Monitor - 29.09.2011, Blaðsíða 22
22 Monitor FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2011
LOKAPRÓFIÐ skólinn
| 29. september 2011 |
fílófaxið
fimmtud29sept
BUBBI MORTHENS
Á AKUREYRI
Græni hatturinn
20:30 Kóngurinn ferðast um landiðí haust þar sem hann leikur
gamalt efni í bland við nýtt ásamt því að
ræða málefni líðandi stundar við áhorfendur.
Nú stoppar Bubbi á Græna hattinum.
Miðaverð 2.500 kr.
föstudag30sept
Í MINNINGU SISSU
Hof
20:00 Tónleikar til styrktar minn-ingarsjóði Sigrúnar Mjallar,
sem lést af völdum ofneyslu fíkniefna aðeins
sautján ára, fara fram í menningarhúsinu
Hofi á Akureyri. Fjöldinn allur af tónlistar-
mönnum kemur fram, þar á meðal Friðrik
Dór, Eyþór Ingi, Páll Óskar og fleiri. Miðaverð
er 2.900 kr.
HÚSAVÍKURKVÖLD
Spot
22:00 Hljómsveitin SOS frá Húsavíkblæs til dansleiks á Spot
í Kópavogi með Ínu Valgerði Pétursdóttur
í fararbroddi. Hljómsveitin hefur leikið á
fjölmörgum böllum á norðurlandi og gerir
tilraun til að trylla höfuðborgarsvæðislýðinn
á föstudaginn.
CAPTAIN FUFANU DJ-SET
Faktorý
23:00 Rafdúettinn Captain Fufanuþeytir skífum á Smiðjustíg
6 í miðborg Reykjavíkur fram eftir nóttu.
Frítt inn.
laugarda1okt
AFMÆLISHÁTÍÐ AUS
Ráðhús Reykjavíkur
13:00 SjálfboðaliðasamtökinAlþjóðleg ungmennaskipti
fagna því að 50 ár séu liðin frá því að fyrstu
sjálfboðaliðarnir flugu út í hinn stóra heim á
þeirra vegum. Þar fer fram fjölbreytt dagskrá
og eru allir velkomnir.
CHARLIE MURPHY
UPPISTAND
Eldborg
20:00 UppistandsgrínistinnCharlie Murphy treður upp í
tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpu. Murphy
er bróðir hins heimsfræga Eddie Murphy
og hefur getið sér gott orð meðal annars
í þáttunum Chapelle‘s Show. Miðaverð er
6.500 kr.
Kvikmynd: The Court Jester frá 1956.
Hún er fyndin, í henni eru stórkostlegir
leikarar; Angela Lansbury, Danny Kaye,
Glynis Johns og svo leikur Basil Rath-
bone vonda kallinn. Tónlistin er mjög
góð, þarna er orðagrín og búningarnir
eru frábærir.
Þáttur: Americas Next Top Mod-
el er best. Nýjasta þáttaröðin
er sniðug: Góðar týpur frá fyrri
þáttaröðum. Uppáhaldið mitt,
hún Shandi Sullivan, er samt
ekki með, True Blood og Game
of Thrones saman í 2.-3. sæti.
Bók: Mig langar svo mikið
að hafa athyglisspan og
tíma til að lesa bækur.
Ég fékk einu sinni
að gjöf bók sem
heitir 1000 Indian
Recipes. Hún er
líka í samræmi
við kenningu
frænda míns um
að maður eigi að
stunda hreyfingu í takt
við uppáhaldsmatinn manns. Ég fíla indverskt. Þess
vegna dansa ég Bollywood.
Plata: Sama hvað ég reyni
að þroskast dett ég alltaf í
Elephant með White Stripes.
Jack White skilur mig. Já, og
ekki má gleyma Pocket Disco
með Glass Baby!
Vefsíða: www.foodgawker.
com. Matarklám af bestu
gerð. Þessi síða kenndi mér
t.d. að búa til bjórostafondú.
Staður: Þessa helgi er
það Tjarnarbíó, þar sem
sirkusinn minn er
með sýningu bæði
laugardag og
sunnudag kl.
2. Einstæðar
mæður
húlla, blind-
ir dansa,
ofurhugar
sýna listir á hjólaskautum. Og
ég skipti 14 sinnum um kjól.
Síðast en ekki síst
» Margrét Erla Maack, fjölmiðladís og sirkusdýr, fílar:
FM BELFAST Á FAKTORÝ
Fimmtudagur 29. september
Faktorý kl. 21
!
" # $
%& ! "#$
!"#$% & '' ()*+, #$%
* - &. '' ,/#$% 01. ''
"/#$% ,2 '' 34 #$% , ''
#$ 5)6)/% $ 78 00 ''
9*:#$% 5 ;
00< '' () % =
; &&
'' #$ ,/*:% (- >
„Við erum ótrúlega spennt fyrir að spila hérna heima aftur, líka á að-
eins smærri stað en venjulega. Síðustu skipti sem við höfum verið að
spila hérna heima höfum við oftast spilað á stærri stöðum, en bæði
er náttúrlega skemmtilegt,“ segir Árni Plúseinn, einn meðlima FM
Belfast. Hljómsveitin heldur tónleika hérlendis í fyrsta skipti í langan
tíma á Faktorý í kvöld. Það fellur í hlut Nóló að hita upp. „Þarna
verður aðeins meiri nálægð og líklega meiri sviti en venjulega.“ Húsið
opnar kl. 21:00 en FM-liðar stíga á stokk kl. 23:00. Miðaverð er 1.500 kr.
Meiri sviti
en venjulega