Monitor - 12.05.2011, Page 7
7FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2011 Monitor
Af hverju tæknifræði? Þar sem ég kom upp í gegnum
frumgreinadeild HR vildi ég halda mig innan veggja skól-
ans og þar sem ég er húsasmiður var byggingatæknifræðin
augljóst val.
Það besta við námið? Frábært framhald af iðnmenntun
minni og kennslan er til fyrirmyndar.
Það versta við námið? Ætli það versta sé ekki að ég get
lítið sem ekkert unnið samhliða náminu. Allavega ekkert
af viti.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú hefur lært í tækni-
fræðinni? Ég var nýlega að klára tvo teikniáfanga sem voru
rosalega skemmtilegir. Annars er námið í heildina litið
mjög skemmtilegt.
Hefur þú tíma fyrir eitthvað annað en að læra? Maður
reynir að skipuleggja sig svona viku fram í tímann þannig
að maður getur kannski skotið inn eins og einum ísbíltúr
á mánuði.
Hvernig hyggst þú nýta námið í framtíðinni? Til að
landa góðu starfi. Svo mun það líka hjálpa mér mikið í
daglega lífinu enda verð ég mjög vinsæll í vinahópnum
þegar einhver þarf að láta parketleggja eða setja upp nýja
innréttingu í eldhúsið.
Vinsæll í
vinahópnum
ARNAR ER SANNKALLAÐUR
ALT MULIGT MAND
Arnar Jónsson 1985
TÆKNIFRÆÐI TECHNIS
Af hverju sálfræði? Ég hef mikinn áhuga á faginu og hef stefnt lengi á
þetta nám. Ég þrífst á því að vera í kringum fólk og hafa svolítið fjölmennt í
kringum mig svo þetta lá beint við.
Það besta við námið? Hvað það er fjölbreytt og skemmtilegt. Ef þú hefur
áhuga á fólki og öllu sem það snertir er þetta nám sem á eftir að höfða til
þín. Það sem mér finnst best við sálfræðinámið í HR er nándin í deildinni.
Það versta við námið? Klárlega taugalífeðlisfræðisálfræðin en margir gætu
verið mér ósammála.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú hefur lært í sálfræðinni? Svolítið sem
kallast að brjóta samfélagsleg norm eða viðmið. Þetta gefur þér einfaldlega
grænt ljós á að haga þér nákvæmlega eins asnalega og mögulegt er í nafni
félagssálfræðinnar.
Hefur þú tíma fyrir eitthvað annað en að læra? Já, algjörlega. Ég var að
klára mitt fyrsta ár núna í apríl og ég get með sanni sagt að ég hafi stundað
félagslífið grimmt. Ég blandaði mér strax í störf nemendafélagsins. Fyrst
í skemmtananefnd, svo sem gjaldkeri og nú er ég formaður þess. Titillinn
meðferðarkandídat segir allt sem segja þarf.
Grænt ljós á
fáránlega hegðun
SILJA SEGIST VERA
MEÐFERÐARKANDÍDAT
Silja Rúnarsdóttir 1990
SÁLFRÆÐI MENTES
Mynd/Ómar
M
yn
d/
Si
gu
rg
ei
r
FRAMHALD
Á NÆSTU SÍÐU