Monitor - 16.06.2011, Blaðsíða 4
4 Monitor FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 2011
HÆ, HÓ, JIBBÍ JEI!
HAFFI HAFF GÆTI BRÁTT FARIÐ
AÐ KALLA SIG TÖFFI TÖFF My
nd
/S
ig
ur
ge
ir
HAFFI HAFF
Uppi á sviði að gera töff hluti
Haffi Haff borðar vanalega ekki nammi en
væri til í nokkra gúmmíbangsa á 17. júní.
Hvað ætlar þú að gera á 17. júní? Það er ótrúlegt hversu mikið allt
hefur breyst því í ár verð ég einn af þeim sem verða uppi á sviði á 17.
júní. Ég var alltaf bara einn af krökkunum sem voru að labba um og
skemmta sér en í dag er ég einn af þeim sem skemmtir unga fólkinu.
Þegar ég var yngri langaði mig alltaf að vera eldri og gera einhverja
töff hluti og það er einmitt það sem ég er að gera í dag.
Hvert er uppáhalds 17. júní nammið þitt? Úff, ég borða eiginlega
aldrei nammi en ef ég þyrfti að fá mér eitthvað á 17. júní yrðu það
líklega gúmmíbangsar.
Hvernig blöðru ætlar þú að fá þér á 17. júní? (Hlær) Blöðru? Ég held
ég myndi fá mér fullt af blöðrum í alls konar litum. Þannig gæti ég
flogið á brott hvenær sem ég vildi.
Hver er þín besta minning frá 17. júní? Fyrir nokkrum árum átti
ég frábæran 17. júní. Þetta var bara venjulegur dagur, ekkert spes
að gerast þannig séð. Ég hékk með vinum mínum, engin vinna og
ekkert stress. Við sátum á grasinu, fylgdumst með mannlífinu og
hlustuðum á tónlist. Veðrið var líka yndislegt sem gerði daginn enn
betri.
Hver er þín versta minning frá 17. júní? Ég held ég hafi aldrei lent í
neinu slæmu á 17. júní nema kannski jarðskjálftanum fyrir nokkrum
árum. Mér fannst jarðskjálftinn reyndar alls ekki það slæmur þó hann
hefði getað farið illa.
Hvað ætlar þú að gera í sumar? Þessa dagana er ég að vinna í nýrri
tónlist, nýrri plötu, nýjum líkama og nýju hugarfari. Ég er að vinna
mjög mikið í sjálfum mér og ætla að reyna mitt besta í að verða eins
góð persóna og hægt er. Mig langar að gera svo marga hluti á meðan
dvöl minni á þessari jörð stendur. Þið getið búist við fullt af frábærum
hlutum frá mér innan skamms!
M
yn
d/
Eg
ge
rt
RAKEL LÆTUR SIG DREYMA
UM POKÉMON-BLÖÐRU
RAKEL MJÖ
LL
Hárslaufa og
Svampur Sveinsson
redduðu málunum
Rakel Mjöll Leifsdóttir, söngkona, hefur mætt í
djammgalla gærkvöldsins í kaffiboð á 17. júní.
Hvað ætlar þú að gera á 17. júní? Vinkona mín Nína
á afmæli þann 17. júní. Hún hefur afmælisboð heima
hjá sér á Laugaveginum, eftir að hafa skoðað mannlífið
í miðbænum kíki ég því til Nínu í afmælissúpu. Mesta
skemmtunin er að hitta og stríða vinunum sem eru enn í
sömu fötunum og þeir voru í kvöldinu áður.
Hvert er uppáhalds 17. júní nammið þitt?
Snuddu-sleikjó í fánalitum. Klassískt.
Hvernig blöðru ætlar þú að fá þér á 17. júní?
Pokémon-blaðra væri draumurinn.
Hver er þín besta minning frá 17. júní? Fyrir tveimur
árum var ég sú sem mætti í afmælisboðið í fötunum sem
ég hafði verið í kvöldinu áður. Vinkona mín klæddi mig
í nýjan kjól, lagaði mig til, setti slaufu í hárið mitt og gaf
mér Svamps Sveinsson-blöðru. Við skemmtum okkur
stórkostlega og dagurinn varð mjög eftirminnilegur.
Hver er þín versta minning frá 17. júní?
Að vera að vinna og missa af hátíðarhöldunum.
Hvað ætlar þú að gera í sumar? Rétt eftir 17. júní fer
ég í tónleikaferðalag til Þýskalands með hljómsveitinni
minni, Útidúr. Í júlí verð ég Lundúnamær og svo skrepp
ég til Suður-Frakklands með nokkrum vinum mínum.
Þar munum við liggja í vínekrunum og njóta þess að
vera til.