Monitor - 02.06.2011, Síða 22
Kvikmynd Ég er með fjárans
„Balla-basic“ kvikmyndasmekk
og viðurkenni það fúslega. Því
er Forrest Gump að sjálfsögðu
uppáhaldskvikmyndin mín. En
þetta er erfitt val, get líka horft á
Die Hard 1 og Sin City aftur og aftur.
Sjónvarpsþáttur
Seinfeld. Langbest-
ur. Byrjaði reyndar
að horfa á þættina
þegar ég var orðinn
22 ára og horfði á
allt í einni bunu. Þá var ég búinn
að taka út nægan þroska til að
skilja Seinfeld. Hann breytti öllu.
Öllu.
Bók Páll Vilhjálmsson
eftir snillinginn
ömmu mína, Guðrúnu
Helgadóttur, er bók sem
ég verð að mæla með
fyrir alla sem hafa ekki
lesið hana. H Z vantar á bát! Kveðja,
Ásta, Barði, börnin. Orðagrín eins og
það gerist best.
Plata Öfugt við
kvikmyndirnar er ég
með mjög djúpan og
sérstæðan tónlistars-
mekk. A Rush of Blood to
the Head með Coldplay
er besta plata sem gerð hefur verið. Ég kann
fjögur hálf lög af henni á píanó! Sorrí,
Þorkell Máni.
Vefur Það væri
hræsni að
nefna ekki vef
sem ég fer inn
á oftar en 10
sinnum á dag,
Fótbolti.net. Strákarnir eru
að gera góða hluti. Það vita
ekki margir af henni en ég
held að hún eigi eftir að verða
vinsæl.
Staður Tjarn-
argata 39,
KR-völlurinn
og austurrísku
Alparnir á sólrík-
um vetrarmorgni.
22 Monitor FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2011
fílófaxið
Síðast en ekki síst
» Haukur Harðarson, íþróttafréttamaður, fílar:
„Sýningin fjallar um hvernig karlar hópa sig saman og hvað þeir
þurfa að gera til að stíga inn í hópinn,“ segir Gunnlaugur Egilsson,
meðlimur Klúbbsins. Myrkustu leyndarmáls Ingvars E. Sigurðsson-
ar, tónlistarmaðurinn Borko að dansa og karlremban í Birni Thors
eru allt viðfangsefni Klúbbsins sem frumsýnir verk á Listahátíð um
helgina. Klúbbinn skipa leikararnir Björn Thors, Ingvar E. Sigurðsson
og Ólafur Egill Egilsson, dansarinn Gunnlaugur Egilsson, tónlistar-
maðurinn Borko og listamaðurinn Huginn Þór Arason. „Hugmyndin
kviknaði fyrir tveimur árum síðan,“ útskýrir Gunnlaugur. „Okkur
langaði að búa til karlaklúbb og setja upp sýningu í leiðinni.“Hér er
á ferðinni klúbbur sem er til alls líklegur og lofa þeir sannkallaðri
leikhússprengju í Borgarleikhúsinu um helgina. Þeir hyggjast afhjúpa
æðsta leyndarmál listarinnar sem hlýtur að teljast stórt verkefni en
ef einhver getur það eru þessir sex einstaklingar líklegir til árangurs.
Miðaverð er 3.900 krónur og hægt er nálgast miða á Midi.is.
Dansleikhús
um karlmenn
fimmtud2júní
VALDIMAR OG AGENT
FRESCO
Kanturinn Grindavík
22:00 Sjómannahelgin hefst áKantinum þegar hljómsveit-
irnar Valdimar og Agent Fresco leiða saman
hesta sína. Aðgangseyrir er
1.500 krónur.
laugarda4júní
ALL-BUT-CLOTHES
MARKAÐUR
Hitt Húsið
14:00 Fólki á aldrinum 16-25 árabýðst að vera með frían
bás til að losa sig við föt, plötur, bækur, dvd,
raftæki eða bara hvað sem er. DJ Impulze
sér um tónlistina og veitingar verða í boði
Ölgerðarinnar.
TATTÚHÁTÍÐ
Sódóma
13:00 Tattúhátíðin heldur áframog á laugardagskvöldinu
sjá hljómsveitirnar Texas Muffin, El Camino
og The 59‘s All Star ásam Krumma og
Daníel Ágúst um að halda uppi stuðinu
eftir tattúmaraþonið. Tónleikarnir hefjast á
miðnætti.
FRIÐRIK DÓR OG
JÓN JÓNSSON
Græni hatturinn Akureyri
22:00 Bræðurnir Friðrik Dór og JónJónsson troða upp í tilefni
af tónlistarveislu Tónlist.is. Miðaverð er
1.500 krónur í forsölu og 2.000 krónur í hurð.
Miðasala fer fram í Pennanum Eymundsson.
STÓRTÓNLEIKAR
Nasa
23:00 Hljóm-sveitirnar
Bang Gang, Ourlives og
Cliff Clavin rokka á Nasa
í tilefni af tónlistarveislu
Tónlist.is. Miðaverð er
1.000 krónur í forsölu
og 1.500 krónur í hurð.
föstudag3júní
TATTÚHÁTÍÐ
Sódóma
13:00 Íslenska tattúhátíðin ferfram á Sódómu um helgina.
Opið er föstudag, laugardag og sunnudag
og hægt er að kaupa sér dagspassa eða
helgarpassa. Á föstudagskvöldinu koma fram
hljómsveitirnar Hoffman, Vintage Caravan,
Endless Dark og Legend. Tónleikarnir hefjast
á miðnætti.
SVÍNARÍ #3
Faktorý
22:00 Láttu þig ekki vanta á Svínaríum helgina. Hljómsveitirnar
Valdimar, Berndsen og Jón Þór koma fram
og gera tilraun til að skapa skemmtilegasta
kvöld lífs þíns. Frítt inn.
BANG GANG
Græni Hatturinn Akureyri
22:00 Hljómsveitin Bang Gang treð-ur upp í tilefni tónlistarveislu
Tónlist.is um helgina. Miðaverð er 2.000
krónur og miðasala fer fram í Pennanum
Eymundsson.
LOKAPRÓFIÐ skólinn
| 2. júní 2011 |
Í Proactiv® Solution eru efni sem hreinsa húð þína
og eyða bólum. Með daglegri notkum koma efnin í
veg fyrir að nýjar bólur myndist. Við lofum því!
Eftirtalin sjálfstæð Apótek selja einnig Proactiv Solution:
ReykjavíkuRaPótek, Seljavegi 2 // LyfjaboRg aPótek,
Borgartúni 28 //gaRðSaPótek, Sogavegi 108
uRðaRaPótek, Grafarholti //RIMa aPótek, Grafarvogi
aPótek HafnaRfjaRðaR, Tjarnarvöllum 11
ÁRbæjaRaPótek,Hraunbæ 115 //LyfjaveR Suðurlandsbr. 22
KLÚBBURINN
Borgarleikhúsið
Föstudagur kl. 20