Monitor - 01.09.2011, Síða 18
NÝJASTA
Ég var að kaupa þennan guðdómlega
kimono í Nostalgíu. Mér fannst litirnir
ofsalega fallegir og hann er úr 100%
silki. Þessi flík nýtist bæði vel sem
léttur jakki eða jafnvel stuttur kjóll.
BESTA
Þetta KALDA-pils keypti ég
hjá stelpunum í Einveru. Ég
fæ aldrei leið á því og hef
notað það gríðarlega mikið.
18 Monitor FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2011
stíllinn
Hvernig myndir þú lýsa stílnum þínum
í fimm orðum? Kamelljón með vott af
mikilmennskubrjálæði.
Hver er uppáhaldshönnuður-
inn þinn? Það er í raun enginn
einn í uppáhaldi og mér finnst eiginlega bara
erfitt að gera upp á milli. Þó er ég oft mjög hrifin
af hönnuðum sem nota óhefðbundinn efnivið,
eins og til dæmis Sruli Recht.
Hversu mörg skópör átt þú? Í augnablikinu á
ég um það bil tíu stykki sem eru ennþá nothæf,
en ég er því miður alveg hrikalegur skóböðull.
Hvaða snyrtivöru gætir þú ekki verið án? Mér
finnst mesta stemningin í því að vera með
varalit þegar ég vil vera fín
og sæt.
Ef þú yrðir að fá þér tattú, hvað myndir þú
fá þér og hvar? Ég myndi fá mér 56 stjörnur í
andlitið en það hefur alltaf verið gamall draum-
ur. Þar að auki hef ég oft hugsað um að fá mér
„full-sleeve“ með hákörlum, kyrkislöngum og
brennandi krossum.
Ágústa Sveinsdóttir hóf nýlega nám í vöruhönn-
un við Listaháskóla Íslands. Hún starfar einnig
sem afgreiðslustúlka í Nostalgíu og Spúútnik
og lumar eflaust á gersemum í fataskápnum.
Skóböðull
og
kamelljón
fataskápurinn
DÝRASTA
Þessi trúðakjóll er frá
henni Andreu en hann
er sennilega með dýrari
flíkum sem ég hef
eignast. Ég elska að
vera í litríkum fötum
og mér finnst sniðið
á honum ofsalega
skemmtilegt.
ELSTA
Þessi peysa
hefur verið
heillengi í
klæðaskápn-
um og ég fékk
hana í Gyllta kettinum fyrir langalöngu.
Ég er mjög fljót að fá leið á fötunum
mínum en þessi flík fær að hanga þarna.
SKRÍTNASTA
Þessi gegnsæi kjólfatajakki er frá
Nostalgíu. Hann er með pleður-
bryddingum og mér fannst hann
svo skemmtilega hallærislegur
að hann fór eiginlega hringinn.
FLOTTASTA
Ég á mjög erfitt með að gera upp á milli
en ég fékk til dæmis þessa peysu hjá
henni Andreu um daginn og mér finnst
hún geðveik! Hún er klárlega í miklu
uppáhaldi á þessari stundu.
ÞÆGILEGASTA
Mér finnst ofsalega þægilegt að skella mér í harem-buxur og þessar
fékk ég í Nostalgíu. Ég er mjög hrifin af litnum og sniðið er svo kósí,
nánast eins og að vera í náttbuxum.
Þessi hvíti refapels er alltaf sígildur og ég keypti hann í Spúútnik á sín-
um tíma. Hann er ofsalega mjúkur og góður og hlýjar mér vel á köldum
vetrardögum. Mér finnst gaman að klæðast fallegum yfirhöfnum og ég
nota pelsa oft dagsdaglega en þessi er samt alveg spari.