Monitor - 22.09.2011, Page 13
13FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2011 Monitor
RAGNAR
Fyrstu sex: 060387.
Uppáhaldsmatur: Humar.
Uppáhaldsstaður í heiminum:
Heima hjá mömmu og pabba.
R Okkur líkar svo vel við hana og
henni líkar vel við okkur, svo þetta er
gott samstarf. Hún er náttúrlega með
sín sambönd úti, er dugleg og svo er
gott að hafa einhvern sem er inni í
málunum til dæmis í Ameríku.
Hefur ykkar hversdagslíf breyst eftir
að þetta lag náði svona rosalegum
vinsældum?
R Það er vissulega meira að gera hjá
hljómsveitinni og mikið af tölvu-
póstum til að svara og þannig. Það er
aðeins meira verið að stoppa mann
úti á götu, það er tekið fast í höndina
á manni og maður sleginn fast í bakið.
Ég lenti einmitt í mjög harðhentum
gæja síðustu helgi.
N Ég er sammála öllu sem Raggi er að
segja.
Er eitthvað skipti sem þið hafið verið
stoppuð úti á götu eftirminnilegra en
annað?
N Við lentum í einum á Akureyri.
R Já, það var einhver gæi sem var að
elta okkur út um allt þegar við vorum
að spila á Akureyri. Hann var með
eitthvað svona hvítt í munnvikunum.
N Hann elti okkur á barinn eftir giggið
og svo þegar við sögðumst ætla að
fara heim, þangað sem við gistum,
þá spurði hann hvert við værum að
fara og sagðist líka eiga heima þar. Við
vorum alveg: „Nei, þú átt ekki heima
þar“. Síðan stungum við hann af en
þá stal hann einhverju hjóli og kom
hjólandi á eftir okkur svo við stigum
upp í leigubíl og fórum þannig heim.
R Síðan vorum við úti á svölum og þá
kom hann hjólandi framhjá íbúðinni.
Þá læstum við bara og fórum að sofa.
Við biðjum bara að heilsa honum ef
hann er að lesa. Skilaðu hjólinu.
Hvernig verða lögin ykkar til?
R Það er mismunandi. Einhver
úr hljómsveitinni kemur með litla
hugmynd og svo vinnum við oftast öll
eða nokkur saman í henni.
N Já, allir leggja sitt af mörkum.
Þið eruð bæði að læra myndlist.
Hvaðan kemur sá áhugi?
R Þetta er bara áhuginn fyrir því að
skapa, eflaust sama ástæða og fyrir því
að maður er að gera tónlist. Mér finnst
ekki gaman að vinna með eitthvað
sem aðrir hafa búið til eða sjá hvað
aðrir hafa búið til, mér finnst aðallega
bara gaman að búa til sjálfur.
N (hlær)
R Hvað, var þetta skrýtin setning?
N Ég er í fornámi í mynd- og sjónlist
þar sem ég fæ að kynnast öllu í þess-
um fögum á einu ári. Það hefur hingað
til verið ógeðslega gaman.
Hvert er eftirminnilegasta giggið
hingað til?
N Pylsugiggið er eftirminnilegt af því
að það var svo ömurlegt.
R Já, við vorum að spila í gamla
skólanum hennar Nönnu og það var
verið að gefa pylsur á sama tíma og við
vorum að spila og þá var öllum alveg
nákvæmlega sama um okkur.
N Okkur langaði líka geðveikt í pylsu
en við þurftum að vera uppi á sviði að
spila.
R Það höfðu allir miklu meiri áhuga á
pylsum en okkur, það var sárt.
Þeir Arnar og Kristján í hljómsveit-
inni eru líka meðlimir í Cliff Clavin.
Hafið þið reynt að sannfæra þá um
að hætta í henni svo þeir geti einbeitt
sér að fullu að ykkar hljómsveit?
R Aldrei. Arnar er búinn að vera í
Cliff Clavin mjög lengi en Kiddi Palli
byrjaði reyndar fyrst með okkur. Þetta
vinnur vel saman og Cliff Clavin eru
góðir vinir okkar, þeir eru æskuvinir
mínir. Mér finnst flott að þeir geti verið
í báðum.
Þið hafið spilað í Hollandi og New
York. Segið mér aðeins frá þessum
túrum ykkar.
R Hollandsgiggið var í gegnum Mús-
íktilraunir. Við fórum með Hinu húsinu
út og tókum þátt í prógrammi sem
heitir Stage Europe Network, þar sem
margar hljómsveitir frá mismunandi
löndum koma saman, spila saman,
taka upp lög og svona. Þetta eru svona
hálfgerðar búðir.
N Já, svona „band camp“. Í New
York spiluðum við á tvennum litlum
tónleikum sem Heather, umboðsmað-
urinn okkar, skipulagði svona til þess
að kynnast lífinu þarna úti og kynnast
henni betur.
Má búast við meiri útrás til hins stóra
heims?
R Já, alveg örugglega. Stefnan er tekin
út.
Ragnar, þú gengur undir gælunafninu
Mussi. Hvaðan kemur það? Er það
rokkstjörnunafnið sem þú notar á
erlendri grundu?
R Mamma mín og pabbi kölluðu mig
Mussa þegar ég var lítill og systur
mína Mussu. Ég jarðaði þetta þegar
ég var lítill af því mér fannst þetta
ógeðslegt en svo gróf ég þetta upp
núna nýlega því mér finnst þetta flott
nafn. Ég gaf mér þetta eiginlega sjálfur,
þótt það sé kannski ekki leiðin til að fá
viðurnefni. Svo er systir mín búin að
nefna hvolp eftir mér. Tíkin hennar var
sem sagt að eignast hvolpa og Mussi er
sætasti hvolpurinn.
N Rokkstjörnunafnið hans er frekar
Rocky. Við vorum úti í New York og þá
pantaði hann sér „soja latté“ á Star-
bucks og gellan sem var að afgreiða
kallaði hann „Rocky“.
R Ég sagðist sem sagt bara heita Raggi
en svo þegar pöntunin var tilbúin þá
kallaði hún yfir allan staðinn: „Rocky,
Rocky!“. Þá hugsuðu örugglega allir
bara: „Vó, kúl nafn“.
Nanna, hvernig er að vera eina
stelpan í hljómsveitinni?
N Ég hef aldrei upplifað það sem neitt
skrýtið. Það var ekki fyrr en fólk fór að
benda mér á þetta að ég fór eitthvað
að pæla í þessu. Ég er bara í hljómsveit
með vinum mínum.
R Já, við erum svo góður hópur að það
skiptir engu máli.
Ef þið fengjuð boð um að fara í
árslangan túr um Bandaríkin þar
sem þið þyrftuð að taka með ykkur
íslenska hljómsveit til að hita upp
fyrir ykkur, hvaða hljómsveit yrði
fyrir valinu?
N Ég myndi vilja taka Agent Fresco,
þótt það sé kannski skrýtið að fá þá til
að hita upp. Við höfum reynt að spila á
eftir þeim og það er mjög erfitt.
R Við tókum rosalega skemmtilegan
túr með þeim og Lockerbie í sumar.
Við kynntumst þeim vel og þeir eru
frábærir strákar svo það væri mjög
gaman.
Ef hljómsveitin strandaði á eyðieyju
og þið algjörlega neyddust til að
borða einn meðlim, hver yrði étinn?
R Pottþétt Brynjar.
N Já, ég myndi byrja á vörunum hans.
R Maður myndi narta í þessar varir.
Svo er hann búinn að vera að lyfta
svolítið svo vöðvarnir hans eru orðnir
mjög djúsí og síðan er hann náttúrlega
með þennan rass.
N Hann er mjög girnilegur allur. Ég
held að hann sé safaríkur.
R Ég held líka að allir væru sáttir við
þá ákvörðun, hann líka.
N Nei, ekki segja þetta! (hlær)
R Hann er yngstur og svona.
Getið þið sagt mér einhverja
skemmtilega hljómsveitarsögu?
R Við vorum einmitt
að ræða það um
daginn á þessum túr
Síðan stung-
um við hann
af en þá stal hann
einhverju hjóli og kom
hjólandi á eftir okkur
svo við stigum upp
í leigubíl og fórum
þannig heim.