Monitor - 19.05.2011, Síða 20
kvikmyndir
Hæð: 168 sentímetrar.
Besta hlutverk: Hin léttgeggj-
aða María Elena í Vicky Cristina
Barcelona, en fyrir það hlutverk
hlaut hún óskarinn.
Staðreynd: Gerðist grænmetis-
æta árið 2000 eftir að hún lék í
myndinni All the Pretty Horses.
Eitruð tilvitnun: „Það erfiðasta
í heimi er að byrja ferilinn og
vera aðeins þekkt fyrir útlitið
og reyna svo að verða alvarleg
leikkona.“
1974Fæðist 28. aprílí borginni Alco-
bendas við Madríd á Spáni.
Skírnarnafn hennar er Penélope
Cruz Sánchez.
1992Þreytir frumraunsína í kvikmynd-
um þegar hún leikur í spænsku
myndinni Jamón, jamón.
1998Leikur í sinnifyrstu bandarísku
mynd, The Hi-Lo Country. Á
þessum tímapunkti hefur hún
búið í New York um skeið þar
sem hún lærir ballet og ensku
milli þess sem hún leikur í
evrópskum myndum.
2001Leikur í myndun-um Vanilla Sky og
Blow og slær í gegn á heims-
vísu. Sama ár byrjar hún með
Tom Cruise sem er mótleikari
hennar í Vanilla Sky. Sambandið
varir í þrjú ár en þau hætta
saman árið 2004.
2005Leikur í myndinniSahara og byrjar
með mótleikara sínum, Matt-
hew McConaughey. Þau hætta
saman ári síðar.
2006Gerist talskonafranska snyrti-
vörufyrirtækisins L‘Oréal og
fær um tvær milljónir dollara
á ári í laun fyrir að gegna því
hlutverki.
2007Byrjar meðleikaranum
Javier Bardem sem leikur á móti
henni
í Vicky
Cristina
Barce-
lona.
Þau
giftast
árið
2010 í lítilli athöfn á Bahama-
eyjum og eignast sitt fyrsta
barn í janúar 2011.
2008Hlýtur óskars-verðlaun sem
besta leikkona í aukahlutverki
fyrir frammistöðu sína í Vicky
Cristina Barcelona. Hún hefur
einnig verið tilnefnd til þessara
verðlauna fyrir myndirnar
Volver (2005) og Nine (2009).
Penélope
Cruz
FERILLINN
20 Monitor FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2011
Frumsýningar
helgarinnar
Þegar Johnny Depp trúlofaðist leikkonunni Winonu Ryder fyrir mörgum árum fékk hann sér
húðflúrið „Winona Forever“. Þegar þau hættu saman lét hann breyta því í „Wino Forever“.
Popp-
korn
Leikarinn Johnny Depp
glímir við undarlegt
vandamál þessa dagana.
Unnusta hans,
Vanessa
Paradis, hefur
skipað honum
að losa sig við
hattana sína
þar sem þeir
taka of mikið
pláss í íbúðinni þeirra í París.
Depp er þekktur fyrir að vera
mikill áhugamaður um hatta og
hefur meira að segja verið
útnefndur „hattamaður ársins“
í fjölmiðlum. Depp er sagður
kaupa nokkra hatta í hverri
viku og kunningi parsins segir
að Paradis hafi fengið nóg þegar
hann kom heim með hatt sem
hann keypti af útigangsmanni.
Framleiðendur myndar-
innar Cry Macho fullyrða
að vandræðin í einkalífi
Arnolds Schwarzenegger muni
ekki hafa
nokkur áhrif á
myndina. Cry
Macho verður
endurkoma
Schwarzenegg-
er í aðalhlut-
verk á hvíta
tjaldinu, en fyrr í mánuðinum
var greint frá því að hann væri
að skilja við eiginkonu sína,
Maríu Shriver. Þá kom í ljós að
ríkisstjórinn eignaðist barn
með fyrrum aðstoðarkonu sinni
fyrir meira en áratug. „Þetta
verður ekki glóðarauga fyrir
mann með svona svakalegan
feril að baki,“ sagði framleið-
andinn Albert Ruddy.
Leonardo DiCaprio
virðist ekki ætla að vera
lengi að jafna sig á skilnaðinum
við ísraelsku ofurfyrirsætuna
Bar Refaeli.
Hjartaknúsar-
inn var
myndaður með
leikkonuna
Blake Lively úr
Gossip Girl upp
á arminn á
snekkju á Cannes-kvikmynda-
hátíðinni sem er nú í gangi.
DiCaprio er 37 ára en Lively 23
ára og nú veltir slúðurpressan
því fyrir sér hvort hér sé að
myndast nýtt stjörnupar.
Aðeins eru liðnir nokkrir dagar
síðan DiCaprio og Refaeli hættu
saman, en þau voru búin að
vera saman í um sex ár.
Stórleikkonan Angelina
Jolie talar afar vel um
bresku söngkonuna Cheryl
Cole og segir hana hafa alla
burði til að slá í gegn í Holly-
wood. Cole hóf nýverið störf
sem dómari í
bandarísku
útgáfunni af
raunveruleika-
þættinum X
Factor og segir
Jolie hana vera
„afar fallega“ og
að hún sé búin að „hrista vel
upp í hlutunum“ vestanhafs.
Óskarsverðlaunaframleiðand-
inn Harvey Weinstein sagðist
sömuleiðis hafa mikinn áhuga
á að fá Cole í mynd hjá sér. Nú
er bara að sjá hvort Cheryl Cole
er næsta stórstjarna Hollywood.
Leikstjóri: Rob Marshall.
Aðalhlutverk: Johnny Depp, Penelope Cruz,
Geoffrey Rush og Ian McShane.
Lengd: 141 mínúta.
Aldurstakmark: 10 ára.
Kvikmyndahús: Sambíóin og Smárabíó.
Jack Sparrow (Depp) hittir Angelicu (Cruz), konu
sem hann deilir dularfullri fortíð með. Hann
veit ekki hvort það ríki ást á milli þeirra eða
hvort hún sé miskunnarlaus blekkingameistari
sem sé að nota hann til að finna lind æskunnar.
Angelica neyðir Jack um borð í skip hins ægilega
Svartskeggs sjóræningja (McShane). Jack lendir
í óvæntum ævintýrum og er ekki viss um hvort
hann óttast meira, Svartskegg eða Angelicu.
JACK OG ANGELICA ÞURFA EKKI AÐ FJÁRFESTA
Í NÝJUM KLÆÐNAÐI FYRIR ÖSKUDAG
Pirates of the Caribbean: On Stranger Tides
VILTU VINNA MIÐA?
Monitor er í sjóræningjaskapi í þessari
viku og ætlar að gefa nokkrum
heppnum lesendum miða á Pirates of
the Caribbean: On Stranger Tides.
Þá ætlar Monitor einnig að gefa boli
og fleira skemmtilegt sem tengist
myndinni. Það eina sem þú þarft að
gera er að fara inn á Facebook-síðu
Monitor og velja „like“ á Pirates-statusinn.
facebook.com/monitorbladid