Monitor - 22.09.2011, Side 14
14 Monitor FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2011
með Agent Fresco hvað við eigum engar sögur.
N Þeir voru alltaf með einhverjar sögur þar
sem þeir voru að gera eitthvað „alveg hellað“.
Við erum ekki nógu helluð.
R Við erum að pæla í að byrja að gera eitthvað
til að fá sögur.
N Eða búa bara til sögur.
Heimildir Monitor herma að Ragnar upplifi
sig sem fyrirliða hljómsveitarinnar. Er hann
það?
N Hann vill setja sig á þann stall, hann má
svo sem alveg fá þann stimpil ef hann vill það.
R Já, svona nýlega þá hef ég tekið fyrirliða-
stöðuna af Nönnu. Ég er búinn að vera mjög
ábyrgur, svarandi Emilum og mikið í símanum.
Nei nei, ég er enginn fyrirliði.
N Ragnar er frábær strákur.
Nanna, þú lentir í 3. sæti í Söngkeppni
framhaldsskólanna fyrir fjórum árum þegar
þú söngst lagið Gleym-mér-ei fyrir hönd FS.
Hvort þykir þér vænna um þann áfanga eða
sigurinn í Músíktilraunum?
N Ég held að það hljóti að vera Músíktilraunir,
af því að þá unnum við. Það var bæði reyndar
ótrúlega gaman, bæði ævintýri út af fyrir sig.
R Það hefur kannski verið skemmtilegra í
Músíktilraunum af því þú gerðir það með
skemmtilegra fólki, eða hvað?
N Sagði ég það?
R Nei, ég bara spyr.
Áður fyrr varst þú, Nanna, líka í hljóm-
sveitinni Pointless sem gerði það gott á
Suðurnesjunum og kom meðal annars fram í
Ísland í bítið. Hvað varð um þá ágætu sveit?
R Stóð hún ekki bara undir nafni?
N Jú, hún var bara „pointless“. Nei, við bara
hættum. Ég held að við höfum áttað okkur á
því að við vorum ömurleg. Eða nei, við vorum
kúl.
Manst þú eftir henni frá þessum tíma,
Ragnar?
R Nei, ég þekkti hana ekki neitt. Ég er hins
vegar líka svona rannsóknarlögregla eins og þú
og gróf atriðið hennar úr Söngkeppninni upp á
netinu og það var rosa flott.
Fyrsta platan ykkar, My Head Is an Animal,
kom út í vikunni. Hvað getið þið sagt mér um
þessa plötu?
N Hún er með tónlist og söng á.
R Hún inniheldur ellefu lög.
N Við tókum hana upp í Sýrlandi.
R Já, hún var tekin upp „læv“, það er að
segja grunnarnir, og svo erum við búin
að bæta ofan á það í Orgelsmiðjunni.
Það hefur tekist mjög vel, finnst
okkur. Kaupið hana, plís.
N Svo Raggi geti borðað.
Þið eruð að læra myndlist og
hönnuðuð plötuumlagið sjálf
ásamt Arnari trommuleikara.
Hver er pælingin á bak við
umslagið?
R Þetta eru gamlar ljósmyndir
sem ég fann í albúmi sem afi
minn átti. Ef þú opnar disk-
inn, þá sérðu sex hausa sem
allir tákna einn í hljómsveit-
inni. Það eru sem sagt augun
okkar inni í skrímslahausum.
Hvað ber framtíðin í skauti
sér?
N Vonandi eitthvað skemmti-
legt, við ætlum allavega að
fylgja plötunni vel eftir.
R Það eru útgáfutónleikar
fimmtudaginn 6. október í
Gamla bíó. Við ætlum annars
bara að spila og spila, svo
styttist í Airwaves. Síðan
semjum við örugglega meira,
skemmtum okkur og höfum
það gott.
Mér skilst að trommarinn ykkar,
Arnar, sé afar skeggjaður um
þessar mundir. Hvers vegna er
það?
R Arnar er að safna skeggi þangað
til að útgáfutónleikarnir eru búnir.
Öllum er velkomið að koma og
snerta skeggið hans á tónleikunum.
N Hann er einmitt kallaður
Skeggur af okkur þessa dagana.
R Svo þegar hann rakar skeggið þá
ætlar hann að gefa mér hárin svo ég
geti búið til pensla úr þeim og þá mála
ég mynd af honum með penslunum.
...líklegra til að mæta seint
á hljómsveitaræfingu?
R Nanna.
N Ég.
...klikkaðra?
R Ég.
N Ég.
...betri myndlistarmaður?
R Ég.
N Raggi.
...latari einstaklingur?
R Ég.
N Ég.
...betri söngvari?
R Nanna.
N Raggi.
...betri gítarleikari?
R Erfiðar spurningar. Má
segja Brynjar? Við erum bæði
jafnléleg.
N Þetta er mjög erfitt.
Brynjar?
...meira utan við sig?
R Nanna.
N Ég.
HVORT YKKAR ER...