Monitor

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Monitor - 30.06.2011, Qupperneq 3

Monitor - 30.06.2011, Qupperneq 3
3 fyrst&fremst MONITOR@MONITOR.IS Ritstjóri: Björn Bragi Arnarsson (bjornbragi@monitor.is) Umbrot og hönnun: Hilmar Gunnarsson (hilmar@monitor.is) Blaðamenn: Einar Lövdahl Gunnlaugsson (einar@monitor.is) Sigyn „Smjagall“ Jónsdóttir (sigyn@monitor.is) Auglýsingar: Jón Ragnar Jónsson (jonragnar@monitor.is) Forsíða: Ernir Eyjólfsson Grafík: Elín Esther Myndvinnsla: Hallmar F. Þorvaldsson Útgefandi: Árvakur Prentun: Landsprent Sími: 569-1136 FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 2011 Monitor Feitast í blaðinu Rafdúettinn Captain Fufanu segir frá kynnum sínum af Köln í Þýskalandi. Áttir þú Pikachu eða Poison-sleggju? Það muna allir eftir einhverju af æðunum. Útileguhelgin mikla er framundan, ert þú á leið út á land? 8 Stíllinn fjallar um helstu hatta hennar Kötu hertogynju sem eru þó misfallegir. 16 Birgitta Haukdal saknar strákanna í Írafár og er á leið til Barcelona. 12 6 Á myndina úr heita pottinum neðst á síðunni vantar stjörnublaðakonuna Sigyn Jónsdóttur. Hún var í heitum potti á Spáni þegar myndin var tekin. Efst í huga Monitor 4 „Upprunalegu hugmyndina átti í rauninni Óli Palli á Rás 2. Bubbi er náttúrlega þar með þáttinn Færibandið og ég vinn þar sem tæknimaður. Þá byrjaði Óli Palli að segja við Bubba að hann yrði að gera lag með mér og svo byrjaði Bubbi sjálfur að segja við mig: „Jæja, hvenær eigum við að gera þetta lag?“ alveg á fullu og þetta vatt bara upp á sig.“ „Innblásturinn fyrir lagið er nátt- úrlega „eitís“ Bubbi, bara eins og hann var á níunda áratugnum. Ég hamraði alveg á því að þetta yrði að vera sú útgáfa af honum. „Bubbi var bara hreinn fag- maður. Hann kom inn í stúdíóið og söng þetta bara á „no time“. Við tókum tíu tökur og bara búmm, komið. Það var einmitt helvíti skemmtilegt að ég var með einhverjar Bubba-plötur á borðinu þegar hann mætti, ég hafði verið að hlusta á þær til að fá innblástur, og hann var ansi sáttur með það.“ Lagið, sem heitir Úlfur úlfur, var þó ansi lengi í fæðingu. „Maður hefur oft séð svona samstörf sem eru bara ekki nógu góð og það er bara verið að stilla saman einhverjum nöfnum þannig að ég vildi gera þetta alveg geðveikt. Það er búið að taka mig næstum ár að gera lagið, maður er búinn að leggjast í hvert einasta smáatriði. Stundum langaði mig meira að segja bara að hætta að gera músík, væntingarnar til þessa lags voru alveg að fara með mig. Ég vildi bara að þetta yrði besta lag sögunnar. Svo er maður bara loksins tilbúinn að sleppa þessu,“ segir Berndsen léttur á því. Það tók þó ekki allt í gerð lagsins jafnlangan tíma, því gítarleikarinn Hrafnkell Gauti þurfti bara eina töku í gítarsóló sitt í laginu. „Þetta er satt, ég hef aldrei séð neinn gera annað eins í stúdíó. Hann er alveg svaðalegur.“ Vildi gera besta lag sögunnar Lagið verður frumflutt í þættinum Virkir morgnar fimmtudaginn 30. júní kl. 11 og svo má búast við að lagið ómi í klúbbum miðbæjarins út sumarið. BUBBI HRIFINN AF BERNDSEN „Þetta er klassískur eitís–smellur. Þetta er auðvitað tónlist sem var í kringum mann á sínum tíma. Axlapúðar, sítt að aftan, kókaín og mikið af kvenfólki,“ segir Bubbi Morthens sem syngur viðlagið í sumarsmelli þeirra Berndsen. „Ég hef alltaf verið dálítið hrifinn af Berndsen. Mér finnst hann vera einlægur og heiðarlegur í því sem hann er að gera. Það er mikil ákefð í þessu hjá honum og hann er að upplifa hlutina á sínum forsendum. Maður segir ekki nei við svona stráka.“ Berndsen og Bubbi Morthens starfa saman í glænýju lagi sem verður frum- flutt fyrir helgi. Lagið heitir Úlfur úlfur og kostaði næstum árs langa vinnu. Þetta er 63. og síðasta vikublaðMonitor sem ég ritstýri, en ég er að halda á vit nýrra ævintýra. Ég þarf ekki að taka fram hversu skemmtilegir og viðburðaríkir undanfarnir 16 mánuðir hafa verið. Frá upphafi höfum við einsettokkur að upphefja þá sem gera góða hluti, fjalla um mál á léttum nótum og vera jafnhress og Hemmi Gunn. Skemmtilegast þykir mér að blaðið hafi náð þeim mikla lestri og árangri sem raunin er án þess að hafa nokkurn tímann skrifað neikvætt orð um nokkurn mann. Við stjórninni tekur snilling-urinn Jón Ragnar Jónsson. Honum til halds og trausts verður það góða fólk sem hefur unnið með mér að því að koma Monitor-skút- unni á þann stað sem hún er í dag. Framtíð blaðsins er björt. Ég ætla ekki að hafa þennanpistil lengri. Mig langar að nota plássið hér fyrir mynd sem tekin var í vikunni af okkur sem færum ykkur blaðið. Hún er lýsandi fyrir þá góðu stemningu sem ríkir á ritstjórninni. Skál fyrir ykkur kæru lesendur. Takk fyrir mig, Björn Bragi Á SJÓNUM Á Stokkseyri er hægt að fara í skemmti- legar kajakferðir. Margar mismunandi tegundir ferða eru í boði og geta fjölskyldur, skóla- og vinahópar fundið eitthvað við sitt hæfi. Það er gaman að róa um í faðmi fugla og sela og láta öldurnar bera sig út í hið óvænta. Eftir langa sjóferð er svo hægt að ylja sér í sundlaug bæjarins. Í MUNNINN Svo við höldum okkur á Stokkseyri þá er upplagt að smella sér á veitingastaðinn Fjöruborðið þar í bæ. Þar er hægt að gæða sér á dýrindis humarsúpu og eins er hægt að demba sér í heila humarveislu. Bragðlaukarnir verða hið minnsta ekki fyrir vonbrigðum. Á GOLFVELLINUM Strákarnir hjá Pro Golf eru virkilega færir golfkennarar. Hafir þú snefil af golfáhuga og vilt verða betri þá er um að gera að panta sér einn tíma hjá þessum snillingum. Þeir taka sveifluna í gegn og áður en þú veist af ertu farinn að fara holu í höggi alveg eins og vindurinn. Bubbi Mort- hens Hefði verið Prinsa- námskeið þegar ég var Lítil hefði ég grátið þar til móður mín hefði sent mig á slík.Áfram Prinsessunáskeið Djöfull er þetta að verða Grátt land og leiðinlegt. 28. júní kl. 14:09 Þórunn Antonía Er ì bikinìi ì Latabæ...bara svona basic Þriðjudagur:) 28. júní kl. 14:33 Verið hress, ekkert stress Vikan á... Vala Grand I miss my boyfr- iend so much aghhhhhhhhhh i wanna hold him and kiss him 28. júní kl. 17:42 Ingólfur Þórarinsson ...tókum hljóm- sveitaræfingu áðan fyrir Írska Daga sem eru um helgina ásamt Bjögga Halldórs, Mér leið svona aðeins eins og ég væri að hitta Elvis Presley og þrátt fyrir að vera sextugur sagði hann samt góðar sögur á okkar mælikvarða.... 28. júní kl. 23:51 Monitor mælir með JÓN RAGNAR, ELGUR, BJÖRN BRAGI OG HILMAR Óttar Snædal Fötin skapa manninn. 23. júní kl. 19:50

x

Monitor

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.