Monitor - 19.05.2011, Page 14
14 Monitor FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2011
Hugsar þú um að líta vel út á vellinum? Auðvitað geri
ég það, bara eins og allar stelpur. Maður vill alveg líta
vel út, sérstaklega þegar leikurinn er sýndur í sjónvarp-
inu eins og landsleikir. Þá er splæst í maskara en ekki
mikið meira. Ég verð líka alltaf svo rauð og sveitt svo
það myndi hvort eð er ekki koma að miklu gagni.
Hvernig lítur fimm ára planið út hjá þér? Ég er kannski
ekki alveg komin með næstu fimm árin á hreint en ég er
nýbúin að gera þriggja ára samning við Malmö og langar
til að vera þar út samninginn. Draumurinn væri svo
auðvitað að fá kærastann hingað í atvinnumennskuna í
Svíþjóð. Planið er ekki komið mikið lengra eins og er.
Er búið að vera erfitt að vera aðskilin frá kærastanum í
vor? Já, við erum alveg límd saman venjulega svo það er
búið að vera pínulítið erfitt. Þetta verður nú samt þess
virði á endanum.
Ef þú þyrftir að hætta í fótbolta og hefja atvinnu-
mennsku í fjölbragðaglímu, hvaða sviðsnafn myndir
þú velja þér? Monster Pump.
Ef þú vilt verða
betri en hinar
verðurðu að æfa þig
meira en þær.