Monitor - 07.07.2011, Blaðsíða 14
Kvikmynd: The Eng-
lish Patient. Jóhannes
Haukur kynnti mig
fyrir þessari stórkost-
legu mynd nýlega,
klárlega uppáhalds!
Þáttur: Á ekki
sjónvarp en elska
Despó (Desperate
Housewives),
á einstaklega
auðvelt með að
lifa mig inn í allt dramað
hjá úthverfaskvísunum. Það
er alltaf hátíð hjá mér hver
jól þegar ný sería kemur út.
Bók: Moleskine Berlínar
bókin mín - hún er í stöðugri
vinnslu en
stútfull af
spennandi hug-
myndum sem
bíða þess að
verða prófaðar.
Einhvern daginn verður hún
afskaplega verðmæt.
Plata: Söngur Riddarans - lög við ljóð
Páls Ólafssonar. Fallegustu ástarljóð
í heimi ná nýjum hæðum á þessari
plötu. Það er ótrúlega gott að
hlusta á hana rétt áður en maður
fer að sofa, komin í náttfötin en á kannski
eftir að klára uppvaskið, brjóta saman pínu
þvott eða jafnvel skrifa á póstkort. Yndisleg
síðsumarplata.
Vefsíða: www.make-
everything-ok.com,
kíki reglulega hér inn,
það er alveg ótrúlegt
hvað þessi síða getur gert.
Mæli með að tjékka á henni
þessari, hún á eftir að
breyta lífi þínu.
Staður:
Ísafjörður, að
tölta út í fjöru,
setjast á stein, leyfa
fjöllunum að faðma sig
og horfa á þau speglast í sléttum
pollinum, maður kemst ekki mikið
nær himnaríki, jú reyndar, ef maður
man að taka súkkulaði með í nesti.
14 Monitor FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 2011
Síðast en ekki síst
Í Proactiv® Solution eru efni sem hreinsa húð þína
og eyða bólum. Með daglegri notkum koma efnin í
veg fyrir að nýjar bólur myndist. Við lofum því!
Eftirtalin sjálfstæð Apótek selja einnig Proactiv Solution:
ReykjavíkuRaPótek, Seljavegi 2 // LyfjaboRg aPótek,
Borgartúni 28 //gaRðSaPótek, Sogavegi 108
uRðaRaPótek, Grafarholti //RIMa aPótek, Grafarvogi
aPótek HafnaRfjaRðaR, Tjarnarvöllum 11
ÁRbæjaRaPótek,Hraunbæ 115 //LyfjaveR Suðurlandsbr. 22
fílófaxið
fimmtud7júlí
„Þetta eru svona styrktartónleikar fyrir Orphic Oxtra. Þeir eru að fara
að gefa út plötu og vantar smá pening. Við erum öll vinir svo þetta er
bara smá vinagreiði. Við eigum eftir að rukka það einhvern tímann
aftur,“ segir Valdimar Guðmundsson sem kemur fram ásamt hljóm-
sveit sinni á Faktorý á föstudagskvöld. „Ætli við rukkum ekki inn
greiðann þegar við förum og spilum í Staple Center í Los Angeles,“
segir hann í hæðnistón aðspurður um hvort ekki eigi að fara út að
„meika“ það í bráð. „Þetta er í raun bara upphitun fyrir hálfleiks-
sýninguna á Ofurskálinni, úrslitaleik NFL. Smá Balkantónlist frá
Valdimar og Orphic Oxtra myndi örugglega leggjast vel í Kanann.“
Ekki stendur það til að hljómsveitirnar taki lagið saman en Valdimar
segir allt geta gerst. „Ég get þó ekki tekið í básúnuna með Orphic
Oxtra því það er bara pláss fyrir einn básúnuleikara. Ef það eru tveir
þá er alltaf hætta á að þeir fari að skylmast með básúnunum,“ bætir
Valdimar við léttur í bragði. Aðgangseyrir á tónleikana er 1.000 krónur.
Bara pláss fyrir
einn básúnuleikara
laugarda9júlí
SUMARFAGNAÐUR
REYK VEEK
Iðusalir
14:00 Nýjar svalir hafa veriðopnaðar á Iðusölum þar sem
hægt er að slaka á og liggja í sólbaði ef veður
leyfir. Reyk Veed sér um að spila seiðandi
tóna á meðan íslenskir hönnuðir sýna og
selja list sína, gamlir safnarar selja plötur og
Grand Marnier býður upp á léttar sumarveit-
ingar. Frítt inn!
TRÍÓ RAGNHEIÐAR
GRÖNDAL
Jómfrúin
15:00 Veitingahúsið Jómfrúin viðLækjargötu hefur staðið fyrir
tónleikaröð í sumar og nú mun Ragnheiður
Gröndal stíga á svið ásamt Guðmundi
Péturssyni, gítarleikara og Leifi Gunnarssyni,
kontrabassaleikara. Sérstakur gestur tríósins
verður gítarleikarinn Jón Páll Bjarnason.
Aðgangur er ókeypis.
OF MONSTERS AND MEN
OG VIGRI
Norðurpóllinn
21:00 Hljómsveitin Of Monstersand Men, sem sigraði
Músíktilraunir í fyrra treður hér upp á fimmtu
tónleikum tónleikaraðarinnar Rafmagnslaust
á Norðurpólnum. Þá mun Vigri einnig stíga
á stokk en forsíðu-Matti fer einmitt fögrum
orðum um þá í viðtalinu í miðju blaðsins.
Miðaverð er 1500 krónur við hurð.
LOKAPRÓFIÐ skólinn
| 7. júlí 2011 |
föstudag8júlí
GÖTUHÁTÍÐ JAFNINGJA-
FRÆÐSLUNNAR
Austurvöllur
14:00 Ýmsir listamenn troða uppog boðið er upp á pylsur og
candy floss. Fatamarkaður verður á staðnum,
gefins smokkar og klifurveggur. Nánar er
fjallað um hátíðina á blaðsíðu 3 í blaðinu.
Allt að gerast - alla fimmtudaga!
ERT ÞÚ
AÐ GERA EITTHVAÐ SKEMMTILEGT?
monitor@monitor.is
» Þórunn Arna Kristjánsdóttir, leikkona, fílar:
VALDIMAR, ORPHIC OXTRA,
OF MONSTERS AND MEN
Föstudagur 8. júlí
Faktorý kl. 23