Monitor - 19.05.2011, Side 18
18 Monitor FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2011
stíllinn
Hvað voru þær að hugsa?
Nicole Richie:
Hin fíngerða
Nicole Richie
drukknar
í þessum
risavaxna kjól.
Rihanna:
Rihanna lítur út
eins og jólastafur
í fullri stærð í
þessum óheppi-
lega kjól.
Leona Lewis: Er
Leona Lewis að
senda einhver
skilaboð með
kyssulegum
vörum á brjóst-
unum?
Leighton
Meester: Stjarnan
úr Gossip Girl í
furðulegum kjól
sem minnir um
margt á brúna
útidyramottu.
Jennifer Love-
Hewitt: Hin ný-
trúlofaða Jennifer
Love-Hewitt
hæstánægð með
trúlofunina í hálf-
um brúðarkjól.
Eva Mendes:
Hin gullfallega
Eva Mendes
lítur út eins og
rjómatertusneið
með alltof margar
pífur á kjólnum.
Ashley Olsen:
Tískufríkið
Ashley Olsen lítur
út eins og róni
í öllum þessum
lörfum sem
hanga á henni.
Rosario Dawson:
Rosario Dawson
gæti auðveldlega
fengið sér blund
á risastóru
púfferminni.
Michelle
Williams: Hún
lítur út eins og
misheppnaður
hippi með
þetta herfilega
blómamynstur.
Miley Cyrus:
Aumingja Miley
Cyrus í kjól sem
líkir eftir því þegar
klósettpappír fest-
ist undir skónum
manns.
TÍSKUSLYS
Töpuðu fyrir
Suri Cruise
Hin fimm ára gamla Suri Cruise er fyrir ofan
tískuséní á borð við Sarah Jessica Parker,
Cate Blanchett, Lady Gaga og Nicole Richie
á lista tímaritsins Glamour yfir best klæddu
stjörnur ársins 2011. Listann má finna í
nýjasta tölublaði bresku útgáfu tímaritsins
og lenti litla
Suri Cruise í
21. sæti þrátt
fyrir að vera
aðeins fimm
ára gömul.
Lesendur
tímaritsins
velja hvaða 50
stjörnur kom-
ast á listann
og Suri hefur
greinilega
náð að heilla
Breta upp úr
skónum með tískuvitund sinni sem móðirin
Katie Holmes hefur lagt mikið í að ala upp
í henni. Best klædda stjarna ársins sam-
kvæmt lesendum Glamour er hin eiturnetta
Emma Watson sem flestir þekkja sem
hina göldróttu Hermione Granger úr Harry
Potter-myndunum. Watson hefur fullorðnast
mikið og klippti sig stutt eftir að tökum á
galdrakvikmyndunum lauk. Hún er nú ein
aðaltískufyrirmynd ungra stúlkna enda
virkilega töff og alltaf mjög smart.
Býr til skart úr
kattahárum
Tískuóðir kattaeigendur geta nú glaðst því
kattabloggarinn Kate Benjamin hefur nú
hafið framleiðslu á hárboltaskartgripum
sem eru gerðir úr kattahárum. Benjamin
hefur hannað ótalmörg kattaleikföng og
allskonar muni tengda dýrunum í gegnum
tíðina en hóf samstarf við skartgripa-
hönnuðinn Heidi Abramson nýlega til að
hrinda af stað framleiðslu þessara frumlegu
skartgripa. „Ég byrjaði á að greiða köttunum
mínum vel og lengi til að fá fullt af hárum
frá þeim og rúllaði þeim svo saman í litla
hárbolta,“ útskýrir Benjamin á blogginu sínu
en lesendur þess geta lært að búa til sína
eigin hárboltaskartgripi á síðunni. „Skartið
er ekki búið til úr hárboltum sem kettir
kasta upp heldur heimatilbúnum boltum
úr þurrum kattahárum,“ útskýrði Benjamin
enn frekar til að forðast allan misskilning.
Skartgripirnir verða að teljast heldur
furðulegir ekki síst vegna þess að erfitt er að
mæta með þá í veislu eða matarboð þar sem
ofnæmi fyrir kattahárum er mjög algengt.
Nýjasta hártískubylgjan í Hollywood um
þessar mundir er rautt hár og er hver stjarn-
an á fætur annarri komin með seiðandi
rauða lokka fyrir sumarið. Sumar ganga
lengra en aðrar sem láta sér nægja að setja
rauða tóna í hárið.
Eldheit
hártíska
Í HOLLYWOOD
Söngkonan unga setti
tískubylgjuna af stað
síðasta sumar með
eldrauðum lokkum
sínum sem fara fáum
vel. Einhvern veginn
nær Rihanna þó að
rokka þennan lit og
henni hefur tekist vel
að klæða sig og farða
með svo sterkan hárlit.
RIHANNA
Ungstirnið Miley Cyrus
var ekki lengi að pikka
upp nýjustu tískuna og
fékk sér rauða yfirtóna í
hárið. Þær sem vilja vera
hógværar í rauða litnum
ættu að taka Miley sér
til fyrirmyndar.
MILEY CYRUS
Það fer Drew Barrymore mjög
vel að vera ljóshærð, dökkhærð
og rauðhærð eins og hún hefur
sýnt og sannað í gegnum tíðina.
Leikkonan er ekki feimin við
að skipta um hárlit og var ekki
lengi að lita hár sitt eftir nýjustu
tískubylgju Hollywood.
DREW BARRYMORE
Náttúrulegur litur Amy Adams myndi
klæða nánast hvaða skvísu sem er vel og
virkar mjög vel fyrir hana. Ljósrautt hár
er líka mjög sumarlegt svo þær sem ætla
að skella sér á rauða litinn fyrir sumarið
ættu jafnvel að velja sér lit í þessum tón.
AMY ADAMS
Kynbomban ákvað að skipta ekki bara um
hárlit nýlega heldur skartar hún einnig nýrri
klippingu sem fer henni afskaplega vel.
Scarlett valdi frekar dökkan og djúpan rauðan
lit sem fer vel við ljóst litarhaft hennar.
SCARLETT JOHANSSON Ofurljóskan úr Gossip Girl vakti mikla athygli á
galakvöldi í New York fyrir stuttu þar sem hún er
búin að lita ljósu lokkana rauða. Í viðtali við tíma-
ritið US Weekly sagðist hún hafa litað hárið fyrir
hlutverk sitt í kvikmyndinni Hick og hyggst skipta
aftur yfir í ljósu strípurnar að tökum loknum.
BLAKE LIVELY