Monitor - 29.09.2011, Blaðsíða 9
4999
VINAKVÓTAR HINDRA JÚLÍ EKKI
FRÁ ÞVÍ AÐ EIGNAST VINI Mynd/Sigurgeir
Svo virðist vera sem þú eigir tvo aðganga á Facebook sem báðir
eru fullir. Hvernig stendur á þessu?
Ég eiginlega veit það ekki alveg. Það byrjaði einhvern veginn þannig
að krakkar sem ég var með í dansi úti í Noregi bjuggu til Facebook
handa mér og svo varð Facebook náttúrlega geðveikt vinsælt svo
skyndilega var ég kominn með 200 vini en svo gleymdi ég þessu
dæmi alveg. Svo fór ég að gefa út tónlist og svona og þá fóru krakkar
sem vildu skoða mig og kynnast mér og tónlistinni að adda mér og
áður en ég vissi af var þetta komið upp í 5.000 einstaklinga. Þar af
voru kannski 10% vinir manns. Síðan leist mér eiginlega svo ótrúlega
vel á þetta af því að þetta virkaði svo vel upp á auglýsingar og þá bjó
ég til nýjan aðgang. Þetta hefur eiginlega bara gerst óvart.
Notast þú við báðar síðurnar?
Ég nota báðar alveg helling en svo til að toppa þetta allt þá er ég
kominn með þriðju síðuna. Hún er reyndar bara fyrir vini, mjög nána
vini. Maður hefur alltaf verið að breyta nafninu á henni, fyrst var það
„Júlí Heiðar“ en núna er það „Heiðar Halldórsson“. Sú síða verður
samt ekki fyllt, nema að ég verði alveg ógeðslega góður vinur þannig
að allir vilji verða vinir mínir.
Hvað heldur þú að þú myndir
heilsa stóru hlutfalli vina
þinna á Facebook úti á götu (í
prósentum talið)?
Svona sjö prósentum í mesta
lagi.
Hefur þú haft einhverja
ákveðna stefnu gagnvart
vinabeiðnunum sem þú færð?
Samþykkir þú allar?
Á tímabili samþykkti ég aldrei
vinabeiðnir frá svona tappaleg-
um gaurum sem voru hugsan-
lega að fara að drulla yfir mig á Facebook þannig að það var komið út
í það að ég samþykkti bara beiðnir frá stelpum. Svo breyttist það allt
og ég fór að samþykkja allar vinabeiðnir.
Finnur þú fyrir pressu að eiga svona marga vini á Facebook, til
dæmis að þú þurfir alltaf að vera sniðugur?
Ekki beint, eða kannski stundum. Mér finnst hins vegar aðallega
leiðinlegt þegar maður fer inn á Facebook og þá opnast spjallið og
kannski tuttugu blikkandi gluggar og maður þarf að svara öllum.
Síðan ef maður svarar ekki, þá fær maður einhver komment á
vegginn þar sem fólk segir: „Þú ert nú meiri fávitinn, svarar aldrei!“.
Það finnst mér leiðinlegt.
Hefur þú þurft að eyða einhverjum út af Facebook til búa til pláss
fyrir aðra?
Já, ég hef nú lent í því en þá eyði ég bara einhverjum. Eins og
ég segi þá þekki ég örugglega bara svona 7% af vinum mínum á
Facebook svo ég finn bara einhvern sem ég þekki ekki, sem er mjög
auðvelt, og eyði honum.
Hver er hæsti fjöldi vinabeiðna sem hefur beðið þín þegar þú hefur
skráð þig inn?
Mig minnir að ég hafi verið með einhverjar 300 vinabeiðnir eftir að
við unnum Söngkeppni framhaldsskólanna.
JÚLÍ HEIÐAR HALLDÓRSSON
Hafnaði
tappalegum gaurum
Þá fær
maður ein-
hver komment á
vegginn þar sem
fólk segir: „Þú ert
nú meiri fávitinn,
svarar aldrei!“
9FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2011 Monitor
4698
4969
5000 4980
RISDÓTTIR
lvupósta
4901
ANNÍE MIST-I SIG ALVEG Í
FACEBOOK-GLEÐINNI
Hefur þú þurft að eyða einhverj-
um út af Facebook til búa til
pláss fyrir aðra?
Já, ég hef verið svolítið í því. Þá
hef ég valið út fólk sem hefur
sent mér krípí pósta, ég eyði
þeim fyrst út og hleypi frekar
inn nýjum alvöruvinum (hlær).
Maður fær svona mjög furðulega
tölvupósta annað slagið.
Hver er hæsti fjöldi vinabeiðna
sem hefur beðið þín þegar þú
hefur skráð þig inn?
Ætli það hafi ekki verið 400,
eftir að ég vann heimsleikana.
Ég fór ekki inn á Facebook í tvo
daga og þá safnaðist þessi fjöldi
upp.
Þú áttir afmæli í mánuðinum.
Hrundi Facebook-ið þitt
ekki vegna ofálags þegar
afmæliskveðjurnar hrönnuðust
inn?
Þetta var reyndar svona
nett pirrandi því ég fæ svona
sendingu í símann minn
þegar einhver skrifar á vegginn
minn á Facebook þannig að ég
endaði á að slökkva á því. Nei,
nei, það hrundi ekki og það er
voðalega gaman að eiga afmæli
á Facebook, það eru greinilega
margir sem hugsa til manns
þar. Þá sér maður að þetta fólk
er ekki bara að adda manni af
því að það kannast við myndina
af mér eða eitthvað, það er að
skoða síðuna manns, og þá er
síðan nytsamleg.
ST
EI
N
D
IJ
R.
JÓ
N
ÍN
A
BE
N
BÓ
H
A
LL
G
RÍ
M
U
R
4647
4993 4971
4992 4817
4942 4670K
RI
ST
M
U
N
D
U
R
A
RN
A
R
G
RA
N
T
EM
M
SJ
É
G
A
U
TI
D
A
G
U
R
B
FE
LI
X
SV
EI
N
N
A
N
D
RI
H
A
FF
IH
A
FF
SV
EP
PI
4856