Monitor - 01.09.2011, Síða 17
17FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2011 Monitor
Mynd/Golli
1999
Búdrýgindi æfir í fyrsta sinn, sama
ár og meðlimir bandsins urðu tólf
ára.
„Þarna voru menn búnir að betla
græjur í jólagjöf og ég man að Viktor
var sendur með alla sparipeningana
sína að kaupa bassamagnara og bleika
gítaról. Við vorum allir búnir að vera
saman síðan í 1. bekk í Kópavogs-
skóla.“
Komu fram í Ísland í dag á Stöð 2.
„Við sendum tölvupóst á Stöð 2 og
sögðumst bara vera hljómsveit sem
vildi koma í sjónvarpinu og þau bitu á
agnið. Við tókum þetta upp um pásk-
ana ’99 þegar Kani-æðið var í hámarki,
eins og sjá má á buxunum okkar.
Þetta var fyrsta skipti sem maður var
tekinn í viðtal, þetta gerði mikið fyrir
okkur og var ákveðinn vendipunktur.
Ég man samt að við vildum taka
miklu aggressívara lag en þau vildu fá
eitthvað rólegt, við vorum kannski of
pönkaðir fyrir páskadagskrá Stöðvar 2
en þetta var gaman.“
2000
Taka þátt í Músíktilraunum og eru
útnefndir „bjartasta vonin“.
„Þetta var skemmtilegt úrslitakvöld af
því að Dikta var að keppa líka, Ólafur
Arnalds var að spila á trommur með
Mannamúl og svo unnu Rottweiler. Þeir
voru flottir og voru voða næs við okkur
litlu krakkana.“
Nýr söngvari gengur til liðs við
bandið stuttu eftir Músíktilraunir,
Magnús Ágústsson.
„Valgeir Tómasson, gamli söngvarinn,
var á fullu í íþróttum og ákvað að
fara að einbeita sér að því. Þá grófum
við upp Magga sem var nýkominn í
skólann okkar, svipaður gæi og við
og var svolítið týndur í lífinu svo við
tókum hann upp á okkar arma.“
2001
Búdrýgindi tekur upp í fyrsta sinn
og skellir upptökunum á Rokk.is.
2002
Siggalafó kemst í fyrsta sæti á
Rokk.is.
„Með þessu komst dálítið „underg-
round-vibe“ í gang. Um svipað leyti
fórum við í Rokkland hjá Óla Palla.“
Hljómsveitin ber sigur úr býtum í
Músíktilraunum.
„Við erum örugglega fyrsta
hljómsveitin til að vinna þar sem
allir meðlimirnir tóku saman strætó á
úrslitakvöldið því enginn gat skutlað
okkur. Okkur datt ekki í hug að við
myndum vinna af því að við vorum svo
ungir og myndum til dæmis aldrei fá
að spila á neinum börum. Markmiðið
var að lenda í svona þriðja sæti, þá
hefðum við fengið stúdíótíma en svo
bara unnum við og það var alger
snilld. Við vorum reyndar svo rólegir
að við fórum heim að sofa og fengum
okkur síðan hamborgara daginn eftir
til að fagna því, við vorum ekki meiri
rokkstjörnur en það. Það var reyndar
rosalegt skítkast á Hugi.is eftir að við
unnum en við ákváðum bara að gera
grín að því.“
Fyrsta platan, Kúbakóla, kemur út.
„Við áttum strax efni í plötu og
fengum útgáfusamning eftir sigurinn.
Það var alger draumur að gefa þetta út.
Við tókum hana upp með Jóni Skugga
og hann gerði þetta helvíti vel. Maður
var mjög stoltur og við reyndum að
pranga þessu inn á alla í skólanum
okkar og ég held að það hafi enginn
þorað að segja nei.“
Morgunblaðið birtir viðtal við
Búdrýgindi þar sem Axel trommari
er ítrekað nefndur Alex.
„Ég lendi í þessu annan hvern dag að
fólk kalli mig Alex. Í MH lásu kennarar
mig oft upp sem Alex þótt það stæði
Axel fyrir framan þá. Ég veit ekki hvort
það séu bara allir lesblindir á þetta
nafn en þetta er bara eitthvað sem
Axelar verða að sætta sig við.“
Tónlistarmyndband við lagið Spila-
fíkill með Sigurjóni Kjartanssyni í
aðalhlutverki kemur út.
„Við vorum allir rosalegir Fóstbræðra-
og Tvíhöfðaaðdáendur þannig að
draumurinn var að fá hann. Við höfðum
sjálfir samband við hann og hann var
til.“
2003
Útnefndir bjartasta vonin á
Íslensku tónlistarverðlaununum.
„Við fórum upp á svið og vissum
ekkert hvað við áttum að segja en
Maggi söngvari þakkaði fyrir Edduna
en var í raun að þakka Eddu, útgáfufyr-
irtækinu, en kom út eins og þetta væri
eitthvað rosa grín hjá honum. Við erum
bara ennþá að monta okkur af þessu í
dag. Það var alltaf grínregla í bandinu
að sá sem væri á lausu fengi að hafa
verðlaunin heima hjá sér.“
Búdrýgindi gerir auglýsinga-
samning við Egils um að auglýsa
Mountain Dew.
„Það voru góðir tímar, maður. Þetta
var í rauninni þannig að við fengum
ógeðslega mikið af gosi og snakki frítt
í heilt ár og fengum borgað fyrir að
drekka það. Svo voru einhverjir sem
kölluðu okkur „sell-out“, en hvaða
fimmtán ára strákur segir nei við
einhverju svona?“
2004
Önnur breiðskífa bandsins,
Juxtapos, kemur út.
„Það var djöfulsins vesen þegar
hún kom út því einhver snillingur
hjá póstfyrirtækinu sendi plötuna til
Ástralíu en ekki Austurríkis. Þar af
leiðandi seinkaði plötunni og kom út
alltof nálægt jólum. Við vorum byrjaðir
í prófum og gátum ekki fylgt henni
nógu vel eftir. Við vorum ekki nógu
miklar rokkstjörnur, við fórum bara
samviskusamlega í prófin.“
Heimasíðan www.budrygindi.
is var hökkuð þannig að í stað
heimasíðunnar kom bara upp
argentínski þjóðfáninn.
2006
Meðlimir bandsins útskrifast allir
saman úr MH á þremur og hálfu
ári. Spila fyrstu tónleika sína í
glasi á Dillon á dimmisjonkvöldinu
sínu.
2007
Strákarnir í hljómsveitinni byrja
að lifa hátt og fara óvarlega í
fjárfestingum og neyðast til
að taka „comeback“ vegna
peningaþurrðar.
2009
10 ára afmælistónleikar á Grand
Rokk. Fullt hús og rífandi stemning
sem gerir hljómveitina graðari í
meira spilerí.
2011
Búdrýgindi snýr aftur með lagið
Maðkur í mysunni árið 2011 og
bandið heldur tónleika á Faktorý
þann 3. september.
„Við erum alltaf búnir að halda
hópinn allan þennan tíma og
heyrumst oft í viku svo það var
hálfheimskulegt að við skyldum ekki
vera að spila tónlist saman, það er það
skemmtilegasta sem við gerum. Þess
vegna ákváðum við að kýla á að gefa út
lag. Það hafa einhverjir fræðimenn sagt
að textinn sé um siðaskiptin síðari en
ég hef svo sem ekkert pælt í því.“ elg
Gömlu rokkguttarnir í Búdrýgindum gáfu út nýtt lag á dögunum
og hyggjast halda tónleika um helgina. Af því tilefni rifjaði Axel
Haraldsson, trommuleikari, upp sögu bandsins með Monitor
Sá sem er á
lausu geymir
verðlaunin
AXEL (EÐA VAR
ÞAÐ ALEX?)
Skannaðu strikamerkið
til að sækja „appið“ í símann
http://www.islandsbanki.is/farsiminn/
Sæktu „appið“
í snjallsímann
þinn á m.isb.is.
Hafðu bankann með þér