Monitor - 16.06.2011, Síða 6
SKRÍTNASTA
Ég á þennan pallíettubrjóstahaldara
meira að segja í tveimur litum.
Hugmyndin var að nota þá innanundir
eitthvað gegnsætt eða flegið
svo aðeins glitti í pallíetturnar
en ég er enn að bíða eftir rétta
tilefninu.
6 Monitor FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 2011
Sumarið er á næsta leyti og ef
við verðum heppin mun sólin
láta ljós sitt skína á Íslandi í
sumar. Nú er kominn tími á að
fara að huga vel að húðinni
svo það verði ekki vandræða-
legt að sýna bera leggina á
Austurvelli í sumar. Stíllinn
er að sjálfsögðu með töfra-
lausnir fyrir lesendur og er
með yndislegar uppskriftir
að heimatilbúnum skrúbb
og dekri.
TÖLVUÞREYTT AUGU?
Það getur stundum verið rosalega erfitt
að slíta sig frá hinum spennandi heimi
Facebook og eftir langa störu fyrir fram-
an tölvuskjáinn fær maður stundum
illt í augun af þreytu. Þá er sniðugt að
hlaupa út í næsta apótek og fjárfesta í
rósavatni. Bleyttu bómul í rósavatninu
og leggðu yfir augun í 5-10 mínútur. Þá
ættir þú að vera búin að hvíla augun
nóg til að líða betur eða halda áfram að
skoða myndir á Facebook.
stíllinn
Hvernig myndir þú lýsa
stílnum þínum í fimm orðum?
Temmilega mikið magn af
allskonar.
Hver er uppáhaldshönnuður-
inn þinn? Úff, ég veit það ekki
en ég varð
alveg ástfangin
af því sem Spaks-
mannsspjarir eru að
gera núna og ég sá á Reykjavík Fashion
Festival. Svo er ég líka mjög hrifin af
skandinavískri hönnun.
Hversu mörg skópör átt þú? Ekki nógu
mörg að mínu mati en of mörg að
mati flestra annarra. Þau eru
um 50 en samt finnst mér ég
alltaf vera í sömu skónum!
Ef þú yrðir að fá þér tattú, hvað myndir
þú fá þér og hvar? Ég myndi fá mér
einhverja persónulega setningu eða orð
í fallegu letri á innanverðan úlnliðinn,
eitthvað sem mun alltaf vera mér kært
og verður ekki þreytt. Það á til dæmis
ekki við um loppurnar á brjóstunum á
tónlistarkonunni Eve sem
mér fannst voða flottar
einu sinni.
Hvaða flík er ómissandi að þínu mati
fyrir sumarið? Engin ákveðin flík kannski,
fyrir utan flott sólgleraugu, en það er
alveg nauðsynlegt að klæðast einhverju
munstruðu og/eða í fallegum lit í sumar.
Edda Sif Pálsdóttir, íþróttafréttamaður
og tískublaðamaður hjá NUDE leyfði
Stílnum að kíkja í fataskápinn sinn.
fataskápurinn
SALTSKRÚBBUR
Innihald:
Epsom salt
Extra virgin ólífuolía
Lífrænir sítrónu-blómadropar
Aðferðin er ósköp einföld. Setjið
saltið í glerkrukku eða hentugt
ílát, hellið ólífuolíunni yfir og setjið
blómadropa út í eftir smekk. Hægt
er að nota ýmsar tegundir blóma-
dropa og er til dæmis sniðugt að
setja frekar lavender-blómadropa til
að búa til slökunarskrúbb. Epsom
saltið er virkilega magnesíumríkt og
gott fyrir húðina, besta ólífuolían
er í glerflöskum og droparnir fást í
öllum helstu heilsubúðum.
Fegrunarráð
vikunnar
Myndir/Sigurgeir S
BESTA
Það er svolítið erfitt
að gera upp á
milli og velja eina
bestu flík en
þessi frábæri
tiger-pels
úr Topshop
er klárlega
meðal þeirra
bestu. Alltaf kúl og
mér finnst ég eiga
heiminn þegar ég
fer í hann.
ÞÆGILEGASTA
Yndislega hlýir, mjúkir og
gróflega ofnotaðir. Svo þykir
mér líka sérstaklega vænt um
þá því vinkona mín sem
bjó í Ástralíu sendi
mér þá í jólagjöf,
svo þeir eru
jafnframt
algjörlega
orginal.
DÝRASTA
66°Norður úlpan mín. Hún gæti
auðveldlega fallið í flokkinn
besta flíkin líka því hún hefur
haldið lífinu í kuldaskræfunni
mér síðustu vetur og er svo
sannarlega hverrar krónu
virði. Eitt sinn gerði ég þó
þau mistök, hálfsofandi
á dimmum vetrarmorgni,
að fara í silfraða skó við
og var eins og geimfari
í skólanum heilan dag.
Lengsti kjánahrollur
lífs míns.
FLOTT-
ASTA
Nýjasta ÍBV
treyjan mín,
ekki spurning!
Ég keypti
hana síðasta
sumar í Axel Ó
í Vestmanna-
eyjum og svo
heppilega vildi
til að þeir áttu hana með mínu nafni og
minni tölu. Svo á ég reyndar inni aðra
fótboltatreyju sem er aðeins flottari en
þangað til ég fæ hana er þessi flottust.
Klædd eins
og geimfari
í einn dag
NÝJASTA
Fyrir utan vinnutengd, afskaplega dönnuð föt
er þessi kjóll það nýjasta í skápnum. Ég keypti
hann á hlaupum í Zöru og er búin að nota hann
allavega tvisvar síðan við gallajakka, rautt belti
og skó með fylltum botni.
Sumarlegt og skemmtilegt.
ELSTA
Þegar langamma mín dó
fyrir nokkrum árum fór ég
í gegnum fataskápinn
hennar og fann margar
gersemar, meðal annars
þennan fallega undirkjól.