Monitor - 01.09.2011, Síða 20
kvikmyndir
Heath
Ledger
Hæð: 185 sentímetrar.
Besta hlutverk: The Joker.
Staðreynd: Ledger er annar
leikarinn í sögunni til að hreppa
Óskarsverðlaun eftir andlát.
Eitruð tilvitnun: „Það er
dálítið óþægilegt að taka þátt í
ástarsenu klæddur í brynju, en
ég meina þegar ballið er byrjað,
þá er ballið byrjað.“
1979Fæddist þann 4.apríl sem Heath
Andrew Ledger í Perth, Ástralíu.
1990Lék Pétur Pan íuppfærslu á því
sígilda verki í skólanum.
1997Sló í gegn í ástr-ölsku sápuóper-
unum Home and Away, sem eru
einir farsælustu þættir Ástralíu
enn þann daginn í dag.
1999Fór með aðalhlut-verk í unglinga-
smellinum 10 Things I Hate
About You gegn Íslandsvininum
Julia Stiles.
2000Byrjaði með leik-konunni Heather
Graham. Sama ár lék hann á
móti Mel Gibson í stórmyndinni
The Patriot.
2004Kynntist barns-móður sinni,
Michelle Willams.
2005Alls komu útfimm bíómyndir
með Ledger í stórum hlutverk-
um, þar á meðal Brokeback
Mountain, þar sem hann lék
samkynhneigðan kúreka
með eftirminnilegum hætti.
Eignaðist sitt fyrsta og eina
barn, Matilda Rose.
2007Lék í Bob Dylan-myndinni I‘m Not
Thera ásamt fjöldanum öllum
af stórleikurum.
2008Fannst meðvit-undarlaus eftir að
hafa innbyrt of stóran skammt
af verkjalyfjum 22. janúar og
úrskurðaður látinn skömmu
síðar. Um sumarið sama ár kom
myndin Dark Knight út þar
sem Ledger fór á kostum sem
illmennið Joker.
2009Hlaut verðlaunsem besti leikari í
aukahlutverki fyrir Dark Knight.
Síðasta mynd sem Ledger lék
í, The Imaginarium of Doctor
Parnassus, kemur út.
FERILLINN
20 Monitor FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2011
Why so serious?
(Dark Knight, 2008)
Á annan veg FRUMSÝND 2. SEPTEMBER
Á ANNAN VEG ER EKKI HIN
ÍSLENSKA BROKEBACK MOUNTAIN
Á annan veg er mannleg gam-
anmynd sem segir frá tveimur
ungum mönnum sem starfa
við vegavinnu á afskekktum
fjallvegum á 9. áratugnum. Þeir
handmála merkingar á malbik og
reka niður tréstikur í vegkanta og
hafa ekkert nema hvorn annan og
tilbreytingarlausa vinnuna, sem
væri kannski allt í lagi ef þeim
líkaði betur hvor við annan. En
eftir að lífið tekur óvænta stefnu
læra þeir að meta félagsskap
hvors annars og þróa með sér
vináttu enda báðir á krossgötum
í lífinu.
facebook.com/monitorbladidVILTU MIÐA? Monitor ætlar að gefa miða á stór-myndina Á annan veg, fylgstu með...
FRUMSÝNING HELGARINNAR
Leikstjóri: Hafsteinn Gunnar
Sigurðsson.
Aðalhlutverk: Hilmar Guðjónsson,
Sveinn Ólafur Gunnarsson og
Þorsteinn Bachmann.
Lengd: 80 mínútur.
Aldurstakmark: Bönnuð innan 10 árað
Kvikmyndahús: Háskólabíó og
Borgarbíó Akureyri.
K V I K M Y N D
Enn ein
Hollywood
drullan
The Change-Up fjallar um
félagana Mitch Planko (Ryan
Reynolds) og Dave Lockwood
(Jason Bateman). Líf þeirra er
eins og svart og hvítt. Mitch býr
einn og þarf ekki að hugsa um
neitt nema sjálfan sig. Dave er
metnaðarfullur lögfræðingur
sem á eiginkonu og þrjú börn.
Þeir hittast þó reglulega og hafa
miklar skoðanir á lífi hvors
annars. Eftir nokkra bjóra og
smá trúnó pissa þeir saman í
gosbrunn sem verður til þess
að þeir vakna í líkama hvors
annars. Mitch
verður Dave
og Dave verð-
ur Mitch. Eftir
það fer í gang
atburðarás
sem á að vera
fyndin en
það fer mjög
lítið fyrir þeim
húmor. Myndin byrjaði reyndar
ágætlega og hún var alveg fynd-
in svona fyrsta hálftímann. Svo
hætti myndin að vera fyndin og
breyttist í væmna klisjumynd
sem fékk mig til að kasta upp
ofan í kókglasið mitt. Ég varð
fyrir miklum vonbrigðum því
ég hélt í byrjun að þetta myndi
vera fyndin mynd. Af hverju
handritshöfundarnir hættu að
skrifa brandara og fóru að skrifa
Hollywood-ruslboðskap veit ég
ekki. Það var allavega mjög léleg
ákvörðun.
Sömu steríótýpurnar
Í myndinni eru þessar sömu
steríótýpur sem maður hefur
séð margoft. Reynolds er ein-
hleypi gaurinn og hann er það
einhleypur að það er eins og
hann hafi aldrei verið í kringum
mannfólk áður. Reynolds er
alltaf að reyna að verða einhver
alvöru leikari en það gengur
voðalega erfiðlega hjá honum.
Kannski er ástæðan sú að hann
getur í raun aðeins leikið svona
Van Wilder-týpu. Ég hef samt
alltaf gaman af Jason Bateman.
Hann er ágætis grínleikari. Það
er skemmtileg ára yfir honum
og þó svo hann sé ekki alltaf
í góðum myndum þá hef ég
alltaf lúmskt gaman af honum.
Reynolds og Bateman náðu vel
saman og
það er í
rauninni
það eina
jákvæða
sem ég
get tekið
frá þessari
mynd.
CHANGE-UP
Tómas
Leifsson
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
7
6
7
6
Meira Ísland
með Símanum
á stærsta 3G neti
landsins
siminn.is
Skannaðu kóðann eða
sendu sms-ið M í 1900
og fáðu M-ið beint í
símann þinn
Skannaðu hérna
til að sækja
B
arcode
Scanner
Meira Ísland
M-ið er
ómissandi
ferðafélagi
Meira Ísland
Hafnarfjörður
Greitt er samkvæmt gjaldskrá. Nánar á Siminn.is