu frá samnemendum
en segir að stemningin og áhugi fólks í skólanum hafi
vaxið mjög á hans fjórum árum í skólanum. Garðabær
státar af meistaratitli í Útsvari frá því í fyrra en bæjarfé-
lagið datt út úr keppni þessa vetrar á dögunum. Spurn-
ingin er hvort það væri ekki ráð að láta Gettu betur-lið FG
og spurningalið Garðabæjar mætast til að útkljá hvaða
tríó sé snjallasta spurningatríó bæjarins.
FG – KVENNÓ
Undanúrslit í Gettu betur