Monitor - 30.06.2011, Side 6

Monitor - 30.06.2011, Side 6
6 Monitor FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 2011 Stál og hnífur – Bubbi Morthens Nína – Stebbi og Eyfi Fram á nótt – Nýdönsk Lífið er yndislegt – Hreimur Wonderwall – Oasis Rangur maður – Sólstrandagæjarnir Bahama – Ingó og Veðurguðirnir Þú komst við hjartað í mér - Hjaltalín Sódóma – Sálin hans Jóns míns Hjálpaðu mér upp – Nýdönsk Rómeó og Júlía – Bubbi Morthens Án þín – Sverrir Bergmann Don‘t Stop Believing – Journey ÚTILEGULÖG SEM ÞÚ ÞARFT AÐ KUNNA Taktu með þér pylsur eða hamborgara og allt tilheyrandi sem þú nennir að hafa með þér. Svo er rosalega gott að eiga eitthvað til að narta í það sem eftir er kvölds eins og til dæmis saltstangir. Drykkir fara eftir hverjum og einum en flestum finnst gott að eiga að minnsta kosti smá appelsínudjús til að fá sér í morgunsárið. Það er kannski augljóst en í útilegu er mjög mikilvægt að hafa með sér tjald til að gista í. Lítil tjöld eru yfirleitt auðveldari í uppsetningu en þau stærri svo byrjendur gætu til dæmis keypt sér ódýrt þriggja manna tjald til að lenda ekki í vandræðum. Fyrir lengra komna eru tjöld með svefnálmum algjör snilld ef rigna fer því þá er hægt að sitja inni í fortjaldinu og hafa það notalegt. MIKLA Það er komið að því! Um helgina þyrpast Íslendingar á tjaldstæði landsins og gera það besta úr íslenska veðrinu. Það er ekkert sumarlegra en að gista í tjaldi, sitja og syngja útilegulög, borða grillmat og hafa gaman með vinum sínum úti í íslensku náttúrunni. Núna er tíminn. Farðu í útilegu um helgina! Hér er listi yfir það sem þú þarft að taka með þér til að gera upplifunina sem besta. Listinn er alls ekki tæmandi. TJALD ÚTILEGUHELGIN Ekki stoppa á leiðinni og fá þér sjoppuhamborgara, grillaðu þinn eigin úti í miðri náttúrunni á einnota grilli. Grillin eru einföld í notkun og geta líka myndað skemmtilegan mið- punkt á tjaldstæðinu þar sem fólk safnast saman og hefur gaman. EINNOTA GRILL Ullarnærfötin eru nauðsynleg fyrir allar íslenskar útilegur. Klæddu þig í þessi hlýju undirföt og helgin verður frábær. Kuldi kemst ekki að þér og þú getur valsað áhyggjulaus um tjaldstæðið án þess að vera kappklædd/ur í snjógalla eða dúnúlpu. Góð samsetning fyrir útileguna eru ullarnærföt, lopapeysa, þægilegar buxur og góðir ullarsokkar. Aukasokkar hafa aldrei skaðað neinn svo Monitor viti til. FATNAÐUR GÍTAR Það er ekki nauðsynlegt að allir taki með sér gítar í útilegu en gott er að ganga úr skugga um að einhver félaga þinna geri það. Af ein- hverjum ástæðum finnst fólki mjög gaman að syngja í útilegum þegar kvölda tekur enda fátt skemmtilegra á björtum sumarnóttum. Fáðu gítarleikarann til að læra nokkur góð lög fyrir ferðalagið svo það skapist ekki vandræðaleg þögn eftir tvö lög. Einnig er hægt að nálgast söngbækur með gítargripum á bensínstöðvum. Góður svefnpoki kemur manni langt í að halda góðum hita í líkam- anum yfir nóttina. Flestir vilja einnig taka með sér kodda til að sofa á og svo er þægileg dýna æskileg til að bakið eyðileggist ekki á einni nóttu. Vindsængur eru mjög sniðugar og þægilegar að sofa á en það getur verið mikil þolinmæðisvinna að pumpa í þær. Reyndar er hægt að kaupa uppblásara sem blæs upp vindsængina á nokkrum mínútum en sá er algjör lúxusgræja. SVEFNPOKI, KODDI OG DÝNA MATUR DRYKKUR FYRSTA HELGIN Í JÚLÍ ER VINSÆL TIL FERÐALAGA FÁTT ER BETRA EN AÐ NJÓTA NÁTTÚRUNNAR Í GÓÐUM FÉLAGSSKAP Monitor tók saman nokkur góð ráð fyrir ferðalanga helgarinnar sem ætla að skella sér í útilegu.

x

Monitor

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.