Monitor - 02.06.2011, Blaðsíða 4
4 Monitor FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2011
Find og styrk dit talent på Idrætshøjskolen Bosei i Danmark. Find nye inte-
resser – og nye venner. Og find dit stærkere jeg – fysisk og mentalt. Se
video og billeder på www.bosei.dk og
læs mere om Sydsjællands nye idræts-
højskole med de interessante japanske
rødder. Efterårsholdene starter 10.
august 2011.
Ring +45 55 90 90 90 og snak med
forstander Erling Joensen om dine
muligheder.
BOSE
I - ET
SLAG
I FLER
E RET
NING
ER
TILMELD D
IG NU OG S
TART 10. A
UGUST Í síðustu viku voru Hemmi Gunn og
Matthías Vilhjálmsson teknir í viðtal
hjá MonitorTV sem upphitun fyrir
úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Þar
sagðist Hemmi Gunn hafa svo mikla
trú á sínum mönnum í Man Utd að
hann væri klár í veðmál ef honum
bærist hóflegt boð. Í kjölfarið sagðist
Matthías klár í að leggja undir boð í
matverð en kallaði Hemma jafnframt
„höfðingja“. Skemmst er frá því að
segja að Barcelona, sem Matthías
studdi, stóðu uppi sem Evrópumeist-
arar og Hemmi klikkaði hvergi á
höfðingsskapnum. Veðmálið efndi
hann með því að bjóða Matthíasi út
að borða.
„Ég bjóst nú að sjálfsögðu við þessu
frá þessum mikla höfðingja. Hann
bauð mér gjafabréf upp á hádegisverð
fyrir tvo á Humarhúsinu, fyrir mig
og kærustuna,“ sagði Matthías alsæll
með þetta. Monitor tekur ofan fyrir
Hemma Gunn.
„Við vöknuðum bara einn daginn og áttuðum okkur
á því að Tónlist.is væri orðinn of flókinn vefur, svo við
réðumst í það að bæta úr því. Við vorum með frábæra
virkni á vef okkar en ekki að koma því nægilega vel til
skila,“ segir Engilbert Hafsteinsson, framkvæmdastjóri
Tónlist.is en þeir opnuðu nýverið endurbætta útgáfu af
vef sínum. „Notkunin var orðin of flókin. Það var alltof
mikið að gerast á honum sem skipti kannski ekki máli
fyrir þá sem vildu bara fara inn á hann til að njóta góðrar tónlistar.“
Inni á vefnum eru yfir 6.500.000 lög, bæði íslensk og erlend. „Ásamt því
að einfalda vefinn bjóðum við upp á nýja leið til að prófa þjónustuna
þar sem áhugasamir geta skráð sig í prufuáskrift. Hún er ókeypis og
felur enga skuldbindingu í sér,“ segir Engilbert.
Metnaðarfull kynningarherferð
Til að kynna endurbætta vefinn stendur Tónlist.is fyrir tónleikaröð um
helgina í höfuðborginni og á Akureyri. Á Akureyri koma fram tónlistar-
menn á borð við Bang Gang, Friðrik Dór og Jón Jónsson en í Reykjavík
spila Pétur Ben, Bang Gang, Ourlives og Cliff Clavin. Nánar má lesa um
tónleikana á www.tonlist.is.
Annar liður í kynningu endurbætta vefsins er skemmti-
leg sjónvarpsauglýsingaherferð sem er væntanleg í
loftið. „Hugmyndin var að gera skemmtilega auglýsingu
sem sýnir hvernig tónlist tengist öllu því sem við erum
að gera. Til að ná þessu fengum við Guðjón Jónsson frá
Sagafilm og auglýsingastofuna Ennemm með okkur í
lið,“ segir Engilbert. Í auglýsingunni leikur sannkallað
einvalalið íslenskra poppara en þar má nefna Björgvin
Halldórsson, Pál Óskar, Ragnheiði Gröndal, Friðrik Dór
ásamt fleiri góðum. Sjá má myndskeið frá því að blaðamaður mætti
á tökustað auglýsingarinnar og tók viðtal við Guðjón leikstjóra og Pál
Óskar á MonitorTV.
Höfðinginn Hemmi Gunn bauð Matta Vill út að borða eftir
óbeint veðmál þeirra um úrslit Barcelona-Manchester United
Hemmi Gunn
stóð undir nafni
HEMMI BÝÐUR
Á HUMARHÚSIÐ
MONITORTV
Farðu inn á MonitorTV
á mbl.is og sjáðu viðtal
við Pál Óskar og sýnis-
horn úr auglýsingunni.
Tónlist.is endurbætti á dögun-
um vef sinn sem Engilbert Haf-
steinsson segir að hafi einfald-
að vefinn mikið. Til að kynna vefinn
sendir fyrirtækið meðal annars
frá sér sjónvarpsauglýsingar sem
skarta algjöru landsliði í popptónlist.
Í AUGLÝSINGU
Íslenska popplandsliðið
ENGILBERT HAFSTEINSSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI
TONLIST.IS
RAGNHEIÐUR GRÖNDAL BJÖRGVIN HALLDÓRSSON PÁLL ÓSKAR