Monitor - 29.09.2011, Blaðsíða 3
FYRIR HÁRIÐ
Nú þegar kólnar
í veðri verður
húðin oft á tíðum
viðkvæmari og því á
hársvörðurinn það
til að verða þurr. Þá
er gott að kaupa sér
sterkt sjampó sem
nota má einungis
einu sinni í viku til
að bæta hárleðrið.
Einnig er gott að
passa að fara aldrei
út með blautt hárið.
FYRIR EYRUN
Þrátt fyrir að vera bara 15 ára er
Ryan Beatty einkar
hæfileikaríkur
söngvari. Á
YouTube
má finna
margar
ábreiður frá
honum en
leikarinn
Ashton
Kutcher
tístaði meðal
annar myndbandi
hans við lagið Waiting On the World
to Change. Er hann næsti Justin
Bieber?
FYRIR BRAGÐLAUKANA
Inni í glertengibyggingunni á
Höfðatorgi er að finna „leynistað“
HaPP þar sem eru bara framreiddar
gómsætar og hollar samlokur.
Kjúklingur, mangó og hnetusósa er
baneitruð samsetning í jákvæðum
skilningi. Og ef þú ert heppinn
þá er sonur Gísla Rúnars og Eddu
Björgvins að afgreiða.
Monitor
mælir með
Maggi Lú
Til hamingju
thorsarar med
evropusætid !!
Vel ad thessu
komnir !!!! :)
25. september kl. 23:10
Oddur Snær
breaking bad
> allt annað
sjónvarp
27. sept. kl. 23:57
Vikan á...
Heiðar Aust-
mann Þörfin
hefur aldrei
verið meiri en
akkúrat núna
að útrýma einelti. Hvet þig
til að ganga til liðs við okkur
og hjálpa til við að breiða út
boðskapinn. Eineltisdagurinn
er 1 nóvember 2011.
28. september kl. 10:57
Kristmundur
Axel hver er á
bíl og nennir útí
skeifu? hehehh
langar svo í
nýja dvd spólu
26. september kl. 01:24
3FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2011 Monitor
Feitast í blaðinu
Sögu Garðars
dreymir um að leika
Sölku-Völku eða
Línu Langs-
okk einn dag.
Kæmist þú í 5.000
vina klúbbinn
á Facebook með
íslensku
celebunum?
Íslands- og bikar-
meistarinn Kjartan
Henry er góður í að
skipta um
bleyjur.
8
Stíllinn kennir þér
að klæða þig eins
og ofurskutlan úr
O.C., Rachel
Bilson. 18
Egill Ólafsson
hefur ferðast 30 ár
aftur í tímann með
tímahylki
nokkru. 12
Talandi um tilviljanir, er tilviljun að Björgvin Halldórsson,
Einar Bárðarson og Hemmi Gunn eigi allir 4969 vini á Facebook?
4
fyrst&fremst
„Við erum búin að æfa okkur í tvær vikur og
þetta er klárlega erfiðasta rútínan hingað til.
Undirbúningurinn hefur kostað blóð, svita
og tár og ég er einmitt tognuð í augnablikinu
þannig að ég er tæp fyrir helgina. En við ætlum
að taka þetta á næsta stig,“ segir Linda Ósk en
hún stofnaði dansflokkinn Rebel ásamt Helgu
Ástu. „Við ætlum að koma og sýna hvað við
getum. Ef við náum að sýna okkar besta þá held
ég að við hljótum að ná að heilla dómnefndina.
Vonandi. Við erum búin að setja markið mjög
hátt og höfum legið yfir þáttum af So You Think
You Can Dance, America‘s Best Dance Crew og
svona.“
Prufurnar fyrir þáttinn fara fram um helgina
í nýju Laugardalshöllinni og hefjast stund-
víslega klukkan 8:00 á laugardagsmorguninn.
Prufurnar eru opnar öllum eldri en 16 ára og
geta einstaklingar, pör og hópar með allt að tíu
meðlimum skráð sig til leiks og spreytt sig á
hvaða danstegund sem er.
Til mikils að vinna
Verðlaunin fyrir sigurinn eru ekki af
verri endanum eða ein milljón króna.
„Ef við myndum vinna þessa milljón
þá myndum við setja það beint í að
byggja flokkinn upp. Við myndum fá
okkur flottari búninga og búa til flottari
myndbönd. Í stað þess að allir fari og
kaupi sér flottar gallabuxur gerum
við þetta fyrir hópinn í heild. Allir í
flokknum eru miklir einstaklingar
en við náum ótrúlega vel saman sem
hópur. Framtíðarplanið núna er að byggja upp
dansstúdíóið sem við vorum að opna. Viðtök-
urnar við hópnum voru svo góðar í sumar að
við ákváðum að gera eigið stúdíó. Við erum því
búin að vera alveg sveitt við að setja upp spegla
í Borgartúninu.“
Linda segir viðtökurnar við stúdíóinu hafa
verið mjög góðar enda sé dansmenningin í
stöðugri sókn hér á landi. „Þróunin á íslenskri
dansmenningu er mjög jákvæð.
Fleiri hafa fengið áhuga á dansi út af öllum
þáttunum í sjónvarpinu. Úti í heimi er líka
helmingur iðkenda karlkyns en hér hefur alltaf
verið skortur á karladönsurum svo það er gam-
an að sjá að íþróttin er að verða viðurkenndari
hjá strákunum. Ég vona að sem flestir láti sjá
sig í prufunum því þetta er mjög gott tækifæri
fyrir alla dansara.“ jrj
Um helgina fara fram prufur í Laugardalshöllinni fyrir nýja íslenska dans-
þáttaröð, Dans, dans, dans. Dansflokkurinn Rebel, með Lindu Ósk í farar-
broddi, ætlar ekki að láta sig vanta þar.
6
Uppreisn
Á MYNDINA VANTAR
UPPREISNARSEGGINA
SVAVAR OG NANCY
DANSFLOKK-
URINN REBEL
Stofnaður: 3. maí 2011
Meðlimir: Linda Ósk,
Helga Ásta, Bjarmi Fan-
nar, Olga Unnarsdóttir,
Svavar Helgi, Arnar
Orri, Nancy Pantazis og
Steven Vu.
Stílar: Street og hip
hop en í raun bara það
sem okkur dettur í hug.
Mottó: Gerðu það sem
þér sýnist. Vertu Rebel!
MONITOR@MONITOR.IS Ritstjóri: Jón Ragnar Jónsson (jonragnar@monitor.is) Framleiðslustjóri: Hilmar Gunnarsson (hilmar@monitor.is)
Blaðamenn: Einar Lövdahl Gunnlaugsson (einar@monitor.is) Lísa Hafliðadóttir (lisa@monitor.is)
Auglýsingar: Auglýsingadeild Árvakurs (augl@mbl.is) Forsíða: Golli (golli@mbl.is) Grafík: Elín Esther (ee@mbl.is)
Myndvinnsla: Hallmar F. Þorvaldsson Útgefandi: Árvakur Prentun: Landsprent Sími: 569 1136
Efst í huga Monitor
Hræðilegar tilviljanir?
Stundum veit ég ekki hvernig ég á að haga mér þegareitt stykki tilviljun skýtur upp kollinum. Yfirleitt
hlær ég nú að þessu öllu saman en stundum liggur við
að ég verði hræddur. Það fer jú eftir eðli tilviljananna.
Ámánudaginn fór Monitor-flotinn á Saffran íhádeginu og á leiðinni hlustuðum við á hljómplötu
hljómsveitarinnar 1860. Sjálfur pantaði ég mér Saffran-
kjúkling og sódavatn og rétti afgreiðslustúlkunni kortið.
„1860,“ sagði afgreiðslustúlkan og átti þá að sjálfsögðu
við upphæðina sem ég skuldaði henni. Við gátum
ekki annað en skellt upp úr því að tæpri mínútu áður
höfðum við verið að hlusta á hljómsveitina kennda við
sömu tölu. Svakaleg tilviljun en hjákátleg.
Fyrir tveimur árum fór ég í Bandaríkjareisu meðKristjáni vini mínum og dvöldum við þá um langt
skeið í New York og á einhverjum tímapunkti áskotn-
aðist okkur einhver frímiði í líkamsræktina Chrunch.
Nema hvað að á frímiðanum var alls kyns smátt letur
með skilyrðum sem við ekki uppfylltum; við áttum
ekki bandarísk skilríki og við vorum ekki að fara að
skrifa undir tveggja mánaða samning við líkamsrækt-
arstöðina í framhaldinu. Einhvern veginn tókst okkur
samt að hagræða sannleikanum þannig að við fengum
að mæta í ræktina í nokkur skipti án þess að borga.
En Colin Sussman, starfsmaður Chrunch var farinn
að sjá í gegnum okkur og fór að pressa allsvakalega á
okkur að skrifa undir samning við stöðina. Á endanum
hættum við að mæta því við vorum orðnir hálfhræddir
við Colin.
Íbyrjun þessa mánaðar skruppum við Kristján svoaftur til New York. Þá einmitt rifjuðum við upp hvað
þetta hefði verið fyndið allt með hann Colin. Svo
þegar við erum á heimleið og erum í biðröð við ör-
yggishliðið sjáum við glitta í ansi kunnuglegt andlit,
Colin Sussman var mættur í ferðagallanum sínum.
Við hlógum frekar mikið án þess að láta hann þó sjá
það og svo hélt hann sína leið. En þegar við erum
svo að stíga um borð í Icelandair-vélina sjáum við
umræddan Colin í makindum sínum frammi í Saga
Business Class. Daglega fara rúmlega 350 flugvélar
í loftið á JFK-flugvellinum en hann var að fara í
akkúrat sömu vél og við. Þá fyrst fór hrollur um mig
og ég hugsaði hvaða skilaboð þetta væru eiginlega.
Kannski eitthvað æðra að segja mér að svíkja aldrei
aftur út fría tíma í líkamsrækt. jrj
Jói Kjartans
To this day
Wayne Rooney
has made 222
appearances
for Man Utd and scored 111
goals. 24. september kl. 23:03
í Laugardalshöll
DANSANDI DÓMNEFND
Mynd/Bragi Kort