Monitor - 14.07.2011, Blaðsíða 4
4 Monitor FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 2011
Mynd/Sigurgeir S.
Hvenær kviknaði hjólaáhuginn?
Fyrir tveimur árum þá vissi ég ekki hvað götuhjólreiðar voru en þá kom
pabbi heim með bókina um Lance Armstrong. Sem algjör óviti spurði ég
hvort hún væri um gaurinn sem fór til tunglsins en pabbi sagði mér að lesa
bókina áður en ég myndi segja eitthvað meira (Hér á Emil Tumi við hjól-
reiðakappann sigursæla en ekki tunglfarann Neil Armstrong). Eftir að hafa
lesið bókina var ekki aftur snúið. Ég varð alveg heillaður af íþróttinni og fór
að setja mér markmið og æfa af krafti. Á sumrin vinn ég bara í Erninum og
hjóla allan daginn. Þannig að í staðinn fyrir að vera með vinum mínum á
sumrin er ég mest með þrítugum gaurum.
Hvert hjólaðir þú síðast?
Ég hjólaði frá Reykjavík til Hvolsvallar en það eru 110 kílómetrar. Þar gekk
mér mjög vel og náði fimmta sæti í heildarflokki. Ég hjólaði vegalengdina
á 3 klukkutímum og 28 mínútum. Þeir sem unnu mig eru strákar sem
fóru á Smáþjóðaleikana fyrir Íslands hönd og þeir eru enn sem komið er
alla vega betri en ég og ég er því mest að keppast við Íslandsmeistarann í
kvennaflokki.
Og hvert ertu að fara?
Ég er sumsé að fara út á Ólympíuleika æskunnar sem haldnir verða í
Tyrklandi. Ég legg af stað héðan 20. júlí og á að keppa mína fyrstu keppni
25. júlí en þá fer fram 9 kílómetra tímataka. Ég keppi líka í 70 kílómetra
götuhjólreiðakeppni og síðan í 30 kílómetra hringakeppni þar sem þú ert
úr leik ef þú ert hringaður. Það er mikið af góðum hjólreiðaköppum sem
hafa unnið þessa keppni sem eru nú orðnir atvinnumenn og get ég nefnt
sem dæmi Mark Cavendish sem er að keppa í Tour de France núna. Þetta er
líka spennandi verkefni af því að ég veit ekki alveg 100% hvað ég er að fara
út í þar sem ég er fyrsta ungmennið frá Íslandi sem keppir í hjólreiðum á
þessu móti.
Er ekkert erfitt að æfa bara með fólki sem er töluvert eldra en þú?
Ég held ég hafi grætt mikið á því að æfa alltaf með stóru strákunum. Með
þeim gat ég ekkert gefist upp, mér var bara sagt að þegja og halda áfram
þannig það hefur bara styrkt mig að æfa með betra fólki.
Af hverju ertu svona ótrúlega góður að hjóla?
Ég legg hart að mér og stefni að því sem ég vil. Ég stefni að því að verða
betri en allir aðrir. Ég stefni að því að vera kominn á meðal þeirra bestu á
Íslandi á næstu tveimur árum.
Er mikil fórn sem fylgir þessu?
Hjá mér er fórnin töluverð en hún þarf ekki að vera það. En hjá mér er
hjólið númer eitt, tvö og þrjú. Ég á sem betur fer góða vini sem nenna
að hanga með mér í þau fáu skipti sem ég læt sjá mig. Annars ætti ég
örugglega enga vini (hlær).
Kanntu að sleppa höndum?
Já, auðvitað. Ég þarf líka að gera það af og til svo að ég geti rétt úr bakinu og
eins til að ná mér í mat aftan á bakið.
Er stefnan sett á atvinnumennskuna?
Ég stefni klárlega á hæsta markmið en það er spurning hvort það rætist.
Ég stefni á að taka þátt í einhverri stórri keppni og atvinnumannaferill er
draumur. Ég er byrjaður að fá smá kostun frá Erninum en það er vonandi
bara byrjunin. Það er gott að fara í svona keppnir eins og Ólympíuleika
æskunnar til að stórir aðilar sjái þig og vilji bjóðast til að borga undir þig
búnað og dagpeninga. Þá gæti ég starfað að fullu við það sem mér finnst
skemmtilegast.
Hver er fyrirmyndin í hjólaíþróttinni?
Lance Armstrong er og verður alltaf stór fyrirmynd en í augnablikinu held
ég mikið upp á Andy Schleck sem er ungur hjólakappi frá Lúxemborg. Það
er mjög hollt að eiga ungar fyrirmyndir þá hefur maður stærri drauma.
Hefur þú stundað aðrar íþróttir?
Á veturna spila ég körfubolta af og til með Ármanni. Ég fæ að mæta í
keppnir og mæta á æfingar af og til af því ég er svo upptekinn í hinu.
Fylgir þessu mikil kvenhylli?
Ég er lítið að tala um þetta. Stelpurnar vita samt eflaust af þessu en ég
veit ekki hversu aðlaðandi þröngi spandex-gallinn er. En ég á alveg nóg af
vinkonum svo ég þarf ekkert að örvænta að minnsta kosti.
Hver eru þín framtíðarmarkmið?
Markmiðið mitt núna er að komast í íþróttaskóla í Danmörku þar sem ég
læri allt en hjólreiðar eru aðalatriðið. Helgi Halldórsson, snjóbrettakappi,
gerði þetta og það reyndist honum mjög vel. Ég myndi þá alltaf vera að
keppa og ég myndi bara græða á því.
Svona rúllar E.T.
EMIL TUMI
VÍGLUNDSSON
Starf: Örninn.
Skóli: Réttarholtsskóli.
Aldur: 19.09.96 – Lance á afmæli 18.
Hjól: Trek Madone.
Áhugamál: Íþróttir yfir höfuð og bílar.
Hjúskaparstaða: Á lausu.
Uppáhaldsteiknimyndakarakter: E.T.
– skammstöfunin mín og minn maður.
Tónlist: Kings of Leon.
EMIL TUMI HUGSAR UM
HJÓL ALLAN DAGINN
BIKE SPECIAL
Bombay Bicycle Club eða Bye Bye Bicycle? BBC.
Hvað eru mörg hjól í Beijing samkvæmt Katie
Melua? Syngur hún ekki „there are 5 million
bicycles in Beijing?“ Ég segi 5 milljónir.
Hjólaatriðið úr Napoleon Dynamite eða úr E.T.?
E.T. allan daginn.
Fyrir sex árum fór Emil T
umi Víglundsson á sitt fy
rsta
fjallahjólanámskeið í Nau
thólsvík. Nú í dag hugsar
hann
um hjól allan daginn; vinn
ur í Erninum og undirbýr
sig af kappi fyrir hjólreiða
keppnina á Ólympíuleiku
m
æskunnar sem fara fram
í lok mánaðarins.