Monitor - 29.09.2011, Blaðsíða 16
16 Monitor FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2011
stíllinn
Hvernig myndir þú lýsa stílnum þínum í fimm orðum?
Nærbuxur, sokkar, buxur, skyrta, skór.
Hvar verslar þú helst fötin þín? Erlendis og á netinu
aðallega. Aftur á móti eru nokkrar
virkilega skemmtilegar og góðar búðir á
Íslandi, eins og til dæmis Kúltúr Menn,
Kron Kron, Geysir og Herrafataverzlun K&S.
Áttu þér einhverjar fyrirmyndir hvað varðar fatastíl?
Það eru í raun engar sérstakar fyrirmyndir sem ég gæti
nefnt, en maður reynir að fylgjast vel með því sem er í
gangi, taka það besta, og móta sinn eigin stíl út frá því.
Skandinavísk fatahönnun eins og til dæmis Filippa K er
einnig mjög flott.
Hvað er ómissandi fyrir stráka að eiga í haust? Dún-
vestið er fullkomin flík í alla staði, þykkar og
góðar peysur, hlý boots, gallaskyrtur, chinos í
sem flestum litum og fallegur tweet blazer.
Ef þú yrðir að fá þér
tattú, hvað myndir þú fá
þér og hvar? Ég myndi
náttúrulega aldrei fá mér tattú, en ef ég væri
þvingaður til þess myndi ég fá mér dreka
yfir bringuna, stop-merki í lófann og broskall
undir stóru tá.
Hver hafa verið þín verstu tískumistök? Í
grunnskóla átti ég alveg alltof mikið af steiktum
fötum, til dæmis gylltar leggings, og þeir sem þekkja
mig geta vottað fyrir það. Svo í þokkabót var ég alltaf
með tannréttingabeisli, það var ekki fallegt.
Stíllinn kíkti á ljúfmennið S. Arnór Hreiðarsson, en
hann var að hefja nám í lögfræði við Háskóla Íslands.
Arnór hefur mikinn áhuga á tísku og leynast margar
skemmtilegar og flottar flíkur í fataskápnum hans.
Gull-leggingsog
gallaskyrtur
fataskápurinn
ÞÆGILEGASTA/
SKRÍTNASTA
Engin orð fá lýst, sjá mynd.
DÝRASTA
Skóna keypti ég í Paul Smith fyrir
útskriftina mína. Mér finnst þeir
mjög flottir og eru þeir einungis
teknir út við mjög sérstök tilefni.
ELSTA
Þennan jakka
saumaði klæðsker-
inn hann langafi
minn fyrir langa
löngu. Mér finnst
virkilega gaman
að eiga hann og
geta notað hann
af og til.
NÝJASTA
Mér var kalt á
eyrunum, hjólaði
upp í GK og nældi
mér í þessa
snilldarhúfu.
FLOTTASTA
Henrik Vibskov-úlpa
keypt í Kron Kron. Ég
get notað hana sem
sumar- og vetrarjakka
þar sem ég get fjarlægt
feldinn innan úr henni.
BESTA
Þessa bláu oxford-skyrtu
keypti ég í American
Apparel. Ég valdi hana
vegna þess að hún er
mjög praktísk og á ég
ennþá eftir að finna
peysu eða jakka sem
passar ekki við hana.
M
yn
di
r/
Sæ
be
rg