Monitor - 11.08.2011, Blaðsíða 10
kvikmyndir
Daniel
Craig
Hæð: 178 sentímetrar.
Besta hlutverk: James Bond.
Staðreynd: Heldur með Liver-
pool FC í enska boltanum.
Eitruð tilvitnun: „Um leið og þú
reynir að vera kynþokkafullur
tekst þér það ekki.“
1968Fæddist þann 2.mars í breska
bænum Chester.
1974Lék í sínu fyrstaskólaleikriti
og fékk þá hina umtöluðu
leiklistarbakteríu.
1992Giftist skoskuleikkonunni Fiona
Loudon. Sama ár eignuðust þau
dótturina Ella.
1994Skildi við eigin-konuna Fiona og
byrjaði stuttu síðar með þýsku
leikkonunni Heike Makatsch.
Þau hættu saman sjö árum
síðar.
2001Kom sér á kortiðí Hollywood sem
erkióvinur Angelinu Jolie í
kvikmyndinni Lara Croft: Tomb
Raider.
2004Byrjaði með kvik-myndaframleið-
andanum Satsuki Mitchell. Þau
sáust fyrst saman opinberlega á
frumsýningu James Bond-kvik-
myndarinnar Casino Royale.
2005Skrifaði undirsamning um að
leika ofurtöffarann James Bond.
Craig er eini ljóshærði Bond-
leikarinn og einnig sá lágvaxn-
asti hingað til.
2008Missti hluta affingurgómi eins
fingra sinna við tökur á Bond-
myndinni Quantum Of Solace.
Craig gerði grín að atvikinu
eftir á og sagðist nú geta hafið
glæstan glæpaferil svona fingra-
faralaus.
2010Sleit sambandisínu við Satsuki og
varð ástfanginn af leikkonunni
Rachel Weisz. Þau kynntust við
tökur á kvikmyndinni Dream
House. Sama ár skrifaði hann
undir samning um að leika
rannsóknarblaðamanninn
Mikael Blomkvist í Hollywood-
útgáfu leikstjórans David
Fincher af Karlar sem hata
konur eftir Stieg Larsson.
2011Giftist RachelWeisz við litla at-
höfn í New York þar sem aðeins
fjórir gestir voru viðstaddir.
FERILLINN
10 Monitor FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 2011
Frumsýningar
helgarinnar
Harrison Ford hefur leikið Indiana Jones í öllum fjórum myndunum um kappann. Á næsta ári verður
tuttugastaogþriðja James Bond myndin frumsýnd og þá mun Daniel Craig leika njósnarann í þriðja sinn.
Popp-
korn
Twilight-leikkonan
Kristen Stewart er
komin í stutt frí vegna
óeirðanna í
London.
Framleiðsla
kvikmyndar-
innar Snow
White And
The Hunt-
smen hefur
verið stöðvuð tímabundið til að
tryggja öryggi aðstandenda
myndarinnar. Hin 21 árs gamla
Stewart og meðleikari hennar,
Chris Hemsworth, eru bæði í
lögreglufylgd og halda sig fjarri
miðborginni á meðan fríinu
stendur.
Leikarinn Jon Cryer sem
er þekktastur fyrir
hlutverk sitt í þáttunum Two
And A Half
Men gerði grín
að nýjum
mótleikara
sínum, Ashton
Kutcher, í
nýlegu viðtali.
Hann sagðist
hafa leikið sitt
fyrsta stóra kvikmyndahlutverk
á móti Demi Moore í kvik-
myndinni No Small Affair og þá
hafi Ashton einmitt verið sjö
ára gamall pjakkur.
Tónlistarsjónvarpsstöð-
in VH1 rannsakar nú
tengslin milli hip hop-tónlistar
og kókaíns
fyrir þáttinn
Planet Rock:
The Story Of
Hip Hop And
The Crack
Generation
sem verður
sýndur í næsta
mánuði. Þar er fjallað um
þróun neyslu krakks í hip hop-
heiminum og í þættinum koma
meðal annars fram þeir Snoop
Dogg og B-Real úr Cypress Hill.
Hjartaknúsarinn
Antonio Banderas segist
ekki hafa viljað eiga í ástar-
sambandi við
Madonnu þar
sem hún sé of
kraftmikil
kona.
Poppdrottn-
ingin fór ekki
leynt með
hrifningu sína á leikaranum í
heimildarmyndinni In Bed
With Madonna sem var gefin út
árið 1991 en Banderas segist
hafa verið mjög stressaður í
návist hennar vegna lélegrar
enskukunnáttu sinnar.
Heimildarmyndamóg-
úllinn Michael Moore
stakk upp á í nýlegu viðtali að
leikarinn Matt
Damon færi í
forsetafram-
boð. Hann
segir Damon
hafa verið
óhræddan við
að segja
skoðanir sínar í gegnum tíðina
og benti á að leikari hefði nú
áður farið í forsetaframboð.
Ekki er vitað hvort Damon hafi
íhugað að bjóða sig fram til
forseta Bandaríkjanna.
Cowboys & Aliens
INDIANA JONES OG JAMES BOND ERU
BLANDA SEM GETUR EKKI KLIKKAÐ
Leikstjóri: Jon Favreau.
Aðalhlutverk: Daniel Craig, Harrison Ford
og Olivia Wilde.
Lengd: 118 mínútur.
Aldurstakmark: 14 ára.
Kvikmyndahús: Laugarásbíó og Sambíóin
Álfabakka.
Þegar minnislaus aðkomumaður mætir í
smábæ í villta vestrinu verður hann umsvifalaust
miðpunktur athyglinnar. Aðkomumaðurinn
hefur enga hugmynd um fjarveru sína og vaknar
með dularfullan hlut á hendinni. Ókunnugir
eru ekki velkomnir í þennan litla bæ þar sem
bæjarbúar lifa í ótta við ofurstann Dolarhyde.
Þegar aðkomumaðurinn er hnepptur í varðhald
ofurstans verður bærinn fyrir skyndilegri árás
geimvera og er aðkomumaðurinn þeirra eina von.
Aðskotahluturinn er nefnilega eina vopnið sem
dugar gegn innrás geimveranna.
Strumparnir 3D
Leikstjóri: Raja Gosnell.
Aðalhlutverk (talsetning): Laddi, Ævar Þór
Benediktsson, Atli Rafn Sigurðarson, Þröstur Leó
Gunnarsson, Kjartan Guðjónsson og Jóhanna
Guðrún Jónsdóttir.
Lengd: 100 mínútur. Aldurstakmark: Leyfð
Kvikmyndahús: Smárabíó og Háskólabíó.
Þegar Kjartan galdrakall eltir Strumpana úr
þorpinu þeirra og yfir í okkar heim lenda þeir
óvart í Central Park í New York. Strumparnir þurfa
að spjara sig í stórborginni og finna leið aftur í
þorpið sitt áður en Kjartan finnur þá og upphefst
þá fjörugur eltingaleikur.
Árið 2005 varð gríðarleg söluaukning á fullorðins-
bleyjum og var ástæðan útgáfa hryllingsleiksins
F.E.A.R. sem sló hörðustu nöglum þvílíkan skelk í
bringu að annað eins hafði ekki sést. Nú á dögunum
kom út þriðji leikurinn í þessari mögunuðu seríu og
þá er spurningin hvort framleiðendunum hafi tekist
að halda ferskleikanum.
Leikmenn fara í hlutverk genabreytta hermannsins
Point Man sem kom við sögu í fyrsta leiknum. Allt er
orðið brjálað í Fairport-borg og ætlar okkar maður að
vaða þar inn til að bjarga félaga sínum. Með honum
í för er morðóði bróðir hans Paxton Fettel eða öllu
heldur vofa hans, þar sem hann dó í fyrsta leiknum.
Í gegnum söguþráðinn fá leikmenn að fræðast meira
um samband þeirra bræðra og af hverju þeir eru
svona klikkaðir.
Sögu leiksins geta leikmenn spilað sem annað hvort
Point Man eða Fettel, en auk þess er hægt að spila í
gegnum hann tveir saman í „co-op“ á einni tölvu eða
í gegnum netið.
F.E.A.R. 3 er fyrstu persónu skotleikur þar sem
leikmenn þjóta um þrönga ganga sem tengja hin
ýmsu svæði saman og því lítið um frelsi í leiknum.
Vopnin eru dæmigerð eða allt frá skammbyssum að
sniperrifflum í bland við hagla- og vélbyssur. Þegar
hasarinn verður hvað harðastur geta leikmenn svo
hægt á atburðarrásinni tímabundið og látið vaða á
óvinina í „slow motion“.
Óvinirnir í leiknum eru af ýmsum toga en í flestum
tilfellum eru leikmenn að berjast við heilu hjarðirnar
af hermönnum sem eru mjög vel forritaðir og er
gervigreind leiksins til mikillar fyrirmyndar og mjög
krefjandi. Grafíkin í F.E.A.R. 3 er hinsvegar töluvert á
eftir því sem við eigum að venjast í dag, en tónlist og
talsetning sleppur vel fyrir horn.
Ég þurfti ekki að seilast eftir bleyju-
pakkanum í þetta sinn enda hrylling-
ur leiksins aðeins í ágætu meðallagi
en leikurinn bætir vel fyrir það með
miklum hasar, skemmtilegum
söguþræði og frábærri „co-op“
spilun. Allt þetta gerir F.E.A.R.
3 að hinni bestu skemmtun
og mæli ég með honum sem
góðum og fjölbreyttum skotleik
sem nær að grípa mann allt frá
upphafi til enda.
Ólafur Þór Jóelsson
H.R.Æ.D.D.U.R.
Tegund: Skotleikur
PEGI merking: 18+
Útgefandi: Warner
Dómar: Gamespot 7,5 af 10 /
IGN 8 af 10 / Eurogamer 8 af 10
F.E.A.R
TÖ LV U L E I K U R