Monitor - 02.06.2011, Qupperneq 6
6 Monitor FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2011
Fyrsta breiðskífa hljómsveitarinnar Vigri hefur
litið dagsins ljós og ber platan nafnið Pink Boats.
Upptökuferli plötunnar var af óhefðbundnum
toga en hljómsveitarmeðlimirnir flykktust út um
víðan völl með einn hljóðnema að vopni til að
taka upp plötuna.
„Við bjuggum til dæmis hjá bóndanum á Flatey
í Breiðafirði og konunni hans í einhverjar tvær
vikur og vorum að taka upp í kirkjunni þar á
meðan. Á þessum tíma vorum við Hansi bróðir
minn tveir af sex íbúum Flateyjar,“ segir Bjarki
Pjetursson, einn meðlimanna. „Platan átti að taka
svona mánuð í gerð en endaði á að taka tvö ár og
þrír hljómsveitarmeðlimir bættust við. Við lærð-
um helling af þessu, erum orðnir betri að taka
upp og kannski betri tónlistarmenn líka.“ Hann
segist hafa skemmt sér best við upptökur uppi í
Hallgrímskirkjunni. „Það var þvílíkt gaman. Við
spiluðum í rauninni á kirkjuklukkurnar þannig að
lagið ómaði út um alla Reykjavík,“ segir hann og
bætir við að sennilega sé þetta met hljómsveitar-
innar í áheyrendafjölda.
Hljómsveitin hyggst fylgja útgáfu plötunnar
eftir með fleiri verkefnum. „Í sumar erum við
að fara að halda fjölda tónleika. Við ætlum að
fara á einhverja litla staði og spila lögin okkar í
akústískum búningi þar sem kvikmyndatökulið
mun fylgja okkur.“
Það vekur athygli hve miklar pælingar og
metnað Vigramenn leggja í sín verkefni, en eru
þeir sem sagt svona miklir listamenn? „Ja, ég veit
það nú ekki. Við tökum okkur nú ekkert alltof
hátíðlega,“ svarar Bjarki og hlær.
VIGRI ER NEFND EFTIR SEINASTA SKIPI SEM AFI
TVEGGJA ÚR HLJÓMSVEITINNI VAR SKIPSTJÓRI Á.
Tóku upp
frumraunina
með einn
hljóðnema
Mynd/Árni Sæberg
Hvað er á döfinni hjá hljómsveitinni og þér í sumar?
„Það er bara ýmislegt. Við í Valdimar erum að fara
að spila hér og þar í sumar. Við erum að reyna að
plana smá svona ferðalag út á land í júlí. Við ætl-
um að taka svona nettan túr, aðeins að þræða
landið. Sjálfur er ég að vinna með Björgvini
Ívari Baldurssyni. Við erum að fara að taka
upp í júlí og það verður örugglega eitthvað
skemmtilegt.“
Hverjir eru svona helstu áhrifavald-
ar hljómsveitarinnar?
„Það er svolítið erfitt að segja
því hver meðlimur hefur sinn
áhrifavaldinn hver einhvern
veginn. Hjá mér er það
aðallega Radiohead, Bob
Dylan og Arcade Fire – og
svo náttúrlega Bítlarnir eins
og hjá öllum öðrum. Síðan
er til dæmis bassaleikarinn
mikill Bob Marley-maður,
aðrir eru miklir djassarar og
þetta blandast síðan allt í lögunum
hjá okkur.“
Hvað ert þú sjálfur að hlusta á þessa
dagana?
„Það er náttúrlega nýja Radiohead-
platan. Svo hef ég verið að hlusta
svolítið á plötur frá 2010 með LCD
Soundsystem, Beach House og
svona stuð bara.“
Nú eru stofnmeðlimir hljóm-
sveitarinnar báðir úr Bítlabæn-
um. Hvernig stendur á öllum þessum tónlistarhæfileikum í
Keflavík?
„Það virðist vera nokkuð af góðri tónlist úr Keflavík. Ég segi
kannski að þetta sé Mekka tónlistar á Íslandi en hér er svona
ágætisframleiðsla. Þetta hefur kannski minnkað pínu í seinni
tíð. Þetta var náttúrlega aðeins meira á árum áður en annars
finnst mér þetta búið að vera í svolítilli uppsveiflu aftur undan-
farin ár, sem er mjög gott.“
Við hverju má búast á Svínaríi á föstudaginn?
„Svínaríi. Nei nei, það verður bara eitthvað stuð. Það hefur
yfirleitt myndast mjög góð stemning þegar við erum að spila
þannig að ég geri bara ráð fyrir stemningu.“
Hljómsveitin Valdimar treður upp á
Svínaríi á Faktorý föstudaginn 3.
júní. Söngvari og nafni sveitarinn-
ar, Valdimar Guðmundsson, sagði
Monitor frá áformum bandsins og
tónlistarhefð Keflavíkur.
Gerir ráð fyrir
stuði og stemningu
Valdimar
Berndsen
Jón Þór
TUBORG OG MONITOR KY
NNA:
SVÍNARÍ Á FAKTORÝ
FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ 3. J
ÚNÍ
VALDIMAR ER VIRKUR Í TÓNLISTAR-
FRAMLEIÐSLU KEFLAVÍKUR