Monitor - 26.05.2011, Page 12
kvikmyndir
Hæð: 182 sentímetrar.
Besta hlutverk: Hann sjálfur í
Hangover ... og reyndar lífinu
öllu.
Staðreynd: Sagan segir að hann
hafi verið meira en 90 kíló að
þyngd þegar hann var 13 ára.
Eitruð tilvitnun: „Aðdáendur
mínir elska mig ekki. Þeir
elska það sem ég geri. Ég er
skemmtikraftur.“
1966Fæðist 30. júníí Brooklyn í New
York.
1985Keppir í sínumfyrsta hnefaleika-
bardaga 18 ára gamall. Vinnur
26 af fyrstu 28 bardögunum
með rothöggi eða tæknilegu
rothöggi.
1988Kvænist leikkon-unni Robin Givens,
en skilur við hana ári síðar.
1990Tapar sínum fyrstabardaga gegn
Buster Douglas í Tókíó.
1991Handtekinn fyrirnauðgun á 18 ára
stúlku á hótelherbergi í Indi-
anapolis. Í febrúar ári síðar er
hann dæmdur í 10 ára fangelsi,
þar af fjögur skilorðsbundinn.
1995Sleppur úr fangelsií mars 1995 eftir
að hafa setið inni í þrjú ár.
1997Berst við EvanderHolyfield eftir að
hafa tapað óvænt fyrir honum
ári áður. Að þessu sinni þarf
að stöðva bardagann eftir að
Tyson bítur Holyfield í eyrað. Í
kjölfarið fær hann háa sekt og
árs bann.
1997Kvænist öðrusinni, að þessu
sinni konu að nafni Monica
Turner. Þeirra hjónaband varir
til ársins 2003. Þau eiga börnin
Rayna og Amir.
2008Heimildarmyndum líf Tyson er
frumsýnd á kvikmyndahátíð-
inni í Cannes. Myndin fær mjög
góða dóma.
2009Fjögurra ára dóttirTyson, Exodus,
deyr í furðulegu slysi eftir að
hafa flækst í snúru á hlaupa-
bretti. Tíu dögum síðar kvænist
Tyson í þriðja sinn, að þessu
sinni 32 ára konu að nafni
Lakiha Spicer. Þau eiga saman
börnin Milan og Morocco. Tyson
á átta börn svo vitað sé ef hin
látna Exodus er talin með.
Mike
Tyson
FERILLINN
12 Monitor FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2011
Frumsýningar
helgarinnar
Ef einhver á eftir að sjá Between Two Ferns þætti Zach Galifianakis
á sá hinn sami að fetta þeim upp á netinu og horfa á undir eins.
Popp-
korn
Þótt will.i.am sé sjálfur
aðalmaðurinn í einni
vinsælustu hljómsveit heims,
Black Eyed
Peas, þá segist
hann ekki hafa
getað setið á
sér þegar hann
hitti Johnny
Depp fyrir
skemmstu, svo
stjörnusleginn var hann af
návist stórleikarans. Depp og
will.i.am voru báðir að kynna
verðlaun á Nickelodeon Kids’
hátíðinni og að því loknu hljóp
will.i.am á eftir stórleikaranum
til að láta taka af sér mynd með
honum – sem hann segir að sé
einn af sínum uppáhaldsleikur-
um í bransanum.
Brad Pitt segir að lífið
hafi breyst til muna eftir
að hann varð faðir. Hann segist
afar upptekinn
af öryggi barna
sinna og er
áhyggjufullur
um að eitthvað
komi fyrir þau.
„Í raun er það
minn eini ótti.
Áður var ég uppteknari af
sjálfum mér en nú vil ég bara
vera viss um að allir séu í
góðum málum“. Hann bætir við
að einnig hafi leikaraferill hans
breyst en hann leggur enn
meira en áður upp úr því að
landa góðum hlutverkum og
gera góðar myndir svo börnin
geti verið stolt af honum.
Söngvari Foo Fighters,
Dave
Grohl, fer með
lítið hlutverk í
myndinni The
Muppets sem
kemur út
seinna á þessu
ári. Grohl segist
hafa notið þess að leika í
myndinni en segir hins vegar
alltof mikla áhættu fólgna í því
að eyða tíma sínum í bíó – enda
valdi myndirnar honum oftar
en ekki vonbrigðum. „Ef ég hef
bara tvo frítíma á dag, þá get ég
hugsað um 100 betri hluti til að
gera en að sitja og horfa á
mynd,“ segir rokkarinn.
Justin Bieber splæsti á
dögunum í splunkunýtt
tattú sem hann frumsýndi
þegar hann spókaði sig á
sundskýlu á
Hawaii. Um er
að ræða annað
húðflúr
ungstirnisins
sem fékk sér
sitt fyrsta í
tilefni af sextán
ára afmæli sínu. Kappinn, sem
nú er sautján ára, fékk sér þá
mynd af litlum fugli á mjöðm-
ina en nýja tattúið hans er
orðið „yeshua“ í flottu letri sem
er hebreska útlagningin á nafni
frelsarans, Jesú Krists. Tattúið
er staðsett við vinstri handar-
krika drengsins og bíða
slúðurmiðlar ólmir eftir
viðbrögðum aðdáenda. Talið er
að tilefni tattúsins sé sigurför
Biebers á Billboard-hátíðinni
um daginn þar sem hann vann
til sex verðlauna.
Leikstjóri: Todd Phillips.
Aðalhlutverk: Bradley Cooper, Ed Helms,
Zach Galifianakis og Justin Bartha.
Lengd: 102 mínútur.
Aldurstakmark: 12 ára.
Kvikmyndahús: Sambíóin.
Framhald af myndinni Hangover sem
kom út árið 2009. Nú fara félagarnir til Tælands vegna
brúðkaups Stu. Hann vill ekki taka neina áhættu eftir Veg-
asferðina og býður í dagbít fyrir brúðkaupið. En hlutirnir
fara ekki alltaf eins og ætlast er til. Það sem gerist í Vegas
verður kannski eftir í Vegas en það sem gerist í Bangkok er
ekki hægt að ímynda sér.
EINS OG KLIPPTIR ÚT ÚR
DRESSMAN-AUGLÝSINGU
The Hangover Part II
Leikstjóri: Kevin Munroe.
Aðalhlutverk: Brandon Routh, Anita
Briem, Sam Huntington og Peter Stormare.
Lengd: 107 mínútur.
Aldurstakmark: 14 ára.
Kvikmyndahús: Háskólabíó, Laugarásbíó
og Borgarbíó.
Í New Orleans tekur Dylan Dog (Routh) að sér að rannsaka
yfirnáttúrulega atburði þar sem hann þarf að kljást við
vampírur, varúlfa, uppvakninga og aðra fjanda frá helvíti.
Með aðstoð uppvakningsins Marcusar Adams (Hunting-
ton) rannsakar hann grunsamlegt mál Elizabeth Ryans,
sem leikin er af Anitu Briem.
Dylan Dog: Dead of night