Monitor - 19.05.2011, Síða 6
6 Monitor FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2011
Monitor kafaði í myndasafn Morgunblaðsins og skoðaði
gamlar myndir af þekktum Íslendingum. Sumir þeirra
hafa breyst meira en lítið skemmtilega.
DRAUGAR
FORTÍÐAR
HÓPURINN ÚR 70 MÍNÚTUM
Sjónvarpsþátturinn 70 mínútur, sem sýndur var á hinu
sáluga PoppTíví, var einn allra vinsælasti skemmtiþáttur lands-
ins um og eftir aldamótin. Þessi mynd er tekin árið 2003 þegar þeir
Jói og Auddi voru loðnari um hausinn og Sveppi og Simmi nokkrum kílóum léttari.
Þarna eru þeir félagar að taka á móti gulldisk fyrir sölu á DVD-útgáfu þáttanna.
ARI ELDJÁRN
Þótt einhverjir gætu haldið að þetta sé
fermingarmyndin af Ara Eldjárn er það
aldeilis ekki rétt. Myndin er tekið árið
2003 þegar grínhöfðinginn var 22 ára.
HREIMUR
Svona leit Eurovision-farinn Hreimur Örn Heimis-
son út árið 2001 en þá hafði hann nýlega verið
kosinn kynþokkafyllsti popparinn á FM957. Á
þessum tíma var hljómsveitin Land og synir upp
á sitt besta og ætlaði að meika
það í Bandaríkjunum undir
nafninu Shooting Blanks.
JÓN GNARR OG MARGRÉT EDDA
Þessi mynd er tekin árið 2001 þegar Jón Gnarr fékk af-
henda gullspólu fyrir sölu á VHS-útgáfu af uppistandinu
Ég var einu sinni nörd. Litla stelpan sem er með honum á
myndinni er dóttir hans, Margrét Edda, sem vakti athygli
fyrir að syngja með Merzedes Club um árið.
SKÍTA-
MÓRALL
Svona leit hljómsveit-
in Skítamórall út árið
1997 þegar bandið
var vinsælasta
poppsveit landsins
og átti vinsælasta
popplag þess árs, Farin.
Meðlimir sveitarinnar eru
flestir að vinna í tónlist
á einn eða annan hátt
enn í dag. Gunnar Ólason
keppti í Eurovision á
dögunum, Addi Fannar var
nýlega ráðinn verkefna-
stjóri tónlistarviðburða í
Hörpu og Einar Ágúst er
útvarpsmaður á Kananum.
MAGNI
Þessi mynd var tekin
þegar Magni tróð upp með
hljómsveit sinni, Á móti sól,
í Skautahöllinni árið 2000.
Síðan hefur mikið vatn runnið
til sjávar og hárunum á
hausnum fækkað til muna.
JÓHANNA GUÐRÚN
Söngkonan Jóhanna Guðrún gaf
út sína fyrstu plötu fyrir jólin
2000. Á gömlu myndinni er hún
með hundinum Hróki en í viðtali
sem birtist með myndinni segist
Jóhanna ekki vera barnastjarna,
heldur ósköp venjulegur krakki.