Monitor - 11.08.2011, Síða 6
6 Monitor FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 2011
BEGGA BJÚTÍ
BÝR Í BARCELONA
stíllinn
Berglind Árnadóttir opnaði búðina The
Work Shop ásamt Helgu Lilju Magnús-
dóttur fyrr í sumar. Að sögn Berglindar
eða Beggu, eins og hún er yfirleitt kölluð,
hefur búðin fengið frábærar viðtökur og
verður opin lengur en upphaflega var
áætlað. Berglind hefur sopið marga fjöruna
þegar kemur að fatahönnun og kennir við
skólann IED í Barcelona um þessar mundir.
Monitor fékk að forvitnast aðeins um
Beggu og fatahönnun hennar.
Hvernig kom það til að þú
ákvaðst að opna þína eigin búð?
Ég tók þessa ákvörðun um síðustu
jól þegar ég var hérna heima í fríi.
Ég átti nefnilega lager af vörum
og langaði að koma heim og
láta reyna á þetta. Í janúar
hóf ég svo undirbúning til að
geta opnað búðina í sumar
og var svo ótrúlega heppin
að kynnast Helgu Lilju sem
á Helicopter. Hún var til í
samstarf þannig að þetta
gekk alveg rosalega vel.
Hvernig viðtökur hefur
búðin fengið? Alveg
frábærar, betri en ég þorði
að vona.
Hvernig föt finnst þér
skemmtilegast að hanna?
Ég dett oft í að hanna fínni
klæðnað fyrir konur en ég
er með allt frá kvöldkjólum
til prjónavara, reyndar alltaf
með mjög kvenlegu yfirbragði.
Hannar þú bara fyrir konur? Hingað til
hef ég gert það. Ég hefði alveg gaman af
að gera línu fyrir karlmenn og það gæti
vel gerst einn daginn. Um tíma hannaði
ég líka föt fyrir stærsta barnafatafram-
leiðanda á Spáni en núna ætla ég bara að
einbeita mér að konum. Mér hefur alltaf
fundist það skemmtilegast enda á mörgu
að taka í slíkri hönnun.
Hvernig myndir þú lýsa nýjustu línunni
þinni í fimm orðum? Sérstök, rokkuð en
mjúk, kvenleg og draumkennd.
Hvaðan sækir þú innblástur? Í allt
mögulegt eins og til dæmis fólk úti á götu,
bækur, vintage-búðir, bíómyndir og aðra
hönnuði en svo er líka margt sem poppar
upp í hausnum á mér og ég veit ekki
hvaðan það kemur. Þá er gott að vera alltaf
með teikniblokk og penna á sér.
Hver er þinn uppáhaldshönnuður? Ég á
mér engan einn uppáhalds, það fer alveg
eftir ári og árstíðum. Fyrir komandi vetur
er það samt Gucci, ég elska línuna.
Hvað átt þú mörg skópör? Heilan helling,
ég hef ekki tölu á þeim. Samt geng ég alltaf
í sömu 3-4 pörunum.
Hvaða snyrtivöru gætir þú ekki verið án?
Aloe Vera-gels!
Hvað er það ósmekklegasta sem þú veist
um? Kúrekahattar og jú, skældir hælaskór
líka (hlær).
Hver er best klædda kona heims að
þínu mati? Ein sem kemur strax upp í
hugann er Olivia Palermo, hún er alltaf svo
fullkomin og smart.
Berglindi Árnadóttur þykir kúrekahattar virkilega ósmekklegir og
gæti ekki verið án Aloe Vera-gels. Vinir hennar kalla hana Beggu.
Kvenleg og
draumkennd
Myndir/Árni Sæberg
Tí
sk
um
yn
di
r/
Jo
se
G
ua
ld
a