Monitor - 30.06.2011, Side 4
4 Monitor FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 2011
ELDRI KONUR
ELSKA
TEKNÓ
Hverjir eru strákarnir á bak við Captain Fufanu?
Hrafnkell Flóki Kaktus Einarsson og Guðlaugur
Halldór Einarsson. Við kynntumst á listnáms-
brautinni í Borgarholtsskóla. Við vorum báðir að
klára þá braut í vor. Gulli er úr Hlíðunum og bjó
í Þorlákshöfn þar til hann flutti í bæinn síðasta
sumar. Hrafnkell er úr Vesturbænum en flutti
seinna meir í Grafarvoginn þar sem hann býr nú.
Hvaða lag með Captain Fufanu á fólk að hlusta
á ef það þekkir ekki bandið? Það væri örugglega
lagið Unkind og kannski líka remix sem við
gerðum af Oculus, Be Forever heitir það. Þau má
finna á soundcloud.com/captainfufanu. Það er
voða mikil saga á bak við lagið Unkind, hitt er
svona meira í þeim dúr sem við spilum þegar við
erum að spila á sviði.
Hvernig er að starfa bara tveir saman í hljóm-
sveit? Rífist þið? Við náum voða vel saman,
eigum mjög einfalt með að skapa saman og
tjá okkur í gegnum tónlistina. Það er sennilega
einfaldara að deila þegar við erum tveir, þá er
miklu einfaldara að tala hinn aðilann til. Við
rífumst ekki neitt.
Hangið þið mikið saman fyrir utan tónlistar-
samstarfið? Já, þetta er miklu meira en bara
hljómsveit. Það má kalla okkur Fufanu-bræðurna.
Það virðist vera sem það sé líklegt til árangurs
að vera dúettar í raftónlist, samanber Daft
Punk, Justice og Chemical Brothers. Eru þetta
fyrirmyndir Captain Fufanu? Nei, ekki beint. Það
er samt alveg rétt að þessar hljómsveitir og til
dæmis Booka Shade og „instrumental“-hlutinn af
Gusgus, þetta eru allt dúettar. Ég veit samt ekki,
þetta virðist bara allt virka býsna vel sem dúettar.
Þið voruð úti í Þýskalandi á dögunum. Hvernig
kom það til? Við spiluðum með plötusnúð sem
heitir Shumi Okinawa árið 2009 og síðan aftur
á Airwaves 2010. Helgina eftir Airwaves þá
spiluðum við með honum á Insomnia-hátíðinni
í Noregi. Á þessum tíma mynduðum við góð
vinatengsl við hann og kunnum virkilega vel að
meta tónlistina hans og öfugt. Úti í Noregi stakk
hann upp á því að hann kæmi okkur að á hátíð í
Köln, C/O Pop. Síðan varð það bara að veruleika.
Hvernig var Köln að fara með ykkur? Það er
svo miklu meira skemmtanalíf þarna heldur en
í Reykjavík. Þarna er stuð alla daga. Við fórum í
bæinn á miðvikudegi og það var alveg æðisleg
tónlist alls staðar. Það voru bara allir dansandi
við hana og allir skildu tónlistina einhvern
veginn. Það voru til dæmis eldri konur þarna að
dansa sem elskuðu teknótónlist. Síðan stigmagn-
aðist þetta bara dag frá degi, þetta hætti ekkert.
Kemur til greina að þið reynið fyrir ykkur af
alvöru á Þýskalandsmarkaði? Já, það held ég. Við
erum allavega báðir ótrúlega hrifnir af Köln núna
og langar að fara þangað aftur.
Mynduð þið þá kalla ykkur Führer Fufanu? Ja,
ætli maður þyrfti ekki aðeins að íhuga það.
M
yn
d/
Al
la
n
HRAÐASPURNINGAR
Hvort mynduð þið frekar vilja gefa
út lag sem innihéldi saxófónsóló frá
Bill Clinton eða rappkafla frá Barack
Obama? Saxafónsóló frá Bill Clinton.
Hvort mynduð þið frekar vilja fá
að spila á tónleikum með Sinfóníu-
hljómsveit Ísland eða Karlakórnum
Fóstbræður? Karlakórnum.
Hvort mynduð þið frekar „covera“
Fjöllin hafa vakað eða Garden
Party? Garden Party, það væri erfitt
að betrumbæta coverið af Fjöllin hafa
vakað sem færeyska ofurmennið
gerði.
Hvort mynduð þið frekar vilja stíga
á svið með Emmsjé Gauta eða Júlí
Heiðari? Júlla.
Hvort mynduð þið frekar vilja spila
á MELT!-hátíðinni eða fá að semja
tónlistina fyrir Hollywood-mynd?
Það fer eftir því hverjir myndu leika í
myndinni.
Sykur
Captain Fufanu
ByPass
MONITOR
OG TUBOR
G KYNNA:
SVÍNARÍ Á
FAKTORÝ
FÖSTUDA
GSKVÖLD
IÐ 1. JÚLÍ
#4
SJÁÐU CAPTAIN FUFANU
Á FAKTORÝ FÖSTUDAGINN 1. JÚLÍ!
Í KÖLN
Rafdúettinn Captain Fufa
nu hefur verið iðinn
við að troða upp frá sínu f
yrsta giggi árið 2008.
Félagarnir spiluðu nýlega
á hátíð í Köln sem
þeir kalla fæðingarstað te
knótónlistar.