Monitor - 14.04.2011, Page 16
16 Monitor FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2011
Bræður
munu berjast
Flestir þekkja og kunna jafnvel lagið
Wonderwall sem Oasis gerðu heimsfrægt
fyrir rúmum fimmtán árum. Höfuðpaurar
hljómsveitarinnar eru þeir Gallagher-
bræður, Liam og Noel. Sagan segir að þeir
hafi deilt saman herbergi sem guttar og að
eldri bróðirinn, Noel, hafi dundað sér við
að ögra og stríða litla bróður sínum í gríð
og erg. Þótt sorglegt sé virðast bræðurnir
enn ekki hafa þroskast upp úr æskuslags-
málum og hafa slíkar fréttir prýtt forsíður
helstu fjölmiðla Bretlands síðasta áratug-
inn. Hljómsveitin hefur oft þurft að aflýsa
heilu og hálfu tónleikaröðunum vegna erja
bræðranna. Líf hljómsveitarinnar hefur því
oft verið í hættu en segja má að hún hafi
látið lífið í ágúst 2009 þegar bræðurnir rif-
ust heiftarlega baksviðs
á tónleikum í París
með þeim endalokum
að Noel mölbraut gítar
Liams. Tónleikunum var
aflýst, með nokkurra mínútna fyrirvara,
og sama kvöld birti Noel eftirfarandi
yfirlýsingu á vefsíðu Oasis:
„Það er með nokkurri sorg og miklum
létti að ég tilkynni ykkur að ég hætti í
Oasis í kvöld. Fólk má skrifa og segja það
sem það vill, en ég gat einfaldlega ekki
starfað með Liam deginum lengra.“
Enn þann daginn í dag segja bræðurnir
fjölmiðlum að þeir talist ekki við.
BLÓÐUG
BANDASLIT
Að halda lífi í góðri hljómsveit er bölvað basl.
Monitor gerði úttekt á nokkrum hljómsveitum
sem sundruðust með misfallegum hætti.
„Eftir tvö lög
lem ég þig í klessu“
Hljómsveitin Eagles er goðsagnakennd innan rokkbransans en þeir eiga
meðal annars mestseldu plötu Bandaríkjanna, Their Greatest Hits (1971-
1975) sem seldist í ríflega 29 milljónum eintaka. Tónlist Arnanna þykir afar
ljúf á að hlusta en sá ljúfleiki endurspeglar alls ekki samskipti meðlima
hljómsveitarinnar. Sagan segir að á þeirra mesta rokkstjörnuskeiði, sem
einkenndist af dópi og drykkju, hafi tveir af fimm meðlimum, þeir Don
Henley og Glenn Frey, tekið sér stöðu foringja hljómsveitarinnar í einu og
öllu og fengu að launum viðurnefnið „Guðirnir“.
Samskipti hljómsveitarmeðlima voru upp frá því afar stirð og var gerð
plötunnar Hotel California sjö mánaða tímabil leiðinda sem tók heila
eilífð í augum Eagles-manna. Þeir stóðu sem rokkeining uppi á sviði á
tónleikum en um leið og tónleikum var lokið héldu þeir sundraðir sína leið
hver. Samstarfið náði suðupunkti á tónleikum á Long Beach í Kaliforníu en
kvöldið hefur síðan verið þekkt sem „Long Night at Wrong Beach“. Bandið
var að spila á tónleikum sem stjórnmálahreyfing stóð fyrir, gegn vilja sumra
í hljómsveitinni. Rétt fyrir tónleikana hafði verið
mikill pirringur milli þeirra Glenn Frey og Don Felder.
Pirringurinn stigmagnaðist svo að uppi á sviði, á
miðjum tónleikum, stóðu þeir í hótunum hvor við
annan þar sem þeir hótuðu hvor öðrum barsmíðum
beint eftir tónleikana. Að tónleikunum loknum ruku allir hver í sína átt en
Frey og Felder rifust heiftarlega baksviðs og vissu menn strax að endalok
Arnanna væru runnin upp.
Hljómsveitin sneri aftur 1994 og hefur komið fram af og til síðan þá en
þeir halda tónleika á Íslandi þann 9. júní næstkomandi. Ef til vill má fylgja
sögunni að Don Felder telst ekki meðlimur Eagles lengur.
EAGLES
HARÐIR OG HÁRPRÚÐIR ERNIR
Hvað eru nokkrir
magnarar milli vina?
Rokktríóið The Police skaust fram á sjónarsviðið undir lok áttunda áratug-
arins. Lög eins og Roxanne, Every Breath You Take og Message in a Bottle eru
á meðal ómetanlegra framlaga þeirra til tónlistarsögunnar. Það verður hins
vegar að teljast athyglisvert hve miklu þeir afköstuðu í ljósi þess að í þriggja
manna hljómsveit
ríkti gífurleg
andstyggð og rígur
milli söngvarans
og bassaleikarans,
Sting, og trommarans, Stewart Copeland, sem var upphaflegur stofnandi
bandsins. Sting þótti trommuleikur Copeland of hávaðasamur og Copeland
þótti Sting of mikil stjarna – enda farinn að þreifa fyrir sér í kvikmynda-
bransanum. Sagan segir að á tónleikum hafi verið nauðsynlegt að stilla upp
mónitorum og mögnurum á milli „félaganna“ tveggja svo þeir þyrftu sem
minnst að pæla hvor í öðrum. Leiðindin milli Sting og Copeland keyrðu
hljómsveitina í kaf árið 1986 en rúmum 20 árum seinna grófu þeir stríðs-
öxina fyrir „comeback“-tónleika árið 2007. Í ævisögu Copeland sem kom út
árið 2009 greindi hann reyndar frá því að ófá rifrildin hefðu átt sér stað eftir
endurfundina. Tíminn læknar greinilega ekki öll sár.
THE POLICE
Fráhvarf Halliwell tók sinn toll
Kryddpíurnar réðu lögum og lofum í poppsenunni á 10. áratug síðustu aldar. Þegar hljómsveit-
in virtist enn á uppleið ákvað Geri Halliwell, höfuðpía flokksins í augum margra, skyndilega að
segja sig úr hljómsveitinni. Að eigin sögn var hún orðin of ólík hinum hljómsveitarmeðlimunum.
Einnig sagðist hún uppgefin og þurfa á hvíld að halda en birtist þó
aftur skömmu síðar með sólóferil á blússandi siglingu. Fráhvarf
Halliwell olli miklu fjaðrafoki og skemmdi meðal annars ýmis
markaðsleg áform hljómsveitarinnar. Skemmst er frá því að segja að
þótt þær fjórar Kryddpíur sem eftir stóðu væru staðráðnar í að halda
áfram fataðist þeim nokkuð flugið og náðu í raun aldrei fyrri vinsældum. Ein plata var gefin út
áður en þær sneru sér allar að sólóverkefnum 2001. Spice Girls voru liðin tíð – allavega í bili.
SPICE GIRLS
OASIS
KRYDDPÍURNAR MEÐ HNATTLÍKAN
RÉTT ÁÐUR EN ÞÆR MISSTU ÞAÐ
GELGJUSKEIÐ GALLAGHER-BRÆÐRA
VIRÐIST VARA LENGUR EN FLESTRA
GRAFALVARLEGIR
EINS OG LÖGGUM SÆMIR