Monitor - 26.05.2011, Blaðsíða 4
4 Monitor FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2011
Komdu í klúbbinn sem lætur
ekki bjóða sér hvað sem er
Verð frá 489.000 kr.
Viltu komast í útvalinn hóp fólks sem velur ekta hönnun og varast eftirlíkingar? Þá er
ektaVespa frá Piaggio eitthvað fyrir þig. Komdu og skoðaðu glæsilegt úrval í
sýningarsal Heklu eða á vespur.is og vertu með íMC Vespa hópnum á Facebook.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
M
yn
d/
Er
ni
r
Nú er tónlistin þín í anda 80‘s
tónlistar. Hvaðan er áhugi þinn á
slíkri tónlist upprunalega kominn?
„Hann er eiginlega bara kenndur við
pabba af því að hann hlustaði svo
mikið á þetta í gamla daga. Þegar
ég byrjaði að gera músík fannst
mér síðan ekkert hljóma rétt nema
þannig tónar.“
Sækirðu áhrif í gömul Gameboy-
og Nintendolög? „Það er aðallega
Sveinbjörn Hermigervill, sem á nú
helminginn í plötunni minni, sem
er að pæla í svoleiðis. Annars ólst
maður nú upp við þá tónlist, svo hún
er örugglega einhvers staðar þarna.“
Nú skartarðu gjarnan flottum
átfittum þegar þú kemur fram. Legg-
urðu mikið upp úr því að klæðnað-
urinn sé í einhverjum sérstökum
stíl og hvaðan koma gallarnir? „Þeir
koma út um allt, oftast úr fataskáp-
um hjá einhverjum mömmum. Ég
komst í fataskáp hjá mömmu Magga
félaga míns um daginn og hún lánaði
mér fullt af einhverjum gömlum
jökkum. Svo bara ef ég finn eitthvað í
geymslu hjá ömmu. Ég fann einhvern
gamlan jakka þar um daginn sem ég
er alltaf í núna. Þetta er allt eitthvað
gamalt og endurnýtt.“
Hvaða járn er Berndsen með í
eldinum núna? „Það er plata með
Þórunni Antoníu sem ég er bara að
pródúsera. Svo er maður að plana
smá Evrópumál – við erum að fara
að spila úti í Þýskalandi í haust.
Síðan er ég að vinna í svakalegu
sumarlagi sem kemur út í næsta
mánuði. Það verður á íslensku og
það verður örugglega þjóðþekktur
Íslendingur í því en það er reyndar
smá leyndarmál.“
Nú fréttist utan úr bæ að þú
værir á leið til Portúgal. „Þetta
eru staðfestar fréttir, maður ætlar
bara að reyna að meika það þar.
Ég er með plön um að reyna að
taka þátt í Eurovision 2012 fyrir
Portúgal. Ég held að ég yrði samt
bara svona á hljómborðinu en
reyni svo að finna einhverja sæta
stelpu og gera eitthvað lag með
henni fyrir keppnina. Þetta er svona
á grunnstigi, ég hef náttúrlega
svolítinn tíma í þetta.“
Hvað dregur þig þangað annað
en Eurovision-draumurinn?
„Kærastan mín er reyndar að fara
að læra þarna svo ég ætla með
henni. Annars er bara gott að vera
á meginlandinu upp á að spila úti,
ódýrara að fljúga og svona.“
Ertu með einhver
langtímamarkmið í bransanum?
„Góð spurning, ég veit það ekki
maður. Jújú, við erum að vinna aðra
plötu og halda áfram að vinna í
þessu. Ætli þetta endi svo ekki á því
að maður taki upp kassagítarinn
og spili þessi lög í þannig útgáfu?
Svo fer maður í djassinn og svona.
Þetta á örugglega eitthvað eftir að
breytast en maður er ekkert að
fara að hætta þessu.“
Stefnir á Eurovision
Berndsen horfir fram á bjarta tíma. Hann flytur til
Portúgal og stefnir á þátttöku í Eurovision 2012.
fyrir hönd Portúgal
2012
BERNDSEN KEMUR FRAM Á
SVÍNARÍ Á FAKTORÝ ÞANN 3. JÚNÍ