Monitor - 30.06.2011, Síða 8
8 Monitor FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 2011
Leikurinn Pogs var geysivinsæll hér á landi í lok tíunda áratugarins enda
virkilega sniðugur leikur hér á ferð. Uppruni pogsins, eða poxins eins
og það var yfirleitt kallað hér á landi, er rakinn til Hawaii og hefur verið
spilaður af börnum þar frá upphafi 20. aldar.
Hvað eru pogs?
Litlar hringlaga þykkar pappírsskífur
með myndum á. Þær flottustu eru með
glanshúð utan um og til þess að spila
pogs þarf líka að eiga eina sleggju.
Hvað eru sleggjur?
Sleggjurnar eru notaðar til að spila
leikinn. Þær eru úr plasti eða málmi
og eru þyngri en pogsin. Poison–sleggj-
urnar voru það allra heitasta þegar pogsið
yfirtók ungmenni Íslands. Margar þeirra
voru með mjög töff myndum af hauskúpum á.
Hvernig spilar maður pogs?
Hægt er að spila leikinn á marga vegu en hér eru nokkrar grunnreglur sem
eru sameiginlegar með flestum útgáfum leiksins.
1. Allir leikmenn setja jafnmörg pogs í stafla í miðjuna. Pogsin snúa niður.
2. Leikmenn skiptast á að slá á bunkann með sleggjunni sinni svo hann
tvístrist. Þau pogs sem snúast við fær leikmaðurinn að eiga.
3. Þau pogs sem snerust ekki við eru sett aftur í stafla og næsti gerir.
„Gotta catch‘ em all!“
Japaninn Satoshi Tajiri átti hugmyndina að tölvuleiknum Pokémon sem
Nintendo framleiddi fyrir Gameboy árið 1996. Nafnið Pokémon er smíðað
úr japönsku orðunum yfir vasaskrímsli, Poketto Monsuta. Leikurinn sló
rækilega í gegn og fljótlega var hafin framleiðsla á allskonar vörum tengdum
leiknum og persónum hans eins og til dæmis teiknimyndir, teiknimynda-
blöð og auðvitað spilin frægu sem gerðu allt vitlaust hér á landi í
kringum árið 2000.
Flestir, ef ekki allir, sem voru á aldrinum 6-14 ára árið 2000 áttu
eða söfnuðu Pokémon í stórum stíl. Algengast var að krakkar
skiptust á spilum en margir spiluðu einnig Pokémon-spilið sjálft til
að eignast fleiri spil.
Á hverju Pokémon-spili er mynd af persónunni sem það heitir eftir,
styrkleikar hennar listaðir upp og stig hennar. Til eru tvær gerðir af
flestum Pokémon-persónum, venjuleg og þróaðri. Sumar Pokémon-persónur
hafa einnig þriðju útgáfuna sem er einskonar barnapokémon, frumstigið.
Til dæmis er Charmander frumstig persónunnar Charmeleon sem seinna
þróast í Charizard sem er öflugastur þeirra þriggja.
POGS „Áttu poison–sleggju?“
BANN Í SKÓLUM
Eftir að pogsæðið hófst á Íslandi
fóru krakkar að safna pogsum í
stórum stíl og tóku staukana oftar
en ekki með sér í skólann til að
pogsa í frímínútum. Skólayfirvöld-
um fannst pogsið trufla nemendur
mikið og jafnvel vera einskonar
fjárhættuspil þar sem spilað
væri upp á pogs í hverjum
leik. Á endanum var
pogsið bannað í skólum
hér á landi, sem og til
dæmis í Bandaríkjunum,
vegna óhemju mikillar
útbreiðslu þess.
Sumir söfnuðu þessu öllu, aðrir létu sér nægja að
eiga einn eða tvo Draccokarla. Allir kannast þó
við æðin sem tóku yfir Ísland hvert á fætur öðru.
Á ÍSLANDI
ÞESSI POISON-SLEGGJA
ER BANEITRUÐ
SLÁÐU TVÖ ÆÐI Í EINU
HÖGGI – POKÉMON POGS!
POGSIN VORU GEYMD
Í ÞARTILGERÐUM STAUKUM
PIKACHU
Ein aðalpersónan í
teiknimyndunum um Pokémon
heitir Pikachu og er hér á
ferðinni þekktasti Pokémoninn.
Pikachu er einnig sá vinsælasti
og hefur með tímanum orðið eitt af
aðalvörumerkjum japanskrar menn-
ingar. Pikachu getur geymt rafmagn í
kinnunum sínum og notar það til að skjóta
eldingum í bardaga.
ÞETTA
KRÚTTLEGA
DÝR GETUR
DREPIÐ MEÐ
RAFMÖGNUÐ-
UM KINNUM
SÍNUM
POKÉMON-DÝRIN KOMA
ÚT ÚR SVONA KÚLU
POKÉMON
ASH OG FÉLAGAR
Á GÓÐUM DEGI
KRÚTTIÐ CHARMANDER VERÐUR HINN BANEITRAÐI
CHARMELEON OG SÍÐAR HINN ÓGURLEGI CHARIZARD