Monitor - 12.05.2011, Page 17
17FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2011 Monitor
Bin Laden og félagar
Tegund: Skotleikur
PEGI merking: 18+
Útgefandi: Codemasters
Gerð: PC, PS3, Xbox 36
Dómar: Gamespot 6,5 / IGN 7,5 /
Eurogamer 8
Red River
TÖ LV U L E I K U R
Í þessum nýjasta leik Operation Flashpoint-
seríunnar stýra leikmenn hermönnum hinnar
bandarísku Bravo-herdeildar þar sem hún er send
inn í Tadjikistan, en þangað hafa helstu uppreisn-
armenn Afghana flúið og komið sér fyrir. En líkt og
Adam, þá er Bravo-herdeildin ekki lengi í paradís,
því Kínverjar blanda sér í bardagann og þá hitnar
verulega í kolunum.
Engar uppsprengdar Hollywood-senur
Red River er í þeim flokki skotleikja þar sem
raunveruleikastig er mjög hátt og er allt gert til að
láta leikmönnum líða eins og þeir séu mættir á
vígvöllinn í öllu sínu veldi. Þetta þýðir að fara þarf
varlegar en í öðrum skotleikjum og hér er ekkert
pláss fyrir uppsprengdar Hollywood-senur, enda eru
þær sjaldnast hluti af stríði okkar heims. Það breytir
því þó ekki að söguþráður leiksins er settur upp á
flottan hátt með atriðum sem nota ýmist grafíkvél
leiksins eða fréttamyndir frá stríðinu í Afganistan.
Leikurinn spilast frá fyrstu persónu sjónarhorni
og geta leikmenn gefið þremur liðsfélögum sínum
skipanir í gegnum tiltöluega einfalt kerfi. Þetta virk-
ar oftast ágætlega, en stundum dettur gervigreind
leiksins í tóma heimsku og þá fer allt til fjandans.
Sem betur fer er hægt að spila söguþráðinn í coop
með þremur öðrum í gegnum netið og klárt að
þannig var leikurinn hugsaður fyrst og fremst.
Tilbreyting frá öðrum skotleikjum
Í öllum hlutum leiksins fá leikmenn reynslustig
sem má nota til að fá ný vopn, nýjar græjur og
nýja hæfileika, svo sem að hlaupa hraðar og miða
nákvæmar. Í leiknum eru fjórir mismunandi klassar
sem leikmenn geta bætt sig í.Spilun Red River er
nokkuð skemmtileg og ágætis tilbreyting frá flestum
öðrum skotleikum. Grafíkin er ágæt á heildina litið,
en langt frá því að vera það besta sem maður hefur
séð og það sama má segja um
hljóð leiksins.
Þó að Bin Laden sé farinn, þá er
hellingur af öðrum uppreisnar-
mönnum sem taka þarf úr umferð
og hitta leikmenn fjölmarga
þeirra hér í þessum nýja skotleik
frá Codemasters sem er ekki
fullkominn en gerir sitt gagn.
Ólafur Þór Jóelsson
Ég hef alltaf gaman af myndum sem eru ekkert að
reyna að vera eitthvað annað en þær eru og koma
bara til dyranna eins og þær eru klæddar. En til þess
að það gangi upp þarf auðvitað að vera nokkuð
gott handrit sem réttlætir allan hamaganginn. Án
þess að hafa séð allar fyrri myndirnar þá skilst mér
á þeim sem til þekkja að þær séu mjög misjafnar.
Oft eins og aðstandendur myndanna hafi verið of
uppteknir við að redda flottum bílum og í kjölfarið
gleymt innihaldinu heima. En hér tekst þeim þó
bara nokkuð vel til og úr verður þessi fína, heila-
lausa skemmtun.
Réttlátt bílaklám
Söguþráðurinn er einfaldur og nær alveg að
réttlæta mest allt bílaklámið, hasarinn og “one-liner-
ana”. Auðvitað eru atriði inn á milli þar sem maður
fer bara að hlæja því þau eru svo ótrúleg en það er
bara partur af þessu. Það borgar sig því lítið að fara
með einhverjar raunsæisvæntingar á þessa mynd,
það fólk gæti orðið fyrir vonbrigðum og jafnvel misst
meðvitund þegar leikar standa sem hæst.
Eitursvalur Vin Diesel
Leikaravalið er skemmtilegt. Vin Diesel er góður og
hefur mér alltaf þótt hann vera nokkuð vanmetinn
leikari. Maðurinn er með eitursvala rödd og
er klárlega með betri hörkutólum í Holly-
wood í dag. The Rock finnst mér reyndar
alltaf svolítið kjánalegur en hér er hann
þó líklega á heimavelli. Leikur ofurlöggu
sem fær að slást, öskra og segja einfaldar
setningar. Allir leikarar virðast
skemmta sér konunglega.
Fast Five er kannski ekkert
meistaraverk en hún stóð við
öll loforðin og skilaði sínu. Kom
bara verulega á óvart og betri en
margar í sama flokki. Ég fór sáttur
heim. Kristján Sturla Bjarnason
K V I K M Y N D
Leikstjóri:
Justin Lin.
Aðalhlutverk:
Vin Diesel og Paul
Walker.
Lengd: 130 mínútur
Dómar: IMDB: 7,8
/ Metacritic: 6,7 /
Rotten Tomatoes: 78%
Fast Five
Fimm fræknu