Monitor - 02.06.2011, Blaðsíða 20
kvikmyndir
Hæð: 168 sentímetrar.
Besta hlutverk: Betty Draper í
sjónvarpsþáttunum Mad Men.
Staðreynd: Hannar skartgripi.
Eitruð tilvitnun: „Ef þú hefur
eitthvað til að sýna skaltu
sýna það.“
1978Fæðist þann 5.janúar í bæn-
umSioux Falls í Suður-Dakóta
fylki Bandaríkjanna.
1996Flutti til New Yorktil að reyna fyrir
sér í fyrirsætubransanum. Þrátt
fyrir að vera heldur lágvaxin
fyrir bransann nældi hún sér í
nokkur hlutverk í auglýsingum
og lék meðal annars í auglýs-
ingu fyrir faraframleiðandann
Abercrombie & Fitch.
1998Byrjaði með leik-aranum Ashton
Kutcher.
1999Fékk sitt fyrstakvikmyndahlut-
verk í myndinni All The Rage
sem fékk frekar slæma dóma og
var ekki sýnd í mörgum fylkjum
Bandaríkjanna. Myndin fær 5,6 í
einkunn á IMDB.
2001Lék lítið hlutverk íunglingaspennu-
tryllinum The Glass House en
fékk litla athygli fyrir frammi-
stöðu sína. Sama ár kom hún
fyrir í myndinni Bandits. Sam-
band hennar og Ashton Kutcher
endaði stuttu eftir frumsýningu
myndarinnar.
2002Byrjaði meðsöngvaranum
Josh Groban. Þau hættu saman
þremur árum síðar.
2003Jones hélt áfram íörhlutverkunum
og lék í kvikmyndunum Anger
Management og American
Wedding sem var ein af fram-
haldsmyndum American Pie.
2007Sló loks í gegnsem Betty Draper
í sjónvarpsþáttunum Mad Men.
Hún hefur tvisvar sinnum verið
tilnefnd til Golden Globe og
einu sinni til Emmy-verðlaun-
anna fyrir hlutverkið.
2010Byrjaði með hand-ritshöfundinum og
leikaranum Jason Sudeikis sem
skrifar handrit að grínþáttunum
Saturday Night Live.
2011Hætti með Su-deikis og tilkynnti
tveimur mánuðum síðar að hún
ætti von á barni.
January
Jones
FERILLINN
20 Monitor FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2011
Frumsýningar
helgarinnar
Kvikmyndin Kazaam með Shaquille O’Neal í aðalhlutverki
er með heila 2,5 í einkunn á imdb.com.
Popp-
korn
Framhaldsmyndin The
Hangover: Part II hefur
slegið rækilega í gegn eins og
fyrri myndin
og eru
framleiðendur
nú þegar farnir
að huga að
þriðju
myndinni um
vandræðasegg-
ina. Handritshöfundurinn Craig
Mazin sem tók þátt í gerð
handritsins við aðra myndina
mun líklega skrifa handritið að
þriðju myndinni en ekkert
hefur verið gefið upp um
söguþráð hennar enn.
George Lucas segist vera
tilbúinn með efni í 50
Star Wars sjónvarpsþætti en
tæknin sé ekki nógu þróuð enn
til að taka þá
upp. Lucas
segist vera að
bíða eftir nýrri
tækni sem
hann geti
notað við
upptökur
þáttanna svo það borgi sig að
taka þá upp. Hann segir
kostnaðinn sem fylgi gerð
þeirra enn ekki nýtast nógu vel
til að gera trúverðuga þætti.
Skoski leikarinn James
McAvoy sem fer með
eitt aðalhlutverkanna í nýju X-
Men myndinni segir kvikmynd-
ir vera gerðar
einfaldari fyrir
Bandaríkja-
menn. Hann
segir breska
kvikmynda-
gerðarmenn
vísvitandi
reyna að gera kvikmyndir sínar
auðveldari skilnings svo
Bandaríkjamenn geti horft á
þær og skilið hvað sé að gerast í
söguþræðinum.
Julia Roberts fékk vægt
taugaáfall við tökur á
kvikmyndinni Larry Crowne
þegar hún þurfti að tala fyrir
framan fulla
skólastofu.
Hún segist
hafa orðið svo
stressuð að
tala fyrir
framan
bekkinn í
fyrsta skipti og fannst skóla-
stofan virkilega ógnvekjandi.
Tökurnar urðu þó skárri með
tímanum og sem betur fer tókst
Roberts að vinna bug á
óttanum.
Brad Pitt og Angelina
Jolie kunna svo
sannarlega að leika sér að
fjölmiðlum og þykir nýjasta
yfirlýsing Pitt
um að þau ætli
mögulega að
gifta sig
bráðum ekki
vera nein
tilviljun.
Tímasetning
yfirlýsingar-
innar þykir með eindæmum
hentug þar sem hann er
einmitt að kynna nýjustu mynd
sína, Tree Of Life um þessar
mundir.
X-Men: First Class
ÞAÐ ER ALLT Á HVOLFI ÞEGAR
X-MEN ERU ANNARS VEGAR
Kung Fu Panda 2
Leikstjóri: Jennifer Yuh.
Aðalhlutverk: Jack Black, Angelina Jolie, Jackie Chan
og Gary Oldman.
Aldurstakmark: Leyfð.
Lengd: 90 mínútur.
Kvikmyndahús: Sambíóin Akureyri, Álfabakka,
Egilshöll, Keflavík, Kringlunni, Selfoss, Laugarásbíó
og Smárabíó.
Í framhaldinu af Kung Fu Panda fylgjumst við áfram með pöndunni
Po (Jack Black), sem nú er loks orðin kung fu-meistari og hefur drýgt
margar hetjudáðir með hinum fræknu fimm,Tígrinum, Apanum,
Nöðrunni, Beiðunni og Trönunni og meistaranum Shifu. Albínópá-
fuglinn Shen (Gary Oldman) hefur safnað saman stórhættulegu liði
málaliða í þeim tilgangi að taka yfir gjörvallt Kína, með góðu eða
illu. Helst illu. Því þurfa Po og félagar að leggja upp í stórhættulega
herför þvert yfir Kína til að ráða niðurlögum þessa vopns áður en það
verður um seinan, bæði fyrir landið og kung fu-listina.
Myth Of The
American
Sleepover
Leikstjóri: David Robert Mitchell.
Aðalhlutverk: Jade Ramsey,
Nikita Ramsey og Amy Seimetz.
Aldurstakmark: Leyfð.
Lengd: 93 mínútur.
Kvikmyndahús: Bíó Paradís.
Hér fléttast saman sögur af
ungu fólki í leit að sínum fyrsta kossi, partíum
og ævintýrum áður en raunveruleiki skólalífsins
tekur aftur við völdum. Eins og gefur að skilja
rætist ekki alltaf úr barnslegu dagdraumunum
en það eru hins vegar hin óvæntu augnablik
sem móta unglingana fyrir lífstíð.
Leikstjóri: Matthew Vaughn.
Aðalhlutverk: James McAvoy, Michael Fass-
bender, Jennifer Lawrence og January Jones.
Aldurstakmark: Bönnuð innan 14 ára.
Lengd: 132 mínútur.
Kvikmyndahús: Sambíóin Egilshöll.
Hér er á ferðinni fjórða myndin í þessum
vinsæla kvikmyndabálki og fjallar um upphafið
á X-mönnunum. Myndin gerist á sjöunda áratugnum
þegar X-mennirnir voru fyrst kynntir fyrir heiminum
og er forsaga að hinum myndunum um X-mennina.
Hér kynnast áhorfendur þeim Magneto (Michael
Fassbinder) og Charles Xavier (James McAvoy) þegar
þeir voru ungir menn að uppgötva hæfileika sína í
fyrsta skipti. Þó þeir hafi síðar orðið erkióvinir voru
þeir bestu vinir sem ungir menn og stjórnuðu í
sameiningu hópi stökkbreyttra einstaklinga.
Eitt af
þessum
partíum
Courtney Love byrjaði í heróíni í partíi heima
hjá Charlie Sheen meðan Tom Cruise og
Madonna skemmtu sér í næsta herbergi.
Vandræðaskvísan Courtney Love greindi nýlega frá
upphafi heróínneyslu sinnar í viðtali við tímaritið The
Fix. Í viðtalinu segist Love hafa prófað eiturlyfið
í fyrsta skipti í sannkölluðu stjörnupartíi heima
hjá hinum alræmda Charlie Sheen sem virðist
eiga sök á öllu slæmu þessa dagana. Love
segist hafa farið í partí heima hjá Sheen í húsi
hans í Malibu ásamt þáverandi kærasta sínum.
„Kærastinn minn var að vinna fyrir Ben Stiller
á þessum tíma og hann bauð mér með sér í
partí heima hjá Charlie Sheen,“ útskýrði Love í
viðtalinu. „Tom Cruise var þarna, Madonna og
svo vinkona mín, Jennifer Finch, sem sannfærði
mig um að prófa heróín í partíinu.“ Love tók
þó sérstaklega fram að Finch væri nú búin
að vera edrú í 16 ár og hætt í eiturlyfjunum.
„Þarna byrjaði allt heróíndramað mitt, í einu af
þessum partíum“ sagði Love í viðtalinu en benti
þó á að á þessum tíma hafi hún verið byrjuð að
neyta annarra eiturlyfja í stórum stíl. „Ég man
eftir að hafa vaknað í flugvél sem var á leiðinni
til San Francisco, klædd í pels og kínverskan
brúðarkjól með 10 þúsund dollara í vasanum,“
sagði hún um vitleysuna sem fylgdi neyslunni.
COURTNEY KJAFTAR FRÁ
HERÓÍNINU Í HOLLYWOOD