Monitor - 26.05.2011, Side 5
5FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2011 Monitor
fyrstu hæð
Sími 511 2020
FLOTTIR ÍTALSKIR DÖMUSKÓR, TÖSKUR, JAKKAR - MARGIR LITIR - MIKIÐ ÚRVAL
MESTA ÚRVAL LANDSINS AF ÍTÖLSKUM SPORTSKÓM - MIKIÐ ÚRVAL AF SANDÖLUM
Erum á
NÝ SENDING
MARGAR TEGUNDIR
AF SKÓSKRAUTI
11.790,- 15.390,-
11.990,- 7.990,- 11.790,-
15.990,- 11.790,- 12.990,- 11.990,-
10.990,- 12.990,- 12.990,- 11.490,-
„Þetta er gömul hugmynd hjá mér að setja sjúkdóminn
í listrænt form,“ segir Alma Geirdal, ljósmyndari, sem
gefur senn út sína fyrstu ljósmyndabók. Bókin heitir 24
tímar í búlimíu og í henni eru að finna ljósmyndir af
Ölmu sem sjálf hefur barist við lotugræðgi og lystarstol
í 9 ár.
„Ég er nemi í ljósmyndaskólanum og skilaði verkinu
sem verkefni þar. Þetta vakti þá mikla athygli og það
voru margir sammála um að það þyrfti að sýna þetta.
Þá einhvern veginn fór ég í gang með þetta og lét ekkert
stoppa mig og hingað er ég komin.“
Alma stóð áður fyrir samtökunum Forma sem unnu
að því að opna umræðuna í þjóðfélaginu um málefni
þeirra sem glíma við átröskun. „Ég hef lengi barist fyrir
málefnum átröskunarsjúkdóma. Ég var með samtök á
sínum tíma og mér finnst alltaf þörf á þessari baráttu á
Íslandi. Það var pælingin, svona fyrst og fremst. Að leyfa
fólki að skyggnast inn í þennan heim í gegnum listina.
Mér finnst það góð leið, það er gott að blanda þessu
saman,“ segir Alma og bætir við að útgáfa bókarinnar sé
langþráður draumur að verða að veruleika. Hér má sjá
myndir úr bókinni sem kemur út sunnudaginn næst-
komandi 29. maí.
Arna Geirdal tekur búlimíu
sem hún sjálf glímir við fyr-
ir með ljósmyndun að vopni
í nýrri ljósmyndabók.
Varpar
ljósi á
búlimíu
ALMA GEIRDAL AFHJÚPAR
SJÚKDÓM SINN Í GEGNUM LISTINA
Í BÓKINNI ER LJÓSI VARPAÐ Á ÁTRÖSKUNAR-
SJÚKDÓMA MEÐ ÁHRIFAMIKLUM MYNDUM
M
yn
d/
Kr
is
tin
n