Monitor - 14.04.2011, Page 19
19FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2011 Monitor
Ótrúlegt hvað dagarnir eru misjafnir. Stundum
er varla hægt að vinna fyrir þreytu og stundum
er hressleikinn ofar öllu. Stíllinn kannaði hvaða
matur það er sem getur ýtt undir þreytuna í þér.
Hugsanlega uppá-haldsmorgunmatur
margra, en ef þú
ætlar að fá þér hafra-
mjöl eða hafragraut
er nauðsynlegt að
drekka einn kaffibolla
eða svo með. Kornin í
haframjölinu hrinda af
stað insúlínframleiðslu
líkt og gerist þegar þú
borðar grófkornabrauð.
Þetta verður til þess að
blóðsykurinn hækkar og
gera þig syfjaða/n.
Handfylli af þessummöndlum og áður
en þú veist af ertu
farin/n að dotta. Möndlur
innihalda trýptófan
eða trý og magnesíum,
sem bæði hjálpa til við
að draga úr vöðva- og
taugastarfsemi en halda
einnig hjartslættinum
stöðugum.
Mjólkursúkkulaðier örvandi og
tilvalið að narta í það
í prófatörn til dæmis.
Hins vegar hefur dökkt
súkkulaði aðeins öðruvísi
áhrif. Dökkt súkkulaði
inniheldur serótónín,
sem er efni sem slakar
á líkama og sál. Lítill
biti af dökku súkkulaði
hjálpar húðinni að halda
sér rakri. En það þýðir
ekki að það sé í lagi að
troða í sig heilli plötu af
suðusúkkulaði, einn lítill
biti dugar.
Austurlenska undriðhúmmus hefur
mjög mikil svefnáhrif.
Ef þú vaknar um miðja
nótt, endilega japlaðu á
húmmus ef svo vill til að
þú eigir það í ísskápnum.
Hins vegar ef þú ert að
vakna mikið um miðja
nótt yfir höfuð er mjög
líklegt að þú borðir ekki
nógu margar kaloríur
yfir daginn og þá er
líkaminn að vekja þig til
að skamma þig.
Hunang inniheldurglúkósa eða
þrúgusykur sem segir
heilanum þínum að slaka
á snerpunni. Svo ef þú
átt erfitt með að sofna
er gott að smakka á
smá hunangi, jafnvel fá
sér t.d. kamillute með
hunangi. Ein matskeið er
alveg nóg.
Kirsuber innihaldamelatónín og ef þú
ert dugleg/ur að troða
þeim í fæðuhringinn
hjá þér, hjálpar það að
koma reglu á svefninn.
Melatónín er hormón
eða taugahormón sem
myndast í heilaköngl-
inum. Það losnar mun
meira út í blóðið á
nóttu en degi. Fólk með
svefntruflanir hafa notað
melatónín sem hjálpar-
tæki og er það oft kallað
náttúrulega svefnlyfið.
GO CHERRIES!
MATUR
sem svæfir þig
ER HAFRAGRAUTUR
NÝJA SVEFNLYFIÐ?
ÞESSAR MÖNDLUR SVÆFA
EN ÞÓ EKKI NAMMIMÖNDLUR
MMM.. SUÐUSÚKKULAÐI
ER LOSTÆTI
ÞAÐ MÁ DEILA UM
HVORT AÐ HÚMMUS SÉ GOTT
HUNANG ER ALLRA
MEINA BÓT
ÞAU FÁST EKKI ALLTAF
Á ÍSLANDI, EN GÓÐ ERU ÞAU
Tvíburarnir Mary-Kate og Ashley eru heimsfrægar fyrir að vera
með puttann á púlsinum. Stíllinn þeirra hefur vakið athygli og
þá sérstaklega stíll Mary-Kate, sem var titluð tískutákn af New
York Times, fyrir bóhemian/heimilislausa stíl sinn. Stíllinn
rifjaði upp síðustu 10 ár með systrunum.
Tvíburasystur
tískumógúlar
eru
2001
Mary-Kate og Ashley
byrjuðu snemma í
bransanum og skutust
fljótt upp á toppinn.
2002
Barnastjörnur voru
þær svo sannarlega
en snemma vaknaði
áhuginn fyrir tísku.
2003
Á frumsýningu
Charlie’s Angels 2,
fengu þær að velja sér
fötin sín í fyrsta sinn.
2004
Systurnar fengu
Hollywood-stjörnu
og nú hægt að þekkja
þær í sundur.
2006
Árið 2006 voru þær
saman í auglýsingu
fyrir merkið Badgley
Mischka.
2005
Mary-Kate og Ashley
eru duglegar að þræða
tískusýningarnar. Hér
eru þær á Marc Jacobs
2007
Glæsilegar svarthvítar
myndir og viðtal við
Mary-Kate í ítalska
Vogue birtist 2007.
2008
Gefa út bókina Influence:
Virðingarvottur við
hönnuði og fleiri sem
veita þeim innblástur.
2009
Ashley Olsen kemur
fram í myndaþætti
Marie Claire ásamt
ítarlegu viðtali.
2010
Alltaf smart.
Systurnar gefa út
fatalínuna sína
Olsenboye.
2011
Í dag eru þær meðal
ríkustu kvenna í
heimi, tískutákn og
eltar af papparössum.